Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 49
UMRÆÐA O G FRÉTTIR LYFJASPURNINGIN Elín I. Jacobsen lyfjafræðingur, verkefnastjóri Miðstöðvar lyfjaupplýsinga Landspitala elinjac@landspitali.is Einar S. Björnsson meltingariæknir og formaður lyfjanefndar Landspítala einarsb@landspitali.is Höfundarnir svara spurn- ingum lesenda um lyfjamál og birta áhugaverð tilfelli. Mynd 1: Súlfametoxazól Er krossofnæmi á milli súlfalyfja? Miðstöð lyfjaupplýsinga fær reglulega fyrirspurnir frá læknum um mögulegt krossofnæmi á milli súlfa- lyfja og annarra lyfja sem innihalda súlfathópa (-S04) eða aðra hópa sem innihalda brennistein (S). • Er hætta á krossofnæmi á milli súlfalyfja og járnsúlfats? • Sjúklingur er með staðfest súlfaofnæmi og þarf að fá cefazólín, er það óhætt? • Er krossofnæmi á milli súlfametoxazóls og fúrósemíðs? • Sjúklingur með staðfest ofnæmi fyrir súlfalyfjum þarf að fá metóklópramíð. Er það óhætt þar sem stendur í Sérlyfjaskrá að metóklópramíð skiljist út um nýru aðallega sem súlfat-samband? Súlfalyf eru í raun súlfónamíð, það eru lyf sem innihalda súlfónamíðhóp (-S02NH2). Súlfónamíðar eru tverms konar: súlfónamíðar sem eru sýklalyf (í daglegu tali nefnd súlfalyf) og súlfónamíðar sem eru ekki sýklalyf (fúrósemíð, hydróklórtíasíð, súlfónýlúrea, celecoxíb, acetazólamíð og fleiri). Ofnæmisviðbrögð vegna súlfónamíð-sýklalyfja geta verið af ýmsum toga eftir mótefnasvari.1 Ónæmissvar af tegund I verður vegna IgE-mótefna og veldur ofsakláða, ofsabjúg, lágþrýstingi og bráðaofnæmi (anaphylaxis). Tenging súlfónamíð- sýklalyfja við IgE er mjög sértæk efnafræðilega og tengd ákveðnum hópum á súlfónamíð-sameindinni (mynd 1). N1 hópurinn tengist IgE mjög sértækt, sérstaklega 5-methyl-3-isoxazoyl heterócyclískur hringur í N1 stöðunni eins og er á myndinni. Nokkrar rannsóknir hafa einnig sýnt sækni IgE í N4 svæði súlfónamíð-sameindarinnar, svonefndan arýlamínhóp. Engin rannsókn sýndi IgE-sækni í eiginlegan súlfónamíð-hóp sameindarinnar sem bendir til að krossofnæmi á milli súlfónamíð- sýklalyfja sé ekki vegna sameiginlegs súlfónamíðs- hóps í byggingunni.3 Sumir hafa flokkað súlfónamíða í þrjá flokka eftir því hvort þeir hafi þessa hópa í N1 eða N4 stöðu sem tengjast ofnæmi.2 1. Súlfónamíðar þar sem súlfónamíðhópurinn er tengdur bensen-hring með amínóhóp (arýlamínhóp) í N4 stöðu (mynd 1). Þetta eru súlfónamíð-sýklalyf. Þessi flokkur er nefndur súlfónýiarýlamín. Þetta eru lyf eins og súlfadíazín og N4-hópur Súlfónamíðhópur Nl-hópur Ofnæmi Ekki ofnæmi Ofnæmi súifametoxazól. Bæði lyfin eru hér á markaði, súlfametoxazól/ trímetoprím er mikið notað sýklalyf og súlfadíazín sem er undanþágulyf er hluti af samsettri meðferð við bogfrymlasótt (toxoplasmosis). Þá má nefna að súlfasalazine sem er notað við sáraristilbólgu og Crohn's-sjúkdómi umbrotnar í meltingarvegi í asetýlsalicýlsýru og súlfapýridine sem er súlfónamíð-sýklalyf. 2. Súlfónamíðar þar sem súifónamíðhópurinn er tengdur bensen-hring eða öðrum hring án amínóhóps í N4 stöðu. Þetta eru tíl dæmis súlfónýlúrea, celecoxíb, tíazíð, fúrósemíð, acetazólamíð. Þessi flokkur er nefndur non-súlfónýiarýiamín. 3. Lyf með einangraðan súlfónamíðhóp sem hvorki tengist bensen né öðrum hring, dæmi eru tópíramat, zónísamíð, sótalól, próbenecíd og triptan mígreniiyf. Lyf sem irmihalda súlfat, brennistein og súlfít (-SOs) eru efnafræðilega óskyld súlfónamíðum og valda ekki krossofnæmi. Má þar nefna járnsúlfat (FeS04), Duroferon®. Krossofnæmi er á milli súlfónamíð-sýklalyfja og er súlfónamíð-ofnæmi frábending fyrir notkun þeirra. Almennt má segja að ekki þurfi að hafa áhyggjur af krossofnæmi vegna súlfónamíða sem ekki eru sýklalyf hjá sjúklingum með þekkt súlfónamíð- ofnæmi. Hins vegar benda rannsóknir til að sjúklingar með súlfónamíð-ofnæmi séu líklegri til að hafa jafnframt ofnæmi fyrir öðrum lyfjum, þar á meðal öðrum súlfónamíðum og einnig fyrir penicillíni og fleiri lyfjum.1 Ekki er talið að hér sé um krossofnæmi að ræða heldur miklu fremur sjúklinga sem hafa almennt meiri tilhneigingu til að fá ofnæmi fyrir lyfjum.1 í Sérlyfjaskrá er ofnæmi fyrir súlfónamíðum skráð sem frábrending fyrir notkun lyfja eins og fúrósemíð og celecoxíb. Tilfelli í heimildum styðja þetta ekki.2-3 Aðeins eitt tilfelli í heimildum bendir til mögulegs krossofnæmis á milli fúrósemíðs og armarra súlfónamíða. Þrjár meta-analýsur hafa metið celecoxíb og komist að því að hætta á krossofnæmi við önnur súlfónamíð sé ekki meiri en við lyfleysu.2 Niðurstaða yfirferðar yfir tilfelli og rannsóknir í heimildum var að vísbendingar um krossofnæmi á milli súlfónamíð sýklalyfja og annarra súlfónamíða ætti sér ekki stoð í rannsóknum.3 Samantekt: Súlfaofnæmi getur verið mjög alvar- legt en lyf sem innihalda súlfat, brermistein og súlfít (-S03) valda ekki krossofnæmi. Heldur ekki lyf sem flokkast sem súlfónamíðar en eru ekki sýklalyf. Svokölluð ofnæmisviðbrögð geta verið lyfjaóþol svo sem ógleði, uppköst og niðurgangur. Svarið við spurningunum er því að ekki sé hætta á krossofnæmi og þó að cefazólín sé sýklalyf er það ekki súlfónamíð. 1. Brackett C. Sulfonamide Allergy and Cross-reactivity. Curr Ailergy Astma Rep 2007; 7: 41-8. 2. Sulfa drugs and the sulfa-allergic patient. Pharmacist's Letter/Prescriber's Letter 2010; 26: 260601 3. Johnson K, Green D, Rife J, Limon L. Sulfonamide Cross- Reactivity: Fact or Fiction? Ann Pharmacother 2005; 39: 290- 301. LÆKNAblaðið 2011/97 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.