Læknablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREIN / GAUMSTOL
Gaumstol
Yfirlit
Einkenni, tíðni, greining og horfur
Haukur
Hjaltason'
TAUGALÆKNIR
Styrmir
Sævarsson2
DOKTORSNEMI
í TAUGASÁLFRÆÐI
'Taugadeild Landspítala og
læknadeild Háskóla íslands.
2Sálfræöideild/taugasálfræði,
háskólanum í Freiburg,
Þýskalandi.
Fyrirspurnir og bréfaskriftir:
Haukur Hjaltason, taugadeild
Landspítala Fossvogi,
108 Reykjavík.
Sími 5431000.
haukiirhj@landspitali. is,
Lykilorð: gaumstol, heilablóð-
fall, hœgra heilahvel, gaum-
stolseinkenni, gaumstolspróf.
Ágrip
Gaumstol er tiltölulega algeng truflun sem hlýst
af heilaskaða, einkum heilablóðfalli í hægra
heilahveli. Það kemur fram í því að sjúklingur
gefur umhverfi og hlutum til gagnstæðrar áttar
við heilaskaðan ónógan gaum og bregst ekki við
því sem gerisl til þeirrar áttar. Gaumstol felur í
sér flókna röskun á samspili skynjunar, hreyfingar
og umhverfis sjúklings þar sem athygli hans og
rýmið sem umlykur hann skiptir miklu máli. Vandi
sjúklings getur verið að hann borðar einungis af
hægri hlið disks við máltíðir og les einungis orð
í setningum sem eru til hægri við miðju. Oft hafa
sjúklingar ekki fullt innsæi í eigin vanda og hjá
sjúklingum með heilablóðfall dregur gaumstol úr
batalíkum. Gaumstol er ekki alltaf augljóst en til
eru fljótleg próf sem má beita til frekari glöggv-
unar og staðfestingar á einkennum sjúklinga.
Gaumstol og afleiðingar þess eru oft óljósari en til
að mynda lamanir og málstol og því er gildi grein-
ingar og fræðslu fyrir sjúklinga, aðstandendur og
aðra mikilvægt.
Inngangur
Gaumstol er hugtak sem notað er yfir truflun
í hegðun og vitrænni getu sjúklinga og vísar til
ákveðins ástands sem hlýst af heilaskemmd, eink-
um í hægra heilahveli. I þessari grein er fjallað
um einkenni sjúklinga, greiningu, tíðni og horfur.
Gefið er almennt yfirlit urn þessa þætti en einnig
stuðst við klíníska reynslu höfunda. í seinni grein
verður gerð grein fyrir orsökum og staðsetningu
heilaskemmda, megin kenningum um gaumstol og
helstu meðferðarúrræðum.
Algengasta orsök gaumstols er heilablóðfall,
oftast vegna dreps á næringarsvæði hægri mið-
hjarnaslagæðar (a. cerebri media). I lýsingum
á einkennum sjúklinga hér á eftir er miðað við
þessa orsök gaumstols og staðsetningu heilaskaða.
Flestir þessara sjúklinga hafa skert húðskyn og eru
lamaðir í vinstri Iíkamshlið. Dæmigerður sjúkling-
ur með gaumstol getur litið til beggja átta en lítur
þó oftar til hægri og gefur hlutum til þeirrar áttar
greinilega meiri gaum. Gerist eitthvað í umhverfi
sjúklings sem kallar á athygli hans er líklegt að
fyrsta viðbragð hans verði að snúa sér eða beina
athygli sinni til hægri auk þess að hann tekur aug-
Ijóslega ekki eftir öllu sem gerist honum á vinstri
hönd. Komi til að mynda ættingjar að sjúkrabeði
hans er ekki víst að hann sýni þess merki að hann
viti af þeim séu þeir honum til vinstri handar.
Gaumstol einskorðast þó ekki við skynjun eða
eftirtekt, það getur líka komið fram við daglegar
athafnir eins og líkamssnyrtingu, að klæðast og að
ENGLISH SUMMARY
Hjaltason H, Sævarsson S
Unilateral spatial neglect: A review over symptoms, frequency diagnosis and prognosis
Læknablaðið
Unilateral spatial neglect is a disorder commonly
encountered after hemisphere stroke, most often in
the right hemisphere. Neglect patients fail to attend
and respond to stimuli presented on the side of space
opposite to the brain lesion. Neglect implies a complex
dysfunction in the co-action between perception, motor
behavior and the environment where the patients’
attentive capacities and the environmental space are
of special importance. Patients' difficulties can be seen
in that they do not eat from the left side of the plate or
omit words to the left when asked to read. Commonly
patients do not have a complete insight into their neglect
problems. Neglect in stroke patients has been associated
2007; 93: 681-7
with poor outcome on functional activities. Signs of
neglect are not always obvious but can be explored and
assessed quickly by bedside neuropsychological testing.
Neglect is often more unclear to an observer than, e.g.
if a patient suffers from paresis or aphasia. Education
for patients, their relatives and others are therefore
important.
Keywords: unilateral spatial neglect, stroke, right hemisphere,
neglect symptoms, neuropsychological testing.
Correspondence: Haukur Hjaltason, haukurhj@landspitali.is
Læknablaðið 2007/93 6 81