Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 39
Ú R
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Sigríður Ólína
Haraldsdóttir
sigrohar@landspitali. is
Höfundur er lyf- og lungnalæknir
starfandi á Landspítala Fossvogi.
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Þórarinn Guðnason,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó. Haraldsdóttir,
ritarí
Elínborg Bárðardóttir
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir
Kristján G. Guðmundsson
Sigurður Böðvarsson
Valgerður Rúnarsdóttir
I pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna LÍ birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Það eru blendnar tilfinningar sem hrærast með
okkur í upphafi þess árs sem nú gengur í garð.
Mörg hefðum við kosið að hægt væri að færa tím-
ann aftur og upplifa fremur upphaf ársins 2007
eða jafnvel 2006. Þá höfðum við ekki áhyggjur af
bankahruni, stöðu íslands í alþjóðasamfélaginu
eða stöðu þeirra sem missa vinnuna, íbúðina og
spariféð sitt. Við lifðum góða tíma þar sem ríkti
stórhugur. Á íslandi voru byggðar virkjanir, hafin
var bygging glæsilegs tónlistarhúss og mikil vinna
var lögð í að skipuleggja byggingu og starfsemi
nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Nú er allt
breytt, óöryggi ríkir, enginn veit hvaða áhrif hrun
fjármálamarkaðarins mun í raun hafa til lengri
tíma litið á það samfélag sem hér hefur verið
byggt upp.
Nú ríður á að standa vörð um velferðarkerfið.
Það er mikilvægt að við gerum okkur ljóst að
hamfarir af því tagi sem dynja núna yfir geta haft
margvísleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu
fólks. íslenskt samfélag og íslendingar eru ekki
frábrugðnir öðrum, hér ríkja sömu lögmál og ann-
ars staðar, en erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á
neikvæð áhrif atvinnumissis á heilsu. Undanfarið
hefur verið rætt um niðurskurð á útgjöldum rík-
isins. Ég teldi það feigðarspor að skera umtalsvert
niður útgjöld til heilbrigðismála á þeim tímum
sem framundan eru.Við verðum að tryggja góða
heilbrigðisþjónustu fyrir alla og við verðum að
geta brugðist við þeim andlegu og líkamlegu
kvillum sem upp kunna að koma í kjölfar þessa
álagstíma.
Bygging nýs háskólasjúkrahúss er mikilvæg á
þessum tímum. Leitt hefur verið líkum að því að
það kosti meira fé að reka háskólasjúkrahúsið í nú-
verandi húsnæði en að byggja nýtt. Uppbyggingin
sjálf er atvinnuskapandi og myndi auk þess efla
áhuga ungs fólks á þeim fjölmörgu störfum sem
fylgja rekstri stórs sjúkrahúss sem hefur tengsl við
vísinda- og fræðasamfélag háskólanna. Áhugi á
menntun í heilbrigðistengdum greinum myndi án
efa aukast, unga fólkið sæi fram á spennandi nám
hér á landi og myndi síður flytjast af landi brott til
náms og starfa.
Mjög brýnt er að við stöndum vörð um laun og
kjör okkar. Við verðum að njóta svipaðra kjara og
læknar í löndunum í kringum okkur. Það verður
að vera eftirsóknarvert fyrir lækna að starfa hér á
landi og fyrir unga lækna, sem lokið hafa sérnámi
erlendis, að snúa heim til starfa á Islandi.
í haust sótti ég alþjóðlegt þing þeirra sem
starfa við lækningu og umönnun þeirra sem
hafa öndunarfærasjúkdóma og var því erlendis
þegar fjármálakerfi íslands hrundi. Mikið af því
sem ég heyrði þar var merkilegt en margt er því
miður gleymt eins og gengur þegar hlustað er á
marga fyrirlestra á dag í tæpa viku. Einn fyrirlest-
urinn var þó ógleymanlegur. Þar talaði Michael
Bloomberg, borgarstjóri New York borgar, sem er
ötull baráttumaður gegn reykingum. Hann lagði
áherslu á þau gríðarmiklu áhrif sem reykingar
hafa á líf og heilsu fólks og hve miklu við gætum
breytt ef við útrýmdum þeim. Hann vitnaði
í nýja skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO) um reykingar, en þar segir meðal
annars að reykingatengdir sjúkdómar muni draga
fleiri til dauða á þessu ári í heiminum en malaría,
eyðni og berklar til samans. Það er hægt að koma
í veg fyrir reykingatengda sjúkdóma. Við verð-
um að koma unglingunum í skilning um hvílíkt
glapræði það er að byrja að reykja. Kannanir
sýna að enn reykja um 10% íslenskra ungmenna
sem eru í 10. bekk. Nýleg könnun Gallups hér á
landi sýnir að fjórðungur fólks á aldrinum 20-29
ára reykir. Hvað erum við læknar að gera til að
breyta þessu? Getum við gert betur? Hingað til
hefur það verið fest í lögum um tóbaksvarnir að
stjórnvöldum sé skylt að verja ákveðnu hlutfalli af
ágóða sínum af brúttósölu tóbaks til tóbaksvarna.
Það er mikilvægt að fé til tóbaksvama sé tryggt
með þessum hætti. Læknar eiga í auknum mæli
að stuðla að forvörnum og það er á ábyrgð okkar
að leiðbeina heilbrigðisyfirvöldum um leiðir til að
bæta heilsufar þjóðarinnar.
Gleðilegt nýtt ár.
LÆKNAblaðið 2009/95 39