Læknablaðið - 15.01.2011, Síða 49
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
LYFJASPURNINGIN
Elín I. Jacobsen
lyfjafræðingur, verkefnastjóri
Miðstöðvar lyfjaupplýsinga
Landspitala
elinjac@landspitali.is
Einar S.
Björnsson
meltingariæknir og formaður
lyfjanefndar Landspítala
einarsb@landspitali.is
Höfundarnir svara spurn-
ingum lesenda um lyfjamál
og birta áhugaverð tilfelli.
Mynd 1: Súlfametoxazól
Er krossofnæmi á milli súlfalyfja?
Miðstöð lyfjaupplýsinga fær reglulega fyrirspurnir
frá læknum um mögulegt krossofnæmi á milli súlfa-
lyfja og annarra lyfja sem innihalda súlfathópa (-S04)
eða aðra hópa sem innihalda brennistein (S).
• Er hætta á krossofnæmi á milli súlfalyfja og
járnsúlfats?
• Sjúklingur er með staðfest súlfaofnæmi og þarf að
fá cefazólín, er það óhætt?
• Er krossofnæmi á milli súlfametoxazóls og
fúrósemíðs?
• Sjúklingur með staðfest ofnæmi fyrir súlfalyfjum
þarf að fá metóklópramíð. Er það óhætt þar sem
stendur í Sérlyfjaskrá að metóklópramíð skiljist út
um nýru aðallega sem súlfat-samband?
Súlfalyf eru í raun súlfónamíð, það eru lyf sem
innihalda súlfónamíðhóp (-S02NH2). Súlfónamíðar
eru tverms konar: súlfónamíðar sem eru sýklalyf
(í daglegu tali nefnd súlfalyf) og súlfónamíðar
sem eru ekki sýklalyf (fúrósemíð, hydróklórtíasíð,
súlfónýlúrea, celecoxíb, acetazólamíð og fleiri).
Ofnæmisviðbrögð vegna súlfónamíð-sýklalyfja
geta verið af ýmsum toga eftir mótefnasvari.1
Ónæmissvar af tegund I verður vegna IgE-mótefna
og veldur ofsakláða, ofsabjúg, lágþrýstingi og
bráðaofnæmi (anaphylaxis). Tenging súlfónamíð-
sýklalyfja við IgE er mjög sértæk efnafræðilega og
tengd ákveðnum hópum á súlfónamíð-sameindinni
(mynd 1). N1 hópurinn tengist IgE mjög sértækt,
sérstaklega 5-methyl-3-isoxazoyl heterócyclískur
hringur í N1 stöðunni eins og er á myndinni.
Nokkrar rannsóknir hafa einnig sýnt sækni IgE í
N4 svæði súlfónamíð-sameindarinnar, svonefndan
arýlamínhóp. Engin rannsókn sýndi IgE-sækni í
eiginlegan súlfónamíð-hóp sameindarinnar sem
bendir til að krossofnæmi á milli súlfónamíð-
sýklalyfja sé ekki vegna sameiginlegs súlfónamíðs-
hóps í byggingunni.3
Sumir hafa flokkað súlfónamíða í þrjá flokka eftir
því hvort þeir hafi þessa hópa í N1 eða N4 stöðu sem
tengjast ofnæmi.2
1. Súlfónamíðar þar sem súlfónamíðhópurinn er tengdur
bensen-hring með amínóhóp (arýlamínhóp) í N4 stöðu
(mynd 1). Þetta eru súlfónamíð-sýklalyf. Þessi flokkur er
nefndur súlfónýiarýlamín. Þetta eru lyf eins og súlfadíazín og
N4-hópur Súlfónamíðhópur Nl-hópur
Ofnæmi Ekki ofnæmi Ofnæmi
súifametoxazól. Bæði lyfin eru hér á markaði, súlfametoxazól/
trímetoprím er mikið notað sýklalyf og súlfadíazín sem er
undanþágulyf er hluti af samsettri meðferð við bogfrymlasótt
(toxoplasmosis). Þá má nefna að súlfasalazine sem er
notað við sáraristilbólgu og Crohn's-sjúkdómi umbrotnar
í meltingarvegi í asetýlsalicýlsýru og súlfapýridine sem er
súlfónamíð-sýklalyf.
