Læknablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FÍFL/FKLÍ
■
tt A:dngratul<\tions:,sí
■pr YDU ARE"NOW AT
^iHURyp^K
.•AFRICA'S HIGHEBVOINTOÍ. ' ^ ^
iiORLD'S HlGnEST FREE - STANOINb HOU.NTAIN
b% öTtfoRTb'S LARGE|T VOLCAN^,
UcLCGME—'
RLD'S LARGEST VOLCANOES.lj
FÍFL á Kilimanjaro
FÍFL á loppnum,
frá vinstri Engilbert
Sigurðsson, Tómas
Guðbjartsson, Magnús
Gottfreðsson og Magnús
Karl Magnússon. Mynd:
Dagný Heiðdal.
Þann 11. september sl. náðu fjórir af meðlimum
Félags íslenskra fjallalækna (FÍFL) toppi hæsta
fjalls Afríku, Kilimanjaro (5895 m). Eftir næt-
urlanga göngu í niðamyrkri urðu leiðangursmenn
vitni að ógleymanlegri sólarupprás á gígbarmi
þessa mikla eldfjalls. A hæsta tindinum, Uhuru
Peak, var einstakt veður en háfjallaveiki gerði
göngumönnum lífið leitt. Engu að síður var þetta
ógleymanleg upplifun og erfiðisins virði.
FIFL er með ýmislegt á prjónunum í vetur. Ber
þar hæst málþing um háfjallaveiki á Læknadögum
og næsta vor er ráðgerð ferð á Flvannadalshnjúk
sem auglýst verður nánar síðar.
Frá FKLI, Félagi kvenna í læknastétt
FKLÍ boðar til næsta félagsfundar miðvikudaginn 10. okt.
nk. kl. 20, í Lækjarbrekku-Litlu Brekku við Bankastræti.
Aðalefni fundarins verður frásögn og myndasýning Ólafar
Sigurðardóttur og Helgu Hannesdóttur, lækna, sem fóru í
ágúst á heimsþing MWIA, Medical Womens International
Association, sem FKLI er meðlimur í, og þar sem Ólöf var
kjörin 1 af 8 svæðaforsetum MWIA, þ.e. forseti svæðisfélags
Norður-Evrópu, NER, til 3 ára. Rætt verður um starfsemi
MWIA og NER. Góður tími verður gefinn til spjalla saman.
Eg vil endilega benda ungum konum á að koma á fundinn,
sem er góður til að mynda tengsl við hinar eldri, sem geta verið
hjálplegar í ýmsum málum.
A fundinum verður rætt um stjórnarkjör, sem fram
fer á aðalfundi félagsins, sem verður væntanlega haldinn
miðvikudaginn 14. nóv. nk„ og verður auglýstur frekar síðar.
Undirrituð og nokkrar aðrar stjórnarkonur óska eftir að hætta
í stjórninni. Gott væri að fá tillögur um konur í stjórn og ræða
þær.
Aðalfundur félagsins verður væntanlega haldinn 14. nóv.
nk. með hátíðakvöldverði eins og venjulega. Þar verða veitt
bókarverðlaun til Eddu Vésteinsdóttur, cand. med., sem var
hæst á læknaprófi 2007 og nýútskifaðir læknar eru sérstaklega
boðnir velkomnir á fundinn. Við fáum góðan gesti að venju,
sem munu skemmta okkur.
Jólafundur félagsins verður síðan haldinn að venju í byrjun
jan. og verður auglýstur síðar.
Innheimta árgjalda er hafin.Við erum í meiri fjárþörf nú
en áður vegna þátttöku okkar í alþjóðastarfinu og alþjóðlegra
starfa Ólafar.Við viljunr því beina þeim tilmælum til félags-
kvenna og allra annarra kvenna, sem vilja ganga í félagið
eða styrkja okkur, að greiða okkur árgjald kr. 4000 sem fyrst.
Best er að konur greiði beint til okkar inn á reikninginn
okkar nr. 0137-26-3660, kt. FKLÍ er 700300-3660, eða sendi
greiðslu til Önnu Geirsdóttur, gjaldkera, sem starfar á Hgst.
Grafarvogi. Gleymið ekki að láta koma fram frá hvaða konu
greiðslan kemur. því við höfum stundum fengið greiðslur,
sem við höfum ekki getað rakið, og þá fer viðkomandi ekki á
félagaskrá okkar.
Hlakka til að sjá ykkur sem flestar á fundunum í vetur.
Margrét Georgsdóttir, formaður
Læknablaðið 2007/93 705