Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 48
ÖLDUNGADEILD Víðförult málverk Sigurður E. Þorvaldsson Sir Harold Gillies (1882-1960), Nýsjálend- ingur sem lærði og starfaði í Englandi, er af mörgum nefndur faðir lýtalækninga. Sir Harold, sem er ávallt nefndur Gillies af kollegum sínum, kom oft til íslands til að renna fyrir lax og þannig kynntist hann íslenskri náttúru og þá gafst honum einnig tækifæri til þess að sinna áhugamáli sínu: að mála fallegt landslag. Leið eins af málverkum Dr. Gillies af íslensku landslagi lá frá Englandi til Flórída í Bandaríkjunum og var þá í eigu Dr. Ralph Millards er hafði sem námslæknir unnið með Gillies að bók sem nú er talin klassísk: The Principles and Art of Plastic Snrgery.1 Ég sá þetta málverk fyrst árið 1969 á skrifstofu Dr. R.O. Dingmans yfirlæknis lýtalækningadeildar Michigan-háskóla í Ann Arbor, þar sem ég sat og beið eftir viðtali um hugsanlega námsstöðu í lýtalækningum. Það var notalegt að sjá kunnuglegt íslenskt landslag á meðan ég beið og þegar venjulegu formlegu samtali var lokið var gott að geta beint umræðunni að þessu málverki af Almannagjá og Þingvallavatni. Það var sérstök vinátta og gagnkvæm virðing milli Dr. Dingmans og yngri kollega hans, Dr. Millards, sem hafði gefið Dr. Dingman þetta málverk í þakkarskyni fyrir sérstakan stuðning í upphafi ferils síns f Bandaríkjunum. Síðar var ég einnig í námi hjá Dr. Millard í Miami á Flórída. Þrjátíu árum síðar, árið 1999, hófst lokaferð þessa málverks í Salt Lake City, Utah, þegar mér barst stutt bréf og fyrirspurn þaðan. „Siggi, hefur þú enn áhuga á málverkinu The Great Rift?" Ég svaraði þegar í stað játandi. Bréfið var frá Dr. David Dingman lýtalækni, syni yfirlæknis míns í Ann Arbor en við höfðum oft hist á fundum í Bandaríkjunum. Einhvern tíma spurði ég hann hvað hefði orðið af þessu málverki við lát föður hans. „Það er í stofunni heima hjá mér og er skemmtilegt að sýna kollegum mínum það þar sem Dr. Gillies er jú einn frægasti lýtalæknir sögunnar." Nafnið „The Great Rift" var þýðing Dr. Gillies á Almannagjá. Á bakhlið málverksins er miði sem segir að málverkið hafi verið á sýningu The Royal Institute of Oil Painters í London. Nokkrum vikum síðar kom pakki frá Bandaríkjunum og var þar komið umrætt málverk. Ég þakkaði vini mínum þegar í stað og spurði hvað ég mætti greiða honum fyrir málverkið. Við þeirri spurningu, þó ítrekuð væri, fékk ég aldrei svar. I þakkarskyni skrifaði ég því litla grein sem birtist í Annals of Plastic Surgery: „Sir Harold Gillies and His Icelandic Connection: Gillies-Millard-Dingman-Iceland: Journey of a Painting Completed."2 þar sem saga málverksins er sögð. Ég á nú sumarhús á Þingvöllum þar sem ég nýt landslagsins sem Gillies málaði. Gillies dó árið 1960, Reed O. Dingman árið 1985 og Dr. Millard er nýlátinn, lést 19. júní 2011. Árið 1999 var Millard valinn einn af 10 áhrifamestu lýtalæknum 20. aldarinnar. Heimildir: 1. Gillies HD, Millard DR. The Principles and Art of Plastic Surgery. Butterworth, 1958. 2. Thorvaldsson SE. Sir Harold Gillies and his Icelandic Connection: Gillies-Millard-Dingman-Iceland: Joumey of a painting completed. Ann Plast Surg 2002; 48:565-6. 0ldungadeild Læknafélags íslands Stjórn Öldungadeildar: Sigurður E. Þorvaldsson, formaður, Jón Hilmar Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Öldungaráð Umsjón síðu: Páll Ásmundsson Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson 500 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.