Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 44
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
BÆKLUNARSKURÐLÆKNINGAR
Efni sem stöðvar öldrun
„Þetta kallast ARM (Aminosugars Regener-
ative Medicin), sem einfaldast er að þýða á
íslensku sem viðsnúning öldrunar," segir
Halldór Jónsson jr. bæklunarskurðlæknir
og prófessor um rannsóknarverkefnið
sem hann vinnur að í samstarfi við Genís,
Tilraunastöðina á Keldum og marga aðra
rannsóknaraðila.
Halldór kveðst mjög spenntur yfir verkefninu og
segir þetta geta valdið straumhvörfum í bæklunar-
skurðlækningum ef niðurstöður verða í samræmi
við væntingar. „Þarna erum við með efni sem
líkami fullorðins einstaklings er hættur að fram-
leiða og með því að setja það inn aftur getum við
mögulega snúið við niðurbroti á stoðkerfinu sem
Hávar verður við öldrun, stöðvum öldrunina bókstaflega
Sigurjónsson Og hindrum að niðurbrotsferlið eigi sér stað."
Hér hefur fyUiefninu frá Genís verið komiðfyrir í beini(t.h.) og tii samanburðar er tóm
beinhola (t.v.) í öðrum aðgerðum er hefðbundnu fylliefni komiðfyrir á sams konar hátt til enn
frekari samanburðar.
Halldór bætir því við að tilgangur rannsókn-
arinnar sé að rannsaka áhrif ýmissa efnasamsetn-
inga frá Genís á hegðun beins og bólguviðbragða
sem eiga sér stað í líkamanum. „Við höfum núna
sérstaklega verið að rannsaka hvernig bein vex
gegnum holrými í beini og hvernig bein festir sig
við málm, þar sem málmurinn hefur verið húð-
aður með ýmsum efnasamsetningum."
Sífellt að leita betri leiða
Halldór segir áhuga sinn á rannsóknarverkefninu
á Keldum stafa af möguleikunum sem kítínafleið-
urnar frá Genís veiti sér við bæklunarlækning-
arnar. „Ég þarf oft að taka bein frá einum stað og
flytja á annan. í slitgigt er lausnin oft sú að festa
sársaukafulla liði svo þeir núist ekki saman og
gera þannig staurlið. Liðirnir eru þá skrúfaðir
fastir og bein lagt inn í og kringum þá til þess að
þeir vaxi fastir og hreyfist ekki meira. Slit í mjaðm-
arlið er hins vegar lagfært með því að setja nýjan
lið úr stálkúlu á skafti og fóðra augnakarlinn með
plastefni; sama á við um hnjáliði. 1 baki er farið að
skipta um liði í hálshryggnum og lendhryggnum
þó það sé enn á tilraunastigi. Hér á Islandi höfum
við aðeins reynt fyrir okkur með gerviliði í háls-
hrygg en í lendhryggnum stífum við ennþá liðina
eins og annars staðar, það er gerum staurlið. Þá
eru settar inn skrúfur og stög þar á milli þannig
að þetta haldist kirfilega fast og síðan er farið inn
á mjaðmarkambinn og meitlaðar úr honum bein-
flísar sem sáldrað er yfir liðina í bakinu og þetta
grær saman í fastan klump. Beintakan veldur bæði
blæðingum og óþægindum fyrir sjúklinginn og til
að komast hjá því erum við að reyna að finna eitt-
hvað annað í staðinn. Þar hefur margt verið reynt
en tilraunir okkar með efnið frá Genís er að sann-
reyna hvort hægt sé að láta bein leiðast frá einum
stað yfir á annan. Við verðum að gera ítarlegar
rannsóknir á dýrum fyrst áður en við getum
notað það í fólk. Rannsóknin á Keldum byggist á
samanburði á þekktum efnum sem við kaupum
erlendis frá og efninu frá Genís."
Fyrsta hluta rannsóknarinnar er nú lokið þar
sem búið er að koma efnunum fyrir í kindum
sem notaðar eru við tilraunina og nú er beðið í 6
44 LÆKNAblaðið 2009/95