Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 35

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 35
FRÆÐIGREINAR / KRANSÆÐAVfKKANIR lingum (29). Notkun glykóprótein Ilb/IIIa blóðflögu- hamla hjá sjúklingum með bráð kransæðaeinkenni minnkar líkur á dauða og hjartadrepi í tengslum við kransæðavíkkun (19, 20, 30). Þessi lyf gagnast líka sjúklingum með sykursýki, óháð því hvort þeir fara í kransæðavíkkun eftir gjöf þeirra eða ekki, og var til- hneiging til að nota þau meira hjá sykursjúkum í nú- verandi uppgjöri (31). Notkun klópídógrels (Plavix®) hjá sjúklingum með bráð kransæðaeinkenni minnkar líkur á dauða og drepi við langtímaeftirlit og ef gerð er kransæðavrkkun eftir gjöf lyfsins er árangur einnig betri hjá sykursjúkum (32). Frumárangur eftir bráða kransæðavíkkun vegna bráðs ST-hækkunar hjarta- dreps er svipaður hjá sykursjúkum og öðrum sjúk- lingum, en langtímahorfur lakari (33, 34). Hert blóð- sykurstjórnun með insúlíngjöf bætir horfur hjá sykur- sjúkum með bráða kransæðastíflu, en ekki hefur óyggjandi verið sýnt fram á að góð blóðsykurstjórn- un þegar víkkun er gerð bæti skammtíma- eða lang- tímaárangur (35,36). Kransœðavíkkim eða hjáveituaðgerð? Fjöldi rann- sókna hefur borið saman árangur kransæðavíkkana og opinna hjáveituaðgerða hjá sjúklingum með og án sykursýki. Eldri rannsóknir báru belgvíkkun án stoð- nets saman við hjáveituaðgerðir og reyndist lang- tímalifun hópanna álíka, en mun meira var um hjarta- öng og þörf á endurviðgerð hjá sjúklingum með sykur- sýki sem fóru í víkkun (7, 8, 37). I BARI-rannsókn- inni þar sem gerð var belgvíkkun án ísetningar stoð- nets voru betri horfur hjá sykursjúkum eftir hjáveitu- aðgerð bundnar við þá sem fengu innanbrjóstveggs slagæðagræðling (38). Þótt nýrri uppgjör (ARTS, ERACI-II, SoS) sýni að kransæðavíkkun með notk- un stoðnets bæti árangur hjá sykursjúkum er tíðni endurviðgerða almennt hærri en við hjáveituaðgerð (39). I ARTS-rannsókninni voru kransæðavíkkanir með stoðnetum bornar saman við hjáveituaðgerðir hjá sykursjúkum með fjölæða kransæðasjúkdóm. Dán- arlíkur reyndust sambærilegar hjá hópunum, en hjá- veituaðgerðirnar komu í heild betur út vegna hærri tíðni endurviðgerða í víkkunarhópnum (40). Heila- áföll og hjartadrep voru ekki algengari í víkkunar- hópnum og kostnaður í þeim hópi var til lengri tíma litið ekki meiri en í hjáveituhópnum (40). AWE- SOME-rannsóknin hefur líka sýnt bættan langtíma- árangur við kransæðavíkkanir hjá hááhættu sjúkling- um með sykursýki í samanburði við hjáveituaðgerðir (41) . Athyglisverður er nýlegur samanburður á 20 ára árangri hjáveituaðgerða og kransæðavíkkana sem sýndi að fyrstu átta árin var oftar þörf á enduraðgerð hjá víkkunarhópnum, en eftir það í hjáveituhópnum (42) . Niðurstöður FREEDOM-rannsóknarinnar eru væntanlegar en þar er hjá sjúklingum með sykursýki gerður samanburður á kransæðavíkkunum með lyfja- húðuðum stoðnetum og hjáveituaðgerðum (8, 28, 39). Aðrar rannsóknir eru í gangi sem munu meta ár- angur mismunandi lyfjameðferða, blóðsykurstjórn- unar og kransæðaviðgerða hjá sykursjúkum (8, 39). Rétt er að ítreka að víðtæk áhættuþáttameðferð hjá sjúklingum með sykursýki með hertri blóðsykurstjórn- un, acetýlsalisýlsýru, beta-blokkerum, ACE-hömlum