Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR Þungur róður framundan - um samninga LÍ ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Sveirm Kjartcmsson fer yfir stöðu samningamála á kjaramálafundi LÍ í vor. Sveinn Kjartansson formaður samn- inganefndar LI er ekki bjartsýnn á niðurstöðu samninga við ríkið sem vísað var til sáttasemjara í júlí. Fyrsti formlegi fundur samninganefnda LÍ og ríkisins var haldinn 15. júní síðastliðinn. Að sögn Sveins Kjartans- sonar formanns samninganefndar LÍ var löngu ljóst af viðræðum við samninganefnd ríkisins (SNR) í fyrrahaust og janúar að ekkert yrði samið við LÍ fyrr enn almennir kjarasamningar yrðu frágengnir. „Frá janúar og fram í júní gerðist því ekkert en eftir að samningar tókust hjá öðrum bauð SNR til fundar og þar lögðum við fram ítarlega kröfugerð sem var mætt með tilboði upp á 11,4% hækkun á næstu þremur árum, svipað og aðrir höfðu samið um. í okkar tillögum var tekið mið af þessu tilboði en með talsvert mörgum breytingum og tilfærslum. Kröfugerð í þremur hlutum Kröfugerð okkar má skipta í þrjá megin- hluta þar sem í fyrsta lagi er óskað eftir breytingum sem snúa að ýmsum skilgreiningum í kjarasamningum og upptöku á EES skilmálum. Um þetta var í sjálfu sér enginn ágreiningur, aðeins verið að lagfæra orðalag og aðilar voru sammála um nauðsyn þessa. I öðru lagi snerist kröfugerð okkar um ýmsar túlkanir á gildandi kjarasamningi þar sem mikil óánægja hefur verið meðal lækna, sérstaklega á Landspítalanum, um einhliða túlkun og beinlínis rangtúlkanir á ýmsum greinum samningsins. í þriðja lagi lögðum við til nýja launaflokka, tilfærslur á milli launaflokka og lengra bil á milli launaflokka og ýmis önnur atriði sem beinlínis myndu gefa okkur kjarabætur. Hverjar þær yrðu í prósentum var ekki reiknað út, enda túlkunaratriði þar sem tillögumar byggðu á því að vinnuveitanda yrði gefið aukið svigrúm til að umbuna læknum, en líka beinum hækkunum á fastlaunasamningi og tilfærslum á milli launaflokka. Okkur fannst SNR ekki taka illa í þetta á fundinum 15. júní en á næsta fundi var svarið mjög afgerandi að ríkið treysti sér ekki til að fara í þetta og héldi fast við sitt upphaflega tilboð. í staðinn kom fram tilboð um fasta yfirvinnutíma til sérfræðilækna en fjöldi þeirra gæti þá verið samningsatriði. Þá bókaði SNR tillögu á fundinum um að skipa nefnd sem endurskoða ