Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 90

Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 90
SEROQUEL PROLONG forðatöflur, AstraZeneca, N 05 A H 04 SAMANTEKT A EIGINLEIKUM LYFS - Styttur texti AstraZeneca^ Hver foröatafla inniheldur: Quetiapinum INN fúmarat, samsvarandi Quetiapinum INN 50mg, 200 mg, 300mg og 400 mg. Ábendingar: Seroquel Prolong er ætlaö til meöferöar viö geðklofa. Seroquel Prolong hindrar bakslag hjá geöklofasjúklingum sem eru í stööugu ástandi og fengiö hafa viöhaldsmeðferö meö Seroquel Prolong. Seroquel Prolong er ætlað til meðferðar viö miölungsalvarlegri til mjög alvarlegri geöhæö þegar um geðhvarfasjúkdóm er aö ræöa. Seroquel Prolong er ætlaö til meðferöar við alvarlegum geðlægöarlotum í geðhvarfasjúkdómi (bipolar disorder). Seroquel Prolong er ekki ætlaö til aö fyrirbyggja endurtekin geöhæðar- eða geölægöarköst. Skammtar og lyfjagjöf: Seroquel Prolong á að gefa einu sinni á sólarhring, án matar. Töflurnar á aö gleypa heilar, hvorki má skipta þeim, tyggja þær nó mylja. Fullorðnir: Til meðferðar viö geöklofa og miölungsalvarlegum til mjög alvarlegum geöhæöarlotum þegar um geðhvarfasjúkdóm er aö ræða. Seroquel Prolong á aö gefa aö minnsta kosti einni klukkustundu fyrir máltíö. Dagsskammtur viö upphaf meöferöar er 300 mg á fyrsta degi og 600 mg á öörum degi. Ráölagður dagsskammtur er 600 mg, hins vegar má auka skammtinn í 800 mg á dag ef þaö er klínískt réttlætanlegt. Breyta skal skammtinum innan virka skammtabilsins 400 - 800 mg/sólarhring, háð klínískri svörun og þoli sjúklings. í viöhaldsmeöferð viö geðklofa er ekki þörf á aö stilla skammta. Til meðferðar á geölægöarlotum þegar um geöhvarfasjúkdóm er að ræöa. Gefa á Seroquel Prolong að kvöldi, fyrir svefn. Heildardagsskammtur fyrir fyrstu fjóra daga meðferðar er 50 mg (dagur 1), 100 mg (dagur 2), 200 mg (dagur 3) og 300 mg (dagur 4). Ráðlagður sólarhringsskammtur er 300 mg. Auka má skammtinn í 600 mg á sólarhring, háð svörun sjúklings viö lyfinu. Sýnt var fram á áhrif gegn geðlægö við 300 mg og 600 mg sólarhringsskammta, hins vegar sáust engin viöbótaráhrif hjá þeim sem fengu 600 mg á sólarhring umfram þá sem fengu 300 mg á sólarhring viö skammtímameðferö. Meöferö á geðlægöarlotum í geðhvarfasjúkdómi á aö vera í höndum lækna meö reynslu af meðferð geöhvarfasjúkdóms. Sklpt úr Seroquel filmuhúðuðum töflum: Hjá sjúklingum sem fá meðferð með fleiri en einum skammti daglega af Seroquel filmuhúðuðum töflum má skipta yfir í meöferö meö jafngildum skömmtum af Seroquel Prolong einu sinni á dag til að einfalda skömmtun. Nauðsynlegt getur veriö aö stilla skammta einstaklingsbundið. Aldraðlr: Eins og við á um önnur geðrofslyf, skal gæta varúöar viö notkun Seroquel Prolong handa öldruöum, sérstaklega í upphafi meðferöar. Veriö getur aö breyta þurfi skömmtum Seroquel Prolong hægar og lækningalegur dagsskammtur getur veriö minni en hjá yngri sjúklingum. Úthreinsun quetiapins úr plasma var aö meöaltali 30-50% hægari