og statín-lyfjum, hefur þegar sýnt sig að minnka marktækt þróun hjarta- og æðasjúkdóma (3,43). Lokaorð Frumárangur kransæðavíkkana hér á landi er jafn góður hjá sjúklingum með og án sykursýki. Dánar- tíðni í sjúkrahúslegu eftir víkkunaraðgerð er í heild lág en þó hlutfailslega hærri hjá sykursjúkum en öðr- um sjúklingum. Þar sem um fáa sjúklinga er að ræða þarf að túlka þá niðurstöðu með varúð. Þakkir Sigurlaug Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur aðstoð- aði við söfnun gagna og innslátt í tölvuforrit og Ásdís Hildur Jónsdóttir læknaritari við gerð handrits. Thor Aspelund veitti tölfræðilega ráðgjöf. Heimildir 1. Kannel WB, McGee DL. Diabetes and cardiovascular disease: The Framingham Study. JAMA 1979; 241: 2035-8. 2. Haffner SM, Lehto S, Ronnemaa T, Pyorala K, Laakso M. Mortality from coronary heart disease in subjects with type 2 diabets and in nondiabetic subjects with and without prior myocardial infarction. N Engl J Med 1998; 339: 229-34. 3. Butler R, MacDonalds TM, Struthers AD, Morris AD. The clinical implications of diabetic heart disease. Eur Heart J 1998; 19:1617-27. 4. Salomon NW, Page US, Okies JE, Stephens J, Krause AH, Bigelow JC. Diabetes mellitus and coronary artery bypass. Short-term risk and long-term prognosis. J Thorac Cardiovasc Surg 1983; 85:264-71. 5. Herlitz J, Wognsen GB, Emanuelsson H, Haglid M, Karlson BW, Karlsson T, et al. Mortality and morbidity in diabetic and non-diabetic patients during a 2-year period after coronary artery bypass grafting. Diabetes Care 1996; 19: 698-703. 6. Stewart RD, Lahey SJ, Levitsky S, Sanchez SC, Campos CT. Clinical and economic impact of diabetes following coronary artery bypass. J Surg Res 1998; 76:124-30. 7. Kornowski R, Lansky AJ. Current perspectives in interven- tional treatment strategies in diabetic patients with coronary artery disease (review). Cathet Cardiovasc Intervent 2000; 50: 245-54. 8. Reginelli JP, Bhatt DL. Why diabetics are at risk in percuta- neous coronary intervention and the appropriate management of diabetics in interventional cardiology (review). J Invas Car- diol 2002; 14: 2E-11E. 9. Stein B, Weintraub WS, Gebhart SP, Cohen-Bernstein CL, Grosswald R, Liberman HA, et al. Influence of diabetes mellitus on early and late outcome after percutaneous trans- luminal coronary angioplasty. Circulation 1995; 91: 979-89. 10. Bhaskaran A, Siegel R, Barker B, Underwood P, Breisblatt W, Nuttall A, et al. Stenting during coronary intervention im- proves procedural and long-term clinical outcomes in diabe- tics. J Am Coll Cardiol 1999; 33: 97A. 11. Danielsen R, Eyjólfsson K, Sigurðsson AF, Jónmundsson EJ. Árangur kransæðavíkkunaraðgerða á íslandi 1987-1998. Læknablaðið 2000; 86:241-9. 12. Henderson J. SPSS made simple. Wadsworth Publishing Com- pany, Belmont, California, 1987. 13. Ellis SG, Narins CR. Problem of Angioplasty in Diabetics. Circulation 1997; 96:1707-10. 14. Vavuranakis M, Stefanadis C, Toutouzas K, Pitsavos C, Spanos V, Toutouzas P. Impaired compensatory coronary artery enlargement in atherosclerosis contributes to the development of coronary artery stenosis in diabetic patients. Læknablaðið 2004/90 231

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.