Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 35
ÚR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Læknar og sígarettuvélin Birna Jónsdóttir bima@lis.is Röntgenlæknir og formaður Læknafélags l’slands Vinur minn sem er lungnalæknir sagði mér að skaðsemi tóbaks hefði náð áður óþekktum hæðum eftir að sígarettuvélin var fundin upp í kringum árið 1880. I sögulegu samhengi var sígarettuvélin tækninýjung sem þjónaði fyrst og fremst seljendum tóbaks, því auðveldara var að koma vörunni á „hagkvæman" hátt til notenda. Sagan segir okkur að lengi vel trúðu menn á lækningamátt tóbaks. Máttur auglýsinga er óvéfengdur. Læknisfræði er reynsluvísindi og það er meira en mannsaldur síðan hægt var að auglýsa tóbak á forsíðu Læknablaðsins. Sígarettureykingar urðu snemma á 20. öld algengasti notkunarmáti tóbaks og víst var gott að losna við hrákadalla sem áður voru um allt og tóku við tuggðu munntóbaki. Engan óraði fyrir alvarlegum afleiðingum almennrar notkunar á „ódýru" tóbaki. Smithætta stóð upp úr hrákadöllunum en afleiðingar óbeinna reykinga eru ekki síður alvarlegar. Nú vitum við betur. Þekking okkar í dag segir að annað hvert ungmenni sem fer að reykja muni deyja af reykingatengdum sjúkdómi. Megin forvamarstarfið sem LI vinnur að er að leita allra leiða til forða ungmennum frá því að ánetjast tóbaksfíkninni í hvaða formi sem er. Við sem vinnum fyrir LÍ höfum í vaxandi mæli orðið vör við einkenni kulnunar í starfi hjá kollegunum. Könnun sem gerð var meðal yngri lækna í maímánuði sýndi að þeir sem voru óánægðir nefndu sem algengustu ástæðu of mikið álag á vinnustað. Eins og við vitum er það svo að ef manni finnst hann undir of miklu álagi og ekki ná að skila verkefnum á fullnægjandi hátt þá styttist í starfsleiða. En það eru svona verkefni eins og slagurinn við tóbaksiðnaðinn sem gerir það svo skemmtilegt að vera læknir. Það verður að vera gaman í vinnunni, starfsánægjan vegur ekki síður þungt en aurarnir í buddunni þó svo að þá beri ekki að forsóma. Ef álagið er of mikið, starfs- aðstaðan léleg og kaupið lágt, er eins gott að margt annað komi á móti. Það þarf ekki að brýna lækna gagnvart því að sinna sínum persónulegu skjólstæð- ingum vel. Við eigum sammerkt að hafa valið starfið til þess, og það er kennimark íslenskra lækna að mjög lágt brottfall er úr stéttinni og starfsævi löng. Þeir sem hætta að vinna heima og eru ekki að fara á eftirlaun, fara nánast undantekningarlaust í læknisstörf er- lendis. LI stendur fyrir tóbaksvarnarþingi nú í lok september, og er það í annað sinn á tveimur árum sem félagið boðar til slíks. Fyrra þingið var haldið í september 2009 og tókst fádæma vel. Alyktanir sem þar voru samþykktar leiddu af sér aðalfundarsamþykktir LÍ 2010, sem í framhaldi urðu meginuppi- staða í röksemdafærslu þingmannahóps sem lagði fram ályktunartillögu á alþingi íslendinga um að banna sölu á tóbaki í almennum verslunum. Auðvitað gerum við læknar okkur grein fyrir því að óforbetranlegir fíklar sem ánetjast hafa tóbaki hvorki vilja allir né geta hætt að reykja og einhvern veginn verður að sinna þeim einstaklingum. Útfærslan á því hvernig þeir fá sitt tóbak verður smám saman ljós. Það er ekki okkar ætlan að banna sölu tóbaks yfir nótt heldur að þrengja áfram að sölumönn- unum í nokkrum skrefum á 10 árum. Engum lækni dylst að slagurinn er þess virði að taka hann en tóbaksiðnaðurinn mun ekki hopa þegjandi og hljóðalaust og er sífellt tilbúinn til að tæla nýja notendur. Ein óskammfeilnasta mark- aðssetning sem mér var nýlega bent á er auglýsing á bleikum, vel lyktandi, örmjóum sígarettum sem sérstaklega eru ætlaðar unglingsstúlkum. Félagar, það er alltaf of snemmt að gefast upp, vinnum saman í forvörnum, vinnum að útrým- ingu tóbaksnotkunar. Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir formaður Valgerður Á. Rúnarsdóttir varaformaður Sigurveig Pétursdóttir gjaldkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritari Ágúst Örn Sverrisson Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Ragnar Victor Gunnarsson Þórey Steinarsdóttir I pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Li birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. LÆKNAblaðiö 2011/97 487
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.