Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 46
FRÁ SIÐANEFND LÍ
Þá er til þess að taka að í tölvupósti Magnúsar Kolbeinssonar
læknis til siðanefndar Læknafélags íslands frá 9. maí sl. segir
m.a.
í sjúkragögnum um A (sem ég hafði séð við fyrri innlagnir hans og
þar með læknabréf frá öðrum stöðum) kemur fram að hann eigi einhver
mál óútkljáð við heilbrigðiskerfið (allt gamalt og mér óviðkomandi) sem
hann sé mjög ósáttur við og hefur leitað til Lögmenn Árbæ vegna þess.
Hann var lengi á Reykjalundi fyrir c.a. ári síðan í meðferð hjá læknum,
sjúkraþjálfara, félagsfræðingi og sálfræðingi. Útskrifaðist með greininguna
VITRÆN SKHRÐING F07.9 auk bakverkjagreiningar.
Skúli var mjög bráður er hann hringdi í mig og skellti á mig þegar
ég bauð honum að ræða málin frekar.
Siðanefnd lítur svo á að með þessum ummælum, þar
sem fram koma upplýsingar úr sjúkragögnum sjúklings,
hafi Magnús Kolbeinsson læknir brotið gegn ákvæði 13.
gr. siðareglna lækna (Codex ethicus) en hvergi kemur fram
í gögnum málsins að sjúklingur hafi heimilað birtingu
upplýsinga þessara. Tilvitnuð grein hljóðar svo:
Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að hafast nokkuð að, er
veikt gæti trúnaðarsamband hans við sjúklinga sína.
Lækni er óheimilt að skýra frá heilsufari, sjúkdómsgreiningu, horfum,
meðferð eða öðrum einkamálum sjúklinga eða afhenda gögn með
upplýsingum, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða hann hefur
með öðrum hætti fengið vitneskju um í starfi sínu, nema með
sampykki sjúklings, eftir úrskurði dómara eða samkvæmt lagaboði.
Lækni ber að áminna samstarfsfólk og starfslið sitt um að gæta
með sama hætti fyllstu pagmælsku um allt er varðar sjúkling hans.
Lækni hlýðir ekki fyrir dómi, að leggja fram sjúkraskýrslur máli
sínu til sönnunar án úrskurðar dómara. Sjúklingur getur hins vegar
krafist pess, að slík skýrsla um hann sé lögð fram.
Loks er þess að geta að í bréfi Magnúsar Kolbeinssonar til
siðanefndar frá 8. apríl sl. er í lokin að finna óljósar aðdróttanir
sem eru bréfritara ekki sæmandi.
Samkvæmt öllu framansögðu er það niðurstaða Siðanefndar
að læknirinn Magnús Kolbeinsson hafi í samskiptum sínum
við sjúkling og ummælum um hann og kollega gerst brotlegur
annars vegar við 22. gr. siðareglna lækna og hins vegar 13.
gr. sömu reglna og ber að áminna hann um að hafa í heiðri
og fara eftir siðareglum lækna.
ÚRSKURÐARORÐ
Magnús Kolbeinsson, hefur í samskiptum sínum við sjúkling,
ummælum um hann og kollega sína, brotið gegn 22. og 13.
gr. siðareglna lækna (Codex ethicus). Er hann áminntur um
að hafa reglur þessar í heiðri og fara eftir þeim.
Dáleiðslunámskeið John Sellars
verður endurtekið á Hótel Borg við Austurvöll í Reykjavík
23. - 26. september og 4. -7. nóvember, 2011
Námskeiðið veitir góða grunnþjálfun í dáleiðslutækni
og geta læknar nýtt sér hana í starfi sínu strax að
námskeiði loknu.
Læknar og hjúkrunarfræðingar sem sóttu síðasta námskeið
Ijúka einróma lofsorði á námskeiðið. Hægt er að lesa
umsagnir þeirra á heimasíðu námskeiðsins og skoða aftur
umfjöllun Kastljóss um námskeiðið frá 6. júní, s.l.
Með dáleiðslu hefur tekist að veita meðferð við ýmsum sjúkdómum sem ekki hafa svarað
annarri meðferð, svo sem vefjagigt, IBS og tinnitus svo gripið sé niður í listann
Námskeiðið er haldið afstofnun John Sellars, The Hypnosis Centre í Glasgow
Heimasíða námskeiðsins er http://4.is/dtl
498 LÆKNAblaðið 2011/97