Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 3
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www. laeknabladid. is
Málþing á
Læknadögum
í tilefni 90 afmælis Læknafélags íslands á liðnu ári
ákvað ritstjórn Læknablaðsins í vor að heiðra félagið
með málþingi á Læknadögum nú í janúar (s. 71) um
lækna, vísindarannsóknir og fjölmiðla. Það varð að ráði
að kalla til tvo erlenda gesti: Georg D. Lundberg sem
áður stýrði einu stærsta læknablaði heims, JAMA, en leiðir
nú heimsþekkt vefrit um vísindi: Medscape, og Charlotte
Haug sem er ritstjóri norska læknablaðsins. Fyrirlesararnir
eru vel kunnugir þeim siðferðilegu álitamálum sem höfund-
ar vísindagreina geta staðið frammi fyrir. Sigmundur Ernir
Rúnarsson fréttamaður og Tryggvi Þorgeirsson unglæknir eru
jafnframt þátttakendur í málþinginu.
Læknablaðið
sendir lesendum
sínum og velunnurum
velfarnaðaróskir
á nýju ári.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Árgjaldið
hækkar
Árgjald Læknablaðsins
hækkar frá og með 1.
janúar í 9500 kr. - en
við áskriftargjaldi hefur
ekki verið hróflað um
árabil.
Forsíðumyndin að þessu sinni er af verki eftir mynd-
listarmanninn Baldur Geir Bragason (f. 1976). Hann
hefur verið búsettur í Berlín undanfarið og verið þar við
nám og störf. Bakgrunnur hans er í málverki þótt hann
hafi ætíð unnið mjög markvisst í skúlptúr og stundum
haft viðkomu í öðrum miðlum. Verkið heitir Ruggustóll
(2007) og ertil sýnis á einkasýningu Baldurs í Kling og
Bang fram eftir janúarmánuði. Um leið og skúlptúrinn
minnir á ruggustól er nokkuð
Ijóst að hann er gagnslaus
sem slíkur, veikbyggður
og furðulegur. Eiginleikar
ruggustóls koma fram þegar
einhver sest í hann og ruggar
sér. Þessi sem hér um ræðir
er hins vegar í afkáralegum
hlutföllum, myndi varla bera
nokkurn mann og getur
ómögulega ruggað. Hann
stendur í stað á kantaðri
undirstöðu í stað eiginlegs
boga. Þannig er gildi þeirrar
myndar sem Baldur Geir
setur fram sjálfkrafa brenglað.
Burðargrindin er heftuð og límd saman úr þunnum
spýtum og á hana er strengdur strigi sem mótar setu
og bak. Síðan er ailt málað í hlutlausum brúntónum.
Efniviðurinn, meðferð hans og kantaður strúktúrinn vísa
til efniseiginleika málverka þar sem strigi er strengdur á
hornréttan blindramma. Þegar horft er á málverk dregur
myndefnið mann gjarnan frá verkinu sem slíku og yfir í
ímyndaðan heim. Listamaðurinn snýr þessari tilhneigingu
myndmálsins viö, í stað málverks af ruggustól er kominn
ruggustóll úr málverki.
Margræður myndheimur Baldurs Geirs hverfist
oftar en ekki um sjálfan sig. Um leið og hann setur
fram grípandi hluti og einfaldar myndir sem eiga sér
kunnuglegar fyrirmyndir, nær vísun þeirra fyrst og fremst
til ferlis listaverksins. Að
listamaðurinn hafi gert
verk, sett það fram og að
áhorfandi sjái það. Þótt
verkið kunni að minna
á hitt eða þetta nær sú
tenging skammt enda
myndmálið gjarnan sótt
í eitthvað tiltölulega blátt
áfram, teiknimyndir, bíó,
tölvuleiki eða myndasögur.
Það er ekki þar með sagt
að verkin séu sjálfhverf í
neikvæðum skilningi, þvert
á móti koma þau mjög
til móts við áhorfandann
í einfaldleika sínum. Þau beina sjónum hins vegar að
spurningunni um hvað myndlist sé yfir höfuð og hvaða
væntingar fólk beri til hennar, bæði listamaðurinn við
vinnu sína og áhorfandinn við upplifun hennar.
Markús Þór Andrésson
Mynd: Hávar Sigurjónsson
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engiibert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Margrét Árnadóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskílur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) og Journal Citation
Reports/Science Edition.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) and Journal Citation
Reports/Science Edition.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2009/95 3