Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 44
UMRÆÐUR 0 G FRETTIR LÆKNADAGAR Sjálfsvíg er alltaf harmleikur [Óttar Guðmundsson geðlæknir mun stýra málþingi um sjálfsvíg á Læknadögum nú í janúar. Ásamt honum flytja erindi geðlæknarnir Engilbert Sigurðsson, Halldóra Ólafsdóttir, Högni Óskarsson, Sigurður Páll Pálsson og Nanna Briem. Þá verður sérstök umfjöllun um tónlist sem talin er hafa tengst sjálfsvígum og flutt verða tóndæmi. „Þetta verður breið umfjöllun, þar sem tekið verður á tölfræði, siðfræði, tónlist, lesið úr bréfum sjálfsmorðingja, kynnt ákveðið sjúkratilfelli og skoðuð saga hinnar frægu Hemingway-fjölskyldu þar sem sjálfsmorð hafa nánast gengið í erfðir," segir Óttar. „Sjálfsvíg eru samfélagsvandamál sem alltaf er til staðar. Ég hef lengi haft mjög mikinn áhuga á sjálfsmorðum og fjallaði talsvert um þetta í bók minni Listin nð lifa, listin að deyja sem kom út fyrir tíu árum. Ég sat einnig í mörg ár í nefnd á vegum landlæknisembættisins sem hafði það hlutverk að fækka sjálfsmorðum með átaki sem nefndist Þjóð gegn punglyndi. Sjálfsmorð er eitt merkilegasta vandamál geðlækninga og einnig mikilvægt við- fangsefni heimspekinnar. Kannski er þetta eina raunverulega spurningin sem heimspekin fæst við; er lífið þess virði að lifa því? Við hlið þeirrar spurningar falla aðrar spurningar um tilgang lífsins og lífið sjálft eiginlega um sjálfar sig. Hver sjálfsmorðingi spyr sig þessarar spurningar og kemst að ótvíræðri niðurstöðu." Ungir hvatvísir karlmenn - Ytri ástæður hljóta þó að hafa áhrif á svarið við spurningunni? „Sannarlega eiga persónulegar aðstæður þess sem fargar sér stóran þátt en við vitum líka að það eru ekki tengsl á milli þess að þjóð eigi i þrengingum og tíðni sjálfsmorða. Sjálfsmorðum fækkar meðal þjóða sem eiga í styrjöldum og það hafa ekki komið fram tölur um að sjálfsmorðum hafi fjölgað hér á landi eftir efnahagshrunið. Svo virðist sem í þrengingum verði til ákveðin samkennd í samfélaginu sem ver fólk gegn einmanaleikanum sem oft leiðir til sjálfsmorðs. Á sama hátt er eins og sjálfsmorðum fjölgi eftir því sem einangrun og firring einstaklinganna í samfélaginu eykst." Hávar óttar segir að árlegur fjöldi sjálfsmorða á íslandi Sigurjónsson hafi verið svipaður mörg undanfarin ár. „Árlegur fjöldi tilfella hefur verið 35-40 að undanskildu árinu 2000 þegar 52 fyrirfóru sér og enginn veit í rauninni af hverju sú hækkun stafaði. Á síðustu 25-30 árum hefur orðið tilfærsla innan þessa hóps, yngri karlmörtnum hefur fjölgað. Ungir, hvatvísir karlmenn eru fjölmennastir í þessum hópi. Á því er engin haldbær skýring enda er aðdragandinn oft mjög stuttur, saga um viðvarandi þunglyndi er ekki til staðar og því segi ég að hvatvísi sé einkennandi fyrir þessa ungu pilta. Þeir hafa yfirleitt ekki reynt þetta áður, heldur gera bara þessa einu tiiraun sem tekst." - Gerum við nóg til að upplýsa ogfræða almenning í þessu efni? „Já, ég held það. Við getum aldrei komið í veg fyrir öll sjálfsmorð og raunhæft markmið er að þeim fjölgi ekki. Fjöldinn er svipaður hér og í löndunum í kringum okkur og við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að sjálfsmorð hafa alltaf átt sér stað. í gegnum söguna hefur fólk svipt sig lífi. Það er engu að síður skelfilegt að horfa á þessa tölu og sannarlega væri hægt að koma í veg fyrir mörg sjálfsmorð ef öll áhersla væri lögð á að fá fólk til að drekka minna áfengi og helst alls ekki neitt. Það er nefnilega staðreynd að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem fyrirfer sér gerir það undir áhrifum áfengis. Hið sama á einnig við um þá sem gera tilraun til sjálfsmorðs. Áfengi og önnur vímuefni eru aðalhvati sjálfsmorða og ef okkur tækist að búa til áfengis- og vímuefnalaust samfélag myndi sjálfsmorðum eflaust fækka í mjög lága tölu." Óttar segir að í geðlæknisfræðum sé sjálfsmorð talið einkenni mjög alvarlegs þunglyndisástands. „Ef fólk talar um að svipta sig lífi eða segist ganga með sjálfsmorðshugsanir verður að taka það mjög alvarlega. Oft er þetta grundvöllur þess að geðlæknar fá að svipta fólk sjálfræði þó að öðru leyti sé einstaklingurinn ósturlaður. Á hinn bóginn myndu tilvistarheimspekingar segja þetta helbera forræðishyggju og valdníðslu á persónulegum rétti einstaklingsins til að ráðstafa LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.