Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 20
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Mynd 2. Hreyfiferlar í
rétt- og ranghveífu hjá
einkennalausum sextugum
manni sjö árum eftir aðgerð.
Mynd 3. Beinmyndun í mjúkvefjum hjá 58 ára gömlum
mannifimm árum eftir aðgerð.
árangri aðgerða á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) á
21 árs tímabili þar sem fjærsin tvíhöfða upphand-
leggs var fest með aðferð Boyds og Andersons.
Efniviður og aðferðir
Öllum sem gengust undir aðgerð eftir aðferð
Boyds og Andersons vegna slitinnar fjærsinar
tvíhöfðavöðva upphandleggs á FSA á árunum
1986-2006 var sent bréf þar sem þeim var boðin
þátttaka í rannsókninni. Þátttakendur voru beðnir
um að svara spurningalista ásamt því að koma í
skoðun þar sem mæld var hreyfigeta í olnboga í
beygju og rétthverfu framhandleggs ásamt styrkt-
armælingu í beygju og rétthverfu framhandleggs
í sérhönnuðum kassa. Einnig voru teknar rönt-
genmyndir af olnboga og framhandlegg.
Hreyfigeta var mæld með hreyfiferilsmæli (go-
niometer). Styrkur var mældur í beygju með hand-
arkraftmæli gegn fastri mótstöðu í 90° beygju. í
rétthverfu var handarkraftmælirinn settur í kassa
sérhannaðan af rannsakendum og rétthverfa
mæld með olnboga í 90 gráðu beygju, sjá mynd I.
Kraftur var mældur þrisvar fyrir hverja hreyfingu
og í þrjár sekúndur í hvert sinn.
Allir sjúklingar svöruðu DASH-spurninga-
listanum (Disabilities of the Arm, Shoulder and
Hand questionnaire) sem er sniðinn að sjúk-
dómum og fötlunum í öxl, olnboga, framhandlegg
og hendi.6 DASH-spurningalistinn samanstendur
af 30 atriðum þar sem hægt er að skrá alvarleika
einkenna. DASH var ekki til staðlaður á ís-
lensku en var þýddur og lagður fyrir þátttakendur.
DASH-stigunin er frá 0 sem er engin fötlun til 100
sem er hámarksfötlun.
Samanburður á tölfræðilegri marktækni milli
tveggja kraftmælinga var gerður með pöruðu t-
prófi. Tölfræðiúrvinnsla var unnin í Excel.
Eftir aðgerðina voru sjúklingar í gifsi með oln-
bogann í 100-110° beygju í sex vikur og eftir það
var þeim ráðlagt að forðast að reyna á handlegg-
inn í aðrar sex vikur. Fengin voru tilskilin leyfi hjá
Vísindasiðanefnd FSA og Persónuvemd.
Niðurstöður
Tólf af 16 sjúklingum gáfu samþykki sitt og tóku
þátt í rannsókninni. Ekki náðist í tvo, einn treysti
sér ekki til að taka þátt og einn hafði ekki tök á því
að koma til Akureyrar frá Austurlandi.
Eftirfylgni var að meðaltali sjö ár (1-17 ár).
Misjafnt var hversu langur tími leið frá áverka til
aðgerðar eða allt frá því aðgerð var framkvæmd
samdægurs til 80 daga eftir áverka, sjá töflu I.
Tíu af 12 sjúklingum gengust undir aðgerð innan
tveggja vikna. Meðalaldur þátttakenda er þeir
hlutu áverkartn var 46 ár (34-53 ár) og meðalaldur
við rannsóknina var 53 ár (40-78 ár). í beygju voru
átta af 12 sterkari í arminum sem ekki var gerð
aðgerð á miðað við aðgerðararminn, sjá töflu II.
I rétthverfu voru fimm af 12 sterkari í arminum
20 LÆKNAblaðið 2009/95