Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2004, Qupperneq 69

Læknablaðið - 15.03.2004, Qupperneq 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 46 Af beinagrind og hægðatregðu Beinagrind í skápnum Fimm ára læknissonur er að leika við jafnaldra sinn í vinnustofu læknisins. Sonurinn opnar einn skápinn og kemur þá í ljós beinagrind í fullri stærð. Leikfélag- inn hrekkur í kút og verður ofsahræddur en róast þegar læknissonurinn segir honum að pabbinn hafi átt beinagrindina árum saman. „Einhverra undarlegra hluta vegna heldur pabbi mikið upp á þessa beinagrind,“ sagði sonur föður síns. „Af hverju?“ spurði vinurinn. „Ég veit það ekki,“ sagði drengurinn. „Kannski var þetta fyrsti sjúklingurinn hans.“ Líkamsrækt og kynlíf Kona um þrítugt kom til læknis og var hrædd um að hún væri ófrísk. Rannsókn leiddi í ljós að svo var ekki, til mikils léttis fyrir konuna. Læknirinn ræddi síðan um ýmsar tegundir getnaðarvarna en konunni hugnaðist engin þeirra. „Getur þú ekki ráðlagt mér neitt annað?“ spurði konan. „Jú, líkamsrækt," sagði læknirinn. „Líkamsrækt?“ spurði konan undrandi. „Áður eða eftir að ég stunda kynlíf?“ „í staðinn fyrir kynlíf,“ sagði læknirinn. í sumarfríi á ströndinni Læknir nokkur sem þótti ekkert mjög sleipur í faginu en hafði þó komist í gegnum langa starfsævi án þess að verða illa á í messunni var í sumarleyfi á sólar- strönd. Á göngu sinni eftir ströndinni kom hann að björgunarliði sem var að reyna endurlífgun á manni sem lá lífvana í flæðarmálinu. Þeir notuðu að sjálf- sögðu munn-við-munn aðferðina og beittu hjarta- hnoði í gríð og erg án þess að maðurinn sýndi nokkur viðbrögð. Þegar þrýst var á bringu mannsins kom sjór, sandur og meira að segja smáskeljar úr munni hans. Læknirinn varð mjög hissa, tróð sér aðeins nær og sagði: „Fyrirgefið að ég skuli trufla ykkur, en ég er lækn- ir og ég held að það mundi hjálpa ef þið lyftuð aftur- enda mannsins upp úr sjónum." Hægöatregöa Eldri herra kom til læknis og kvartaði um mikla hægðatregðu. Læknirinn skoðaði manninn og ávísaði honum síðan töflum sem taka ætti inn áður en hann gengi til náða á hverju kvöldi. Tveimur vikum seinna kom maðurinn til eftirlits og læknirinn spurði hvernig gengi með hægðirnar. Læknirinn varð undrandi þegar maðurinn svaraði frekar önugur að töflurnar virkuðu vel og hann fyndi kallið koma klukkan hálf átta á morgnana. „En mér finnst þú ekki vera neitt hress með það,“ sagði læknirinn. „Nei, af hverju ætti ég að vera það?“ spurði mað- urinn. „Ég vakna ekki fyrr en klukkan átta.“ Karlremba Kalli var þekkt karlremba og fór í taugarnar á flest- um sem hann þekkti. Hann kom til Lalla læknis í ár- lega skoðun og létti mjög þegar læknirinn tjáði hon- um að allt væri í stakasta lagi með skrokkinn. „En mundu það, Karl,“ sagði Lalli læknir, „þú verður að hugsa um líkama þinn alveg eins og heimili þitt. Haltu honum vel við, snyrtilegum og hreinum. „Ég skil hvað þú ert að fara, Lárus minn. Ég fæ mér konu til að hjálpa mér tvisvar í viku.“ Sagt og meint Lœknir segir: „Það er best að við tökum blóðprufur“. Hann á við: „Ég finn ekki hvað er að þér. Kannski meinatæknirinn geti reddað okkur.“ Læknirsegir: „Við skulum sjá til hverju fram vindur." Hann á við: „Ef til vill breytist þetta á nokkrum dög- um í eitthvað sem ég get læknað." Lœknir segir: „Ef einkennin hverfa ekki pantar þú aftur tíma í næstu viku.“ Hann á við: „Þetta er eitthvað það ógeðslegasta sem ég hef séð. Guði sé lof að ég á frí í næstu viku.“ Ökklabrotinn lítilmagni Maður kom til læknis og verkjaði rosalega í ökklann. „Hvað hefur þú eiginlega verið svona lengi?“ spurði læknirinn. „í rúma viku,“ sagði maðurinn. „Þú ert ökklabrotinn. Hvers vegna í ósköpunum komstu ekki til mín í síðustu viku?“ „Af því að í hvert skipti sem ég orða það við kon- una að eitthvað ami að mér segir hún að ég verði að hætta að reykja.“ Dílar Sjúklingurinn: „Ég sé ennþá dfla fyrir augunum.'1 Augnlœknirinn: „Lagaðist þú þá ekkert við leiserað- gerðina?" Sjúklingurinn: „Jú, jú, dflarnir eru orðnir miklu skýr- ari.“ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@hg.is Bjarni er heilsugæslulæknir í Garðabæ. Læknablaðið 2004/90 265
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.