Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2009, Page 48

Læknablaðið - 15.01.2009, Page 48
U M R Æ Ð F É L A G U R 0 G FRÉTTIR UNGLÆKNA Framlag yngri lækna æ mikilvægara „Mikil ábyrgð, mikið vinnuálag og lág laun," er lýsingin sem Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir, formaður Félags ungra Iækna, gefur á starfs- umhverfi yngri lækna. Hjördís Þórey var kjörin formaður á aðalfundi FUL í september. Hún segir að aðstæður í þjóðfélaginu hafi gerbreyst svo á þeim stutta tíma sem liðinn er frá því hún tók við formennskunni að allar áætlanir um áherslur í starfi félagsins hafi breyst og kalli á endurskoðun. „Ég gerði ráð fyrir að aðalstarfið myndi snúast um endurskoðun samninga og nýjan kjarasamning fyrir lækna í mars á næsta ári, enda var samning- urinn sem gerður var í haust í rauninni samþykkt- ur á þeim forsendum að hann væri bráðabirgða- samningur. En þá brast skyndilega á með kreppu og nú er ljóst að allar fyrri áætlanir eru í uppnámi og þarfnast endurmats." Nú liggur fyrir fjárlagafrumvarp sem gerir ráð fyrir niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og spurning hvaða áhrif það mun hafa á starfsumhverfi yngri lækna. „Það hefur vissulega áhrif á okkur. Efst í huga okkar á þessum tíma er þó hvaða áhrif þetta mun hafa á þjónustu við sjúklinga. Nú hefur verið boð- aður 3% niðurskurður á fjárlögum til heilbrigð- ismála. Því hefur sums staðar verið haldið fram að þetta muni ekki koma niður á þjónustunni. Ég held þó að flestir sem starfi á spítalanum og í heilsugæslunni séu sammála um að það sé mjög ólíklegt. Við skulum ekki gleyma því að í „góð- ærinu" undanfarin ár hefur verið sparað, hagrætt og skorið niður á Landspítala svo það er mjög erfitt að sjá hvernig vinda á þessar fjárhæðir til viðbótar úr kerfinu." Hjördís segir að góðærið svokallaða hafi ekki skilað sér til lækna og kjarabarátta yngri lækna fyrr á þessu ári hafi snúist um leiðréttingu til jafns við aðra hópa í samfélaginu. „Það voru alls ekki allir sem nutu góðs af góðærinu og ég get heldur ekki séð að sjúklingar hafi notið þess sérstaklega og því finnst manni óréttlátt að sá hópur skuli eiga að taka á sig enn frekari skerðingu vegna hruns Hávar bankakerfisins. Ég set líka spumingarmerki við Sigurjónsson þjóðhagslegan ávinning af því að skera niður í heilbrigðisþjónustunni við þessar aðstæður. Leið okkar út úr kreppunni byggist jú á mannauði landsins sem aftur byggist á heilbrigði fólks og menntun." Yngri læknar hverfa annað Hjördís segir að margir yngri læknar séu í þeim sporum að stefna fyrr eða seinna á framhaldsnám erlendis og aðstæðurnar hér heima verði eflaust til þess að margir taki sig upp fyrr en þeir ætluðu. „Það hefur verið talsverð óánægja meðal yngri lækna um nokkurt skeið; ekki bara með launakjör heldur líka vinnuaðstæður og það að oft á tíðum er vinnuálag óásættanlega mikið. Þegar síðan við bætist þessi boðaði niðurskurður í heilbrigðiskerf- inu og ástandið í samfélaginu almennt tel ég að þetta verði til þess að yngri læknar fari fyrr út og komi seinna heim en annars hefði verið. Eflaust munu fleiri en ella setjast að erlendis til frambúðar. Þetta leiðir að sjálfsögðu til fækkunar í stétt yngri lækna. Yngri læknum hefur fjölgað talsvert á und- anförnum árum vegna þess að sífellt meira fram- boð hefur verið á sérnámi hér heima, hægt hefur verið að taka fyrrihluta nokkurra sérgreina og ein- staka greinar alveg og fyrir vikið eru yngri læknar fleiri en áður, og um leið verður framlag þeirra mikilvægara í heilbrigðisþjónustunni. Fækkun þeirra mun ekki verða sársaukalaus fyrir kerfið." Þegar eðli FUL sem félags er skoðað segir Hjördís að vandinn við að halda öflugu félags- starfi gangandi sé þríþættur. „í fyrsta lagi hefur fólk lítinn tíma til að sinna félagsstörfum þegar vinnan tekur svo mikinn tíma. í öðru lagi eru félagsmenn á þeim aldri að þeir eru margir með ung börn og fjölskylduaðstæður bjóða ekki upp á mikla félagslega þátttöku. 1 þriðja lagi er þetta mjög hverfull hópur, það er að segja að fólk er tiltölulega stutt í félaginu áður en það fer út eða öðlast sérfræðiréttindi. Einmitt vegna þessa, ásamt því að yngri læknar hafa engin formleg völd yfir sínu vinnuumhverfi, tel ég að það sé mikil þörf á öflugri starfsemi félags ungra lækna, til að standa vörð um vinnutengd mál félagsmanna." í starfi unglækna er gert ráð fyrir þjálfun og kennslu en Hjördís segir að oft verði minna úr 48 LÆKNAblaðiö 2009/95

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.