Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 29
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR L Skyldur lækna Itrekað hefur komið fram í skoðanakönnunum að almenningur ber mikið traust til lækna og er það vel þar sem í þeirra hendur þarf fólk oft að leggja það dýrmætasta sem það á. Það er líka viðurkennd staðreynd að á Islandi eru gæði heilbrigðisþjónust- unnar almennt séð til fyrirmyndar og er það ekki síst að þakka að læknisþjónusta hér er veitt af vel menntuðum og góðum fagmönnum. Þessu trausti, sem almenningur ber til okkar lækna, fylgir líka ábyrgð. Þó við teljum okkur veita góða og faglega þjónustu þegar til okkar er leitað vegna sjúkdóma og slysa þá höfum við kannski ekki sinnt okkar hlutverki í forvörnum og lýðheilsu sem skyldi. Með þessu er ekki verið að kasta rýrð á þau verk sem lýðheilsustöðin, land- læknisembættið eða einstakir læknar hafa unnið á þessum vettvangi. Hér er verið að brýna fleiri til að koma að þessu. Það er við hæfi að þeir sem til dæmis sinna fórnarlömbum reykinga, annarra óhollra lífshátta og ofbeldis stígi fram á opinberan vettvang og reyni í krafti sinnar þekkingar, reynslu og þess traust sem til okkar er borið að stuðla að betri heilsu þjóðarinnar. Gott dæmi um þetta og í raun kveikjan að þessum hugleiðingum er sú um- ræða sem fram hefur farið um ofbeldið í miðbæ Reykjavíkur. Þar hafa læknar slysadeildar ítrekað komið fram í fjölmiðlum og bent á hversu slæmt ástandið er og að þörf sé úrbóta. Þetta virtist um tíma barátta við vindmyllur en með aukinni fjölmiðlaumfjöllun og vakningu yfirvalda virðist nú hafa orðið viðsnúningur og dregið hefur úr ósómanum að minnsta kosti um sinn. Annað skemmtilegt dæmi úr fortíðinni er áskor- un stjórnar Læknafélags Akureyrar þ. 10. mars 1981 til Flugfélags íslands um að banna algerlega reykingar á flugleiðinni Akureyri-Reykjavík en þá var leyft að reykja öðru megin í flugvélinni. í kjölfarið varð sennilega fyrsta reyklausa áætlun- arflugið hér á landi og framhaldið þekkja allir fram til dagsins í dag með fleiri og fleiri reykbönnum. Þar velti lítil þúfa þungu hlassi. Þetta eru eingöngu tvö dæmi en þau eru fleiri og of Iangt mál að telja upp í stuttum pistli. Hins vegar er þetta verkefni sem læknar geta samein- ast um og ekki eru deildar meiningar um, heldur kannski frekar að sitji hjá í amstri dagsins. í ráðherrastól heilbrigðisráðuneytis er sestur nýr ráðherra. Eðlilegt er að ætla honum tíma til að kynna sér starfssvið sitt gaumgæfilega áður en lögð er fram fullmótuð stefna. Hins vegar eru ákveðnar vísbendingar um nú þegar, að þessi ráðherra hafi mikinn áhuga á lýðheilsumálum og vilji ná árangri á því sviði. Þar er ráðherra samstíga læknastéttinni og má þar leggja grundvöll að góðu samstarfi ráðuneytis og lækna. Þegar menn hafa fundið traustan flöt á samskiptum á einum stað verður vafalaust auðveldara að leysa ágreiningsmál sem upp kunna að koma annars staðar. Sigurður E. Sigurðsson Sigurbjörn Sveinsson I pistlunum Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknablaðið 2007/93 689
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.