Læknablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÍKNAREINING
Dóra Halldórsdóttir, Jóhanna Ósk Eiríksdóttir og Valgerður Sigurðardóttir.
Líknareining Landspítala
Dag- og göngudeildin
er glæsileg viðbót
Við Kópavogsbraut 5-7 er líknareining Land-
spítalans til húsa og með dyggum stuðningi
Oddfellowreglunnar hefur verið búið einstaklega
vel að einingunni, nú síðast með opnun dag- og
göngudeildar sem nýtekin er í gagnið eftir gagn-
gerar breytingar á húsnæðinu.
Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir segir stuðning
Oddfellowreglunnar ómetanlegan. „Þeir hafa bók-
staflega gert húsnæðið fokhelt og kostað hönnun
og framkvæmdir við allar breytingar, innréttingar,
húsgögn og allan annan búnað fyrir starfsfólk og
sjúklinga. Björn Skaptason er arkitekt hússins og
eins og sjá má er hönnunin ekki mjög „sjúkrahús-
Ieg” heldur hefur áherslan verið lögð á hlýlegt og
heimilislegt yfirbragð en um leið mjög nútímalegt
og stílhreint.”
Umhverfið er heldur ekki af verri endanum,
Kópavogurinn og Arnarnesið blasa við og fallegur
garður þar sem hægt er að njóta sólar að sumrinu
ber natni Oddfellowa fagurt vitni þar sem þeir
hafa gætt að öllum smáatriðum við frágang húss
og lóðar.
Valgerður segir að skipta megi starfsemi líkn-
areiningarinnar í fjóra meginþætti. „Það er leg-
udeild með 8 rúmum, dag- og göngudeild, fimm-
daga deild og heimahlynning sem sinnir á hverjum
tíma á milli 45-50 sjúklingum í heimahúsum.”
Nýjasta viðbótin er dag- og göngudeildin sem
er að hefja starfsemi og er að sögn Jóhönnu Oskar
Eiríksdóttur hjúkrunarfræðings opin einn dag í
viku fyrsta kastið en markmiðið er að hafa opið
þrjá daga vikunnar.
„Deildin tók til starfa fimmtudaginn 20. sept-
ember og við reiknum með að hafa opið þriðju-
daga, miðvikudaga og fimmtudaga og þá verður
boðið upp á iðjuþjálfun á morgnana og sjúkra-
Hávar
Sigurjónsson
Garðurinn er sælureitur á góðum degi.
Læknablaðið 2007/93 699