hjá öldruöum en hjá yngri sjúklingum. Hefja á meðferö hjá öldruöum með 50 mg/sólarhring. Auka má skammtinn um 50 mg/ sólarhring þar til viðunandi skammti er náö, háö klínískri svörun og þoli viökomandi sjúklings. Verkun og öryggi hafa ekki veriö metin hjá sjúklingum eldri en 65 ára meö geðlægðarlotur þegar um geöhvarfasjúkdóm er að ræða. Börn og ungllngar: Ekki hefur yeriö lagt mat á öryggi og verkun Seroquel Prolong hjá börnum og unglingum. Skert nýmastarfseml: Ekki er nauösynlegt aö breyta skammti hjá sjúklingum meö skerta nýrnastarfsemi. Skert lifrarstarfsemi: Quetiapin umbrotnar aö miklu leyti í lifur. Því skal gæta varúðar við notkun Seroquel Prolong hjá sjúklingum sem vitaö er aö eru með skerta lifrarstarfsemi, sórstaklega í upphafi meðferðar. Upphafsskammtur ætti að vera 50 mg/sólarhring hjá sjúklingum sem vitað er aö eru meö skerta lifrarstarfsemi. Skammtinn má auka daglega um 50 mg/sólarhring þar til viðunandi skammti er náö, háö klínískri svörun og þoli viðkomandi sjúklings. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eöa einhverjum hjálparefnanna. Samhliða notkun cýtókróm P450 3A4 hemla, eins og HlV-próteasa hemla, azól sveppalyfja, erytromycins, claritromycins og nefazodons er frábending. Sérstök varnaðarorð og varúöarreglur viö notkun: Svefnhöfgi (somnolence): Meðferð með quetiapini hefur verið tengd viö svefnhöfga og tengd einkenni, eins og sljóleika . í klínískum rannsóknum á meöferö sjúklinga meö geðlægö vegna geöhvarfasjúkdóms, hófust þessi einkenni venjulega á fyrstu þremur dögum meðferðar og voru aðallega væg eöa í meöallagi alvarleg. Sjúklingar meö geölægö vegna geðhvarfasjúkdóms sem finna fyrir miklum svefnhöfga geta þurft á tíðara eftirliti aö halda í aö minnsta kosti 2 vikur frá upphafi svefnhöfga eöa þar til einkennin ganga til baka og hafa veröur í huga hvort hætta á meöferö. Hjarta og æðakerfi: Seroquel Prolong á að nota meö varúð hjá sjúklingum meö þekktan hjarta- og æðasjúkdóm, sjúkdóm í heilaæðum eöa aöra sjúkdóma þegar hætta er á lágþrýstingi. Quetiapin getur valdið róttstööu- þrýstingsfalli sérstaklega í upphafi þegar veriö er aö auka skammta smám saman, því skal hafa í huga aö minnka skammta eöa auka skammta hægar ef þetta gerist. Hafa skal hægari skammtaaukningu í huga hjá sjúklingum meö undirliggjandi hjarta- og æðasjúkdóma. Flog (seizures): í klínískum samanburöarrannsóknum var enginn munur á tíöni floga hjá sjúklingum sem fengu quetiapin eða lyfleysu. Eins og á við um önnur geðrofslyf, er mælt með að gæta varúðar viö meöferö hjá sjúklingum meö sögu um flog. Utanstrýtueinkenni: Aukin tíðni utanstrýtueinkenna kom fram viö notkun quetiapins í samanburöi viö lyfleysu í klínískum samanburðarrannsóknum hjá sjúklingum sem fengu meöferö við alvarlegum geölægöarlotum í geðhvarfasjúkdómi. Síðkomin hreyfltruflun (tardive dysklnesla): Ef vart verður einkenna um síökomna hreyfitruflun ætti að íhuga að hætta notkun Seroquel Prolong eða minnka skammta. Illkynja