Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 63
U M R Æ Ð
U R 0 G FRÉTTIR
MINNINGARORÐ
Kristín á námsárum sínum í
New York.
Mynd í einkaeign.
þá var í smíðum í Fossvogi, var ekki tilbúin. Þarna
reyndi mikið á þennan unga sérfræðing sem stóð
sig með mikilli prýði og var mjög vel látin bæði af
sjúklingum og samstarfsmönnum, þá sem og alla
tíð síðan.
Kristín giftist Elíasi Davíðssyni, kerfisfræðingi
og tónlistarmanni árið 1963. Þau hjónin eignuðust
tvær dætur, Ester Auði, f. 1963, og Bergljótu, f.
1965. Á þessum árum varð hlé á störfum Kristínar
á Borgarspítalanum, en hún vann að rannsóknum
í Tilraunastöðinni að Keldum tvö ár af þessum
tíma. Að þeim loknum hóf hún aftur störf á
Borgarspítalanum.
Kristín hafði alla tíð mikinn áhuga á smit-
sjúkdómum og meðferð þeirra. Árið 1972 réð hún
sig til starfa á sýkladeild Landspítala og vann þar
óslitið í 24 ár, eða þar til hún lét af störfum fyrir ald-
urs sakir árið 1996. Þið getið nærri hvílíkur fengur
það var fyrir sýkladeildina að fá þennan reynda
lyflækni til starfa við þau margvíslegu vandamál
sem berast inn á þá deild og lækna vantar oft
faglega ráðgjöf til að sinna úti í heilsugæslunni eða
inni á sjúkrahúsum. Kristín vann þarna að marg-
víslegum rannsóknum auk ráðgjafarstarfanna.
Vil ég sérstaklega nefna hér rannsóknir hennar á
bóluefninu gegn meningókokkum áður en farið
var að nota það til heilsuverndar hér á landi, og
ráðgjöf til þáverandi landlæknis um þetta bóluefni
og margt annað sem varðaði bakteríur og snerti
störf landlæknisembættisins áður en sóttvarnar-
læknir tók þar til starfa. Margar ritgerðir um rann-
sóknir Kristínar birtust í innlendum og erlendum
fræðiritum. Hún sat í ýmsum nefndum og ráðum
varðandi sýkingar, sjúkdómavarnir og kennslu í
sýklafræði árin sem hún vann á sýkladeildinni og
vann öll þau störf sem henni voru falin af sömu
alúðinni og vandvirkninni.
Starfsferill Kristínar á sýkladeildinni var einnig
tengdur Háskóla íslands. Eftir að skrifleg próf í
sýklafræði voru tekin upp með nýju námskerfi í
læknadeild var Kristín fengin til að vera prófdóm-
ari. Þessi próf urðu á ábyrgð kennaranna einna
eftir fá ár, eða þegar Háskóli Islands lagði niður
prófdómarastéttina. Þegar hjúkrunarnámið færð-
ist yfir á háskólastig fékk sýkladeildin nýja dós-
entsstöðu. Kristín var ráðin í þessa stöðu og varði
eftir það miklum tíma í kennslu við læknadeild og
námsbrautir hennar.
Svo er það sjálf Kristín. Þessi gegnheila,
hógværa og trausta manneskja sem við, vinkonur
hennar, bárum afskaplega mikla virðingu fyrir
alveg frá skólaárunum til æviloka hennar. Það
er okkur öllum erfitt að hún er ekki lengur hér,
og við hittum hana ekki oftar. Þessi bráðgreinda
og yfirvegaða manneskja naut trausts allra sem
kynntust henni í starfi. Eg vona að yngri læknar í
þeim hópi hafi fundið í henni fyrirmynd sem þeir
vilja líkjast.
LÆKNAblaðið 2009/95 63