Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 4
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A-4 blöðum. Hver hluti
skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtal-
inni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku og íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af net-
inu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang fræði-
legra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis I næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
N I
RITSTJORNARGREINAR
Arna Guðmundsdóttir
Læknadagar 2009
Áhugi fyrir þingi Fræðslustofnunar vex, gríðarlegt magn efnis
var sent inn og dagskráin var nær fullskipuð eftir fyrsta fund
undirbúningsnefndar í vor.
Andrés Magnússon
Sjálfstæði fjölmiðla og
gagnrýnin hugsun
Ef við viljum losna við að þær klyfjar sem auðmenn íslands
telja að við eigum að axla þarf gagnrýnin hugsun að
blómstra I námi á öllum skólastigum, ekki síst í háskólum.
FRÆÐIGREINAR
Ólafur Samúelsson, Helga Zoéga, Aðalsteinn Guðmundsson, Matthías Halldórsson
Algengi geðlyfjanotkunar eldri íslendinga utan stofnana
Niðurstöður þessarar úttektar sýna að geðlyfjanotkun eldri íslendinga er almenn, sérstaklega
notkun kvíðastillandi lyfja og svefnlyfja. Sambærilega upplýsingar úr dönskum lyfjagagnagrunni
benda til þess að ávísun á geðlyf sé umtalsvert meiri hér á landi.
Freyr Gauti Sigmundsson, Þorvaldur Ingvarsson, Ari H. Ólafsson
Árangur aðgerða á slitinni fjærsin tvíhöfðavöðva
upphandleggs á FSA 1986-2006
Þrátt fyrir beinnýmyndun í mjúkvefjum og væga hreyfiskerðingu í aðgerðararminum virðist se
langtímaárangur aðgerðartækni þeirra Boyd og Anderson sé góður. Rétt greining og aðgerð
fljótlega eftir áverka reynist vera lykilatriði til þess að sjúklingum farnist vel.
Styrmir Sævarsson, Árni Kristjánsson, Haukur Hjaltason
Gaumstol: Orsakir, taugalíffærafræðileg
staðsetning, kenningar og meðferð
Gaumstol er skynröskun eftir heilaskemmdir og lýsir sér í því að sjúklingur bregst ekki við því
sem á sér stað til vinstri við hann. Hann les aðeins hægri helming orðs eða setninga, lítur til
hægri þegar gengið er framhjá vinstra megin við hann, eða borðar einungis hægra megin af
diski.
Örvar Arnarson, Tryggvi Þorgeirsson, Helgi J. fsaksson, Orri Einarsson, Friðrik Yngvason,
Tómas Guðbjartsson
Tilfelli mánaðarins
Röntgenmynd af fyrrum reykingakona sýndi þéttingu í hægra lunga og var því fengin tölvu-
sneiðmynd af brjóstholi.
11
19
27
35
4 LÆKNAblaðið 2009/95