sefunarheilkenni (Neuroleptic Malignant Syndrome): lllkynja sefunarheilkenni hefur veriö tengt við meöferö meö geðrofslyfjum, þ.m.t. quetiapin. Klínísk einkenni eru t.d. ofurhiti, breytt andlegt ástand, vöövastífni, óstööugleiki í ósjálfráöa taugakerfinu og hækkun á kreatín fosfókínasa. í slíkum tilvikum skal hætta notkun Seroquel Prolong og veita viöeigandi lyfjameðferö. Alvarleg daufkyrnlngafæð: Sjaldan hefur veriö greint frá alvarlegri daufkymingafæö (fjðldi daufkyrninga <0,5 X 109/1) í klínískum rannsóknum á quetiapini. Flest tilvik alvarlegrar daufkyrningafæöar komu fram innan nokkurra mánaöa eftir upphaf meöferðar meö quetiapini. Engin augljós tengsl voru viö skammta. Reynsla eftir markaössetningu hefur leitt í Ijós að hvítfrumnafæö og/eöa daufkymingafæö hefur gengiö til baka eftir að meðferö með quetiapini var hætt. Hugsanlegir áhættuþættir fyrir daufkyrningafæö eru meðal annars undirliggjandi lágur fjöldi hvítra blóðkoma og saga um daufkyrningafæð af völdum lyfja. Hætta á meðferð með quetiapini hjá sjúklingum meöfjölda daufkyrninga <1.0 X 109/1. Fylgjast á með merkjum og einkennum um sýkingu hjá sjúklingum sem ogfjölda daufkyminga (þar til fjöldi þeirra fer yfir 1,5 X 109/1). Mllliverkanir: Pegar quetiapin er notað samhliöa öflugum lifrarensímahvötum s.s. carbamazepini eða fenýtóíni lækkar plasmaþéttni quetiapins verulega og getur það haft áhrif á verkun quetiapin meðferðar. Aðeins ætti að hefja meðferð með Seroquel Prolong hjá sjúklingum sem nota lifrarensímhvata ef læknirinn metur aö ávinningur Seroquel Prolong meöferöar vegi þyngra en áhættan af því að hætta notkun lifrarensímhvatans. Þaö er mikilvægt aö allar breytingar á notkun ensímhvatans gerist hægt og ef nauðsyn krefur nota annað lyf sem ekki hvetur lifrarensím (t.d. natríumvalproat). Blóðsykurshækkun: Blóðsykurshækkun eða versnun á sykursýki hefur komið fram meðan á meðferð meö quetiapini stendur. Mælt er meö viðeigandi klínísku eftirliti hjá sykursjúkum og hjá sjúklingum sem eru í hættu á að fá sykursýki. Lípíð: Greint hefur veriö frá hækkun þríglýseríða og kólesteróls í klínískum rannsóknum á quetiapini. Meöhöndla skal hækkun lípfða eins og á við klínfskt. Lenglng á QT: í klínískum rannsóknum og viö notkun í samræmi viö SPC hefur quetiapin ekki verið tengt þrálátri aukningu á algildum (absolute) QT bilum. Hins vegar hefur lenging á QT komiö fram viö ofskömmtun. Eins og við á um önnur geðrofslyf skal gæta varúöar þegar quetiapin er ávísað handa sjúklingum með hjarta- og æöasjúkdóm eöa fjölskyldusögu um lengingu á QT. Einnig skal gæta varúöar þegar quetiapin er ávísaö meö lyfjum sem þekkt er að auka QTc biliö og samhliöa sefandi lyfjum (neuroleptics), sérstaklega hjá öldruöum, sjúklingum með meðfætt heilkenni langs QT, hjartabilun (congestive heart failure), hjartastækkun, blóökalíumlækkun eða blóömagnesíumlækkun. Fráhvarf: Bráðum fráhvarfseinkennum eins og svefnleysi, ógleði, höfuöverk, niöurgangi, uppköstum, sundli