Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 7
Arna
Guðmundsdóttir
arnagu@landspitali.is
Arna Guðmundsdóttir
sérfræðingur i innkirtla- og
efnaskiptasjúkdómum á
Landspítala og formaður
Fræðslustofnunar
Læknafélags jslands sem
stendur fyrir hinum árlegu
Læknadögum
RITSTJÓRNARGREI
N A R
Læknadagar 2009
Nú líður að Læknadögum 2009 og birtist dag-
skráin í heild sinni í þessu tölublaði Læknablaðsins.
Þetta er í 14. sinn sem þingið er haldið og langar
mig til að nota þetta tækifæri og auglýsa eftir góðri
enskri þýðingu á orðinu Læknadagar. Hér verður
farið stuttlega yfir þær breytingar sem gerðar hafa
verið milli ára og hvað er í sjónmáli. Fyrst ber
að nefna breyttan þingstað. Eins og menn muna
voru Læknadagar haldnir á Radisson SAS hóteli
í janúar 2008. Þar sáu ráðstefnugestir illa á skjái
í fyrirlestrasölum og sýningarsvæði þótti dimmt
og úr alfaraleið. Nú verður snúið aftur á Hilton
Reykjavík Nordica hótel þó að á því húsnæði
séu ýmsir vankantar. Undirbúningsnefndin hafði
hlakkað mikið til að slá um sig í nýju Tónlistar- og
ráðstefnuhúsi árið 2010 en verður líklegast að bíða
aðeins lengur eftir þeirri ánægju, af augljósum
ástæðum.
Læknadaga 2008 sóttu yfir 900 manns. Þar af
voru rúmlega 200 sem ekki greiða aðgangseyri
þ.m.t. fyrirlesarar, gestir og nemar. Erlendir gestir
voru 22 í fyrra en verða eitthvað færri á þessu ári
eða um 15. Það er athyglisvert þegar reikningar
fyrra árs eru skoðaðir að flugfargjöld hingað til
lands voru á bilinu 40-60 þúsund, með einni und-
antekningu upp á 160 þúsund. Nú ber svo við
að einstakir flugmiðar frá Bandaríkjunum kosta
okkur yfir 400 þúsund krónur og segir sig sjálft
að það kann að verða enn frekari fækkun erlendra
gesta ef ástandið verður viðvarandi. Ekki svo að
skilja að Læknadagar séu háðir erlendum gestum
en það kryddar vissulega tilveruna að geta boðið
hingað þekktum vísindamönnum og góðum fyr-
irlesurum sem oft á tíðum hafa einnig verið yfir-
menn eða samstarfsmenn íslenskra lækna sem
námu á erlendri grundu. Þá er þetta gott tækifæri
til að styrkja enn frekar tengslanetið sem er okkur
svo mikilvægt. Undirbúningsnefndin í ár tók þó
ákvörðun í ljósi þessa að þeir erlendu fyrirlesarar
sem kæmu hingað í okkar boði myndu taka þátt
í málþingum en myndu ekki halda hádegisfyr-
irlestra eingöngu. Til þess höfum við nóg af góðu
fólki innanlands.
Áhuginn fyrir þinginu fer enn vaxandi, gríð-
arlegt magn var sent inn af áhugaverðu efni og
má segja að dagskráin hafi verið fullskipuð eftir
fyrsta fund nefndarinnar síðastliðið vor. Það er
óvenjulegt. Breytingar verða oft á síðustu stundu
og þetta ár var engin undantekning. Hér skall á
kreppa mikil og brugðust menn skjótt við með því
að setja saman áhugaverð málþing sem snúa bæði
að heilsufari þjóða á krepputímum og okkar sjálfra
sem tilheyrum læknastétt.
Tvö fyrirtæki eru aðalstyrktaraðilar þingsins,
GlaxoSmithKline og Novartis. Við munum bjóða
upp á þá nýjung að aukabakhjarlar geta staðið
fyrir morgunverðarfrmdum kl. 7:30-9:00. Þessu
er ætlað að auka möguleika lækna til að sækja
fræðslu sem síðan eru bókaðir í móttöku eða aimað
það sem eftir er dagsins en einnig til að minni
lyfjafyrirtækin hafi tækifæri til að halda málþing
án þess að leggja í þann kostnað sem fylgir aðal-
styrktaraðild. Fyrirfram skráning á hádegisverð-
arfundi verður lögð af og gildir þá að fyrstur
kemur, fyrstur fær. Aðgangseyri verður sem fyrr
stillt í hóf en netskráning fyrirfram er ódýrari en
skráning á staðnum.
Sú skemmtilega hefð að setja þingið með nokk-
urri viðhöfn er að festa sig í sessi. I ár höfum við
leitað til Margrétar Guðnadóttur prófessors sem er
okkur mörgum að góðu kunn.Við höfum bryddað
upp á þeirri nýjung að halda heiðursmálþing í
samvinnu við sjóð prófessors Níelsar Dungals sem
að þessu sinni verður tileinkað Margréti. Þar verð-
ur rætt um orsakir og meðferð MS-sjúkdómsins.
Mér þótti kaldhæðnislegt að sjá dagskrá
Læknadaga í desemberhefti Læknablaðsins enda
á auglýsingu frá dönsku fyrirtæki sem gerði
íslenskum læknum gylliboð um að flytja úr landi
og kanna hvort ekki væri grænna hinum megin
við hafið. Ég vonast til að það muni koma skýrt í
ljós á þessu þingi að hér er mikið af góðu fólki sem
er í mun að standa saman á þessum tímum og fara
hvergi. Standa saman um hag stéttarinnar, standa
saman um að varðveita gott heilbrigðiskerfi og
viðhalda góðu heilsufari þjóðar. Þessari samkomu
er ætlað að gera einmitt þetta, efla samkennd og
samstöðu íslenskra lækna ásamt því að stuðla að
símenntun okkar.
Góðar stundir.
LÆKNAblaðið 2009/95 7