2. Súlfónamíðar þar sem súifónamíðhópurinn er tengdur
bensen-hring eða öðrum hring án amínóhóps í N4 stöðu.
Þetta eru tíl dæmis súlfónýlúrea, celecoxíb, tíazíð, fúrósemíð,
acetazólamíð. Þessi flokkur er nefndur non-súlfónýiarýiamín.
3. Lyf með einangraðan súlfónamíðhóp sem hvorki tengist
bensen né öðrum hring, dæmi eru tópíramat, zónísamíð,
sótalól, próbenecíd og triptan mígreniiyf.
Lyf sem irmihalda súlfat, brennistein og súlfít (-SOs)
eru efnafræðilega óskyld súlfónamíðum og valda
ekki krossofnæmi. Má þar nefna járnsúlfat (FeS04),
Duroferon®.
Krossofnæmi er á milli súlfónamíð-sýklalyfja og er
súlfónamíð-ofnæmi frábending fyrir notkun þeirra.
Almennt má segja að ekki þurfi að hafa áhyggjur
af krossofnæmi vegna súlfónamíða sem ekki eru
sýklalyf hjá sjúklingum með þekkt súlfónamíð-
ofnæmi. Hins vegar benda rannsóknir til að
sjúklingar með súlfónamíð-ofnæmi séu líklegri til
að hafa jafnframt ofnæmi fyrir öðrum lyfjum,
þar á meðal öðrum súlfónamíðum og einnig fyrir
penicillíni og fleiri lyfjum.1 Ekki er talið að hér sé um
krossofnæmi að ræða heldur miklu fremur sjúklinga
sem hafa almennt meiri tilhneigingu til að fá ofnæmi
fyrir lyfjum.1
í Sérlyfjaskrá er ofnæmi fyrir súlfónamíðum
skráð sem frábrending fyrir notkun lyfja eins og
fúrósemíð og celecoxíb. Tilfelli í heimildum styðja
þetta ekki.2-3 Aðeins eitt tilfelli í heimildum bendir
til mögulegs krossofnæmis á milli fúrósemíðs og
armarra súlfónamíða. Þrjár meta-analýsur hafa metið
celecoxíb og komist að því að hætta á krossofnæmi
við önnur súlfónamíð sé ekki meiri en við lyfleysu.2
Niðurstaða yfirferðar yfir tilfelli og rannsóknir í
heimildum var að vísbendingar um krossofnæmi á
milli súlfónamíð sýklalyfja og annarra súlfónamíða
ætti sér ekki stoð í rannsóknum.3
Samantekt: Súlfaofnæmi getur verið mjög alvar-
legt en lyf sem innihalda súlfat, brermistein og súlfít
(-S03) valda ekki krossofnæmi. Heldur ekki lyf sem
flokkast sem súlfónamíðar en eru ekki sýklalyf.
Svokölluð ofnæmisviðbrögð geta verið lyfjaóþol
svo sem ógleði, uppköst og niðurgangur. Svarið við
spurningunum er því að ekki sé hætta á krossofnæmi
og þó að cefazólín sé sýklalyf er það ekki súlfónamíð.
1. Brackett C. Sulfonamide Allergy and Cross-reactivity. Curr
Ailergy Astma Rep 2007; 7: 41-8.
2. Sulfa drugs and the sulfa-allergic patient. Pharmacist's
Letter/Prescriber's Letter 2010; 26: 260601
3. Johnson K, Green D, Rife J, Limon L. Sulfonamide Cross-
Reactivity: Fact or Fiction? Ann Pharmacother 2005; 39: 290-
301.
LÆKNAblaðið 2011/97 49