og óróleika hefur veriö lýst þegar meðferö með quetiapini hefur veriö hætt skyndilega. Mælt er meö að dregiö sé smám saman úr skömmtum á einni til tveimur vikum þegar meðferö er hætt. Aldraðir sjúklingar með geðrof tengd elliglöpum: Notkun Seroquel Prolong til meöferðar hjá sjúklingum meö geðrof tengd elliglöpum er ekki viöurkennd. Meö sumum óheföbundnum geörofslyfjum hefur sóst um 3-fðld aukning áhættu hvað varöar aukaverkanir á heilaæðar (cerebrovascular) í slembuðum samanburðarrannsóknum meö lyfleysu hjá þýði með elliglöp. Ekki er þekkt af hverju þessi aukna áhætta stafar. Ekki er hægt að útiloka aukna áhættu fyrir önnur geörofslyf eða önnur sjúklingaþýöi. Gæta skal varúöar við notkun Seroquel Prolong hjá sjúklingum þegar áhættuþættir heilablóðfalls eru til staöar. í safngreiningu á óheföbundnum geðrofslyfjum hefur veriö greint frá aukinni hættu á dauða hjá öldruðum sjúklingum með geðrof tengd elliglöpum samanborið viö lyfleysu. Þó var dánartíðni sjúklinga í tveimur 10-vikna samanburöarrannsóknum meö lyfleysu og quetiapini hjá sama sjúklingaþýöi (n=710, meðalaldur 83 ár, á bilinu 56-99 ára) 5,5% á móti 3,2% fyrir lyfleysuhópinn. Ýmsar orsakir voru fyrir dauöa sjúklinganna í þessum rannsóknum en þær voru í samræmi viö þaö sem búast má viö fyrir þýöið. Þessar niöurstööur staöfesta ekki aö orsakasamband só á milli quetiapin meöferöar og dauösfalla hjá öldruðum sjúklingum meö elliglöp. Mjólkursykur (laktósa): Seroquel Prolong töflur innihalda mjólkursykur (laktósa). Sjúklingar meö galaktósaóþol, laktasaþurrö eöa glúkósa-galaktósa vanfrásog, sem eru sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki taka lyfið. Viðbótarupplýslngar: Takmarkaöar upplýsingar liggja fyrir um notkun quetiapins samhliða divalproex eða litíum við bráðum, miölungsalvarlegum til mjög alvarlegum geðhæöarköstum; hins vegar þoldist samsetningin vel. Niðurstööur sýndu viðbótaráhrif á þriðju viku. Milliverkanir viö önnur lyf og aörar milliverkanir: Þar sem áhrif quetiapins beinast að mestu aö miötaugakerfinu ber að gæta varúöar viö samhliða notkun Seroquel Prolong og annarra lyfja sem verka á miðtaugakerfiö sem og alkóhóls. Cýtókróm P450 (CYP) 3A4 er þaö ensím sem aö mestu leyti sór um cýtókróm P450 miöluð umbrot quetiapins. Samhliöa notkun quetiapins (25 mg) og ketoconazols, CYP 3A4 hemils, í rannsókn á milliverkunum hjá heilbrigðum sjálfboöaliðum, olii 5- til 8-faldri aukningu á AUC quetiapins. Með þetta til hliösjónar er samhliöa notkun quetiapins og CYP3A4 hemla frábending. Auk þess er ekki mælt með töku quetiapins meö greipaldinsafa. í fjölskammta rannsókn á sjúklingum til að meta lyfjahvörf quetiapins fyrir og meðan á meöferö meö carbamazepini (þekktum lifrarensímhvata) stóð yfir kom fram að carbamazepin eykur úthreinsun quetiapins marktækt. Þessi aukning á úthreinsun minnkaði almenna útsetningu fyrir quetiapini (mælt sem AUC) aö meöaltali í um 13% af því sem var þegar quetiapin er notað eitt sér; þó aö meiri