Læknablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRETTIR / GRÆNLAND
Veturinn er minn uppáhaldstími
„Ég hef verið hér á Grænlandi í 8 ár,” segir Eskild
Boeskov yfirhéraðslæknir við sjúkrahúsið í bænum
Illulissat þegar blaðaniaður Læknablaðsins átti
við hann samtal á dögunum á ferð sinni um þessar
slóðir.
Illulissat (ísfjörðurinn), Jakobshavn upp á dönsku,
er 5000 manna bær við hinn rómaða ísfjörð sem
dregur að sér fleiri ferðamenn árlega en nokkuð
annað einstakt náttúrufyrirbrigði á Grænlandi.
ísfjörðurinn stendur fullkomlega undir nafni
þar sem hann er 80 kílómetra langur og 1500
metra djúpur og fullur af borgarísjökum sem
Grænlandsjökull dælir jafnt og þétt út í fjörðinn.
Það tekur hvern jaka um tvö ár að mjakast út
fjörðinn og losna úr viðjum og halda til hafs og
þegar rætt er um magnið af ís þá er það ekkert
smáræði. Meðalþykkt íssins í firðinum er um 1000
metrar og einhver reiknaði út að meðalstærð hvers
borgarísjaka væri slík að nægði til að fullnægja
vatnsþörf allrar Danmerkur í ca. einn mánuð. Það
er töluvert af vatni.
Samtal okkar Eskilds snýst þó ekki um ísinn í
firðinum heldur starf hans sem læknis í Illulissat
og héraðinu í kring sem reyndar er svo stórt að
jafnast á við þriðjung af íslandi eða þar urn bil.
„Vegalengdir hér á Grænlandi á milli byggða eru
svo gríðarlegar að maður þarf langan tíma til að
venjast því,” segir Eskild aðspurður um héraðið
sem hann sinnir.
Seldi stofu, hús og bíl
„Ég starfaði áður sem heimilislæknir í Kaup-
mannahöfn og hafði rekið eigin stofu í 14 ár.
„Mig langaði að breyta til og seldi stofuna, húsið
og bílinn en hélt konunni og börnunum. A þeirn
tíma voru tvö yngstu börnin enn heima og þau
komu með okkur hingað en eru nú flutt aftur
til Danmerkur. Við komum hingað í fyrstu til
að prófa þetta í eitt ár. Við erum hér enn,” segir
hann brosandi og kveðst ekki reikna með öðru en
verða áfram á Grænlandi um ókomin ár. „Ég get
vel hugsað mér að ljúka starfsferlinum hér,” segir
hann. „Margir í Danmörku eru mjög forvitnir um
Grænland og Iangar til að koma hingað. Sumir láta
verða af því og það er ekki óalgengt að læknar
komi hingað og starfi um lengri eða skemmri
tíma.”
Hann segir meginmuninn á því að starfa sem
læknir í Danmörku og á Grænlandi vera fólginn
í því að á Grænlandi eru ekki sjálfstætt starfandi
heimilislæknar. „Hér eru allir læknar starfandi
við sjúkrahúsin í stærstu bæjunum en við sinnum
í rauninni að miklu leyti því að sama og heim-
ilislæknar gera. En það verða allir að koma hingað
Eskild Boeskov yfirhér-
aðslœknir með hluta af
bœnum lllulissat og mynni
ísfjarðarins margrómaða í
bakgrunni.
Hávar
Sigurjónsson
Læknablaðið 2007/93 707