áhrif hafi komiö fram hjá sumum sjúklingum. Afleiðing þessarar milliverkunar getur verið minni plasmaþóttni sem getur haft áhrif á verkun Seroquel Prolong meðferðarinnar. Samhliða notkun quetiapins og fenýtóíns (annar frymisagnarensímhvati) jók úthreinsun quetiapins um þaö bil 450%. Aöeins ætti aö hefja meöferö meö Seroquel Prolong hjá sjúklingum sem nota lifrarensímhvata ef læknirinn metur aö ávinningur Seroquel Prolong meðferðar vegi þyngra en áhættan af því að hætta notkun lifarensímhvatans. Það er mikilvægt að allar breytingar á notkun lifrarensímhvatans gerist hægt og ef nauðsyn krefur nota annaö lyf sem ekki hvetur lifrarensím í staöinn (t.d. natríumvalpróat). Lyfjahvörf quetiapins breyttust ekki marktækt viö samhliða notkun þunglyndislyfjanna imipramins (þekktur CYP 2D6 hemill) eða fluoxetins (þekktur CYP 3A4 og CYP 2D6 hemill). Geörofslyfin risperidon og haloperidol höföu ekki marktæk áhrif á lyfjahvörl quetiapins viö samhliöa notkun. Samhliöa notkun quetiapins og thioridazins olli um 70% aukningu á úthreinsun quetiapins. Lyfjahvörf quetiapins breyttust ekki viö samhliöa notkun meö cimetidini. Lyfjahvörf litíums breyttust ekki viö samhliða notkun meö quetiapini. Viö samhliða notkun natríumvalproats og quetiapins breyttust lyfjahvörf þeirra ekki aö því marki að það heföi klíníska þýðingu. Ekki hafa veriö geröar formlegar rannsóknir á milliverkunum við algeng lyf viö hjarta- og æöasjúkdómum. Gæta skal varúðar þegar quetiapin er notað samhliöa lyfjum sem þekkt eru aö valda ójafnvægi blóösalta eöa auka QTc biliö. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir quetiapins sem greint hefur veriö frá eru svefnhöfgi, sundl, munnþurrkur, vægt þróttleysi, hægöatregða, hraöur hjartsláttur, róttstööuþrýstingsfall og meltingartruflanir. Eins og á við um önnur geörofslyf hefur þyngdaraukning, yfirliö, illkynja sefunarheilkenni, hvítfrumnafæð, daufkyrningafæö og bjúgur á útlimum tengst notkun quetiapins. Tíðni aukaverkana í tengslum við meöferö meö quetiapini, er talin upp hór að neðan í samræmi viö þá uppsetningu sem Council for International Organizations of Medical Sciences (CIOMS III Working Group; 1995) mælir með. Blóð og eitlar: Algengar: Hvítfrumnafæð. Sjaldgæfar: Eósfnfíklager. Ekki þekkt: Daufkyrningafæö. Ómæmiskerfi: Sjaldgæfar: Ofnæmi. Koma örsjaldan fyrir: Bráöaofnæmi. Efnaskipti og næring: Koma örsjaldan fyrir: Sykursýki. Taugakerfi: Mjög algengar: Sundl, svefnhöfgi, höfuðverkur. Algengar: Yfirliö, utanstrýtueinkenni. Sjaldgæfar: Krampar, fótaóeirö, tormæli. Koma örsjaldan fyrir: Síökomin hreyfitruflun (tardive dyskinesia). Hjarta: Algengar: Hraötaktur. Augu: Algengar: Þokusýn. Æðar: Algengar: Róttstööuþrýstingsfall. Öndunarfæri. brjósthol og miðmæti: Algengar: Nefslímubólga. Meltingarfæri: Mjög algengar: Munnþurrkur. Algengar: Hægðatregða, meltingartruflanir. Sjaldgæfar: Kyngingartregða. Lifur og gall: Mjög sjaldgæfar: Gula. Koma örsjaldan fyrir: Lifrarbólga. Húð og undirhúð: Koma örsjaldan fyrir: Ofsabjúgur, Stevens-Johnson heilkenni. Ækím&rfærLogÞrÍQStl Mjög sjaldgæfar: Standpína (priapism). Almennar aukaverkanir og ástand tengt íkomuleið: Mjög algengar: Fráhvarfseinkenni. Algengar: Vægt þróttleysi, bjúgur á útlimum. Mjög sjaldgæfar: lllkynja sefunarheilkenni. Rannsóknamiðurstöður; Mjög algengar: Hækkun á gildum þríglýseríða í sermi. Hækkun á heildarkótesteróli (aðallega LDL kólesteróli). Algengar: Þyngdaraukning, hækkun á transamínösum (ALT, AST) í sermi, fækkun daufkyrninga, blóðsykur hækkar yfir eölileg mörk. Sjaldgæfar: Hækkun á gamma-GT gildum. Greint hefur verið frá tilfellum um lengingu á QT, sleglasláttarglöp (ventricular arrhythmia), skyndilegum óútskýröum dauöa, hjartastoppi og torsades de pointes við notkun sefandi lyfja sem eru talin tengjast þessum lyfjaflokki. í skammtíma samanburöarrannsóknum með lyfleysu, á geöklofa og geðhæð í geðhvarfasjúkdómi, var samanlögö tíðni utanstrýtueinkenna svipuö og með lyfleysu (geöklofi: 7,8% fyrir quetiapin og 8% fyrir lyfleysu; geðhæð í geðhvarfasjúkdómi: 11,2% fyrir quetiapin og 11,4% fyrir lyfleysu). í skammtíma samanburðarrannsóknum meö lyfleysu, á geölægð í geöhvarfasjúkdómi, var samanlögð tíðni utanstrýtueinkenna 8,9% fyrir quetiapin samanboriö viö 3,8% fyrir lyfleysu, þrátt fyrir aö tíöni einstakra aukaverkana (t.d. hvíldaróþol (akathisia), utanstrýtukvilla, skjálfta, hreyfingatregöu, truflaðrar vöðvaspennu, óróleika, ósjálfráöra vöðvasamdrátta, skynhreyfiofvirkni, og vöövastífni) hafi almennt verið lág og ekki farið yfir 4% í neinum meöferðarhópanna. í langtímarannsóknum á geðklofa og geöhvarfasjúkdómi var samanlögö tíöni utanstrýtueinkenna sem kraföist meöferöar, svipuð fyrir quetiapin og lyfleysu. Quetiapin meðferð hefur tengst Iftilli skammtaháöri lækkun á skjaldkirtilshormónum, sérstaklega á heildar T4 og óbundnu T4. Lækkunin á heildar T4 og óbundnu T4 náöi hámarki á fyrstu 2-4 vikum Seroquel meöferðar, en viö langvarandi notkun varö ekki frekari lækkun. Þegar meöferö meö Seroquel var hætt, gengu áhrifin á heildar T4 og óbundið T4 tii baka í nær öllum tilvikum, óháö þvf hversu lengi meðferðin hafði staðiö. Minni lækkun á heildar T3 og óvirks (reverse) T3 sáust eingöngu við stærri skammta. Magn TBG var óbreytt og yfirleitt kom ekki fram gagnkvæm aukning á TSH og engin vísbending um aö quetiapin valdi vanstarfsemi skjaldkirtils sem hafi klínfska þýöingu. Desember 2008. Sjá nánar í Sérlyfjaskrá ó vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is Ejnu #|nn( 6 dgg Pakkningar og verö: Seroquel Prolong foröatöflur 50 mg, 100 stk.: kr. 20.808; 200 mg, 100 stk.: kr. 34.434; 300 mg, 10 stk.: kr. 7.271; 300 mg, 100 stk.: kr. 57.317; 400 mg, 100 stk.: kr. 65.818. Desember 2008. Afgreiðslutilhögun: R. Greiösluþátttaka:* Markaösleyfishafi: AstraZeneca A/S, Albertslund, Danmörk. Umboðsaðili á íslandi: Vistor hf., Garöabæ. SSeroquelProlong ■ lorðítófíur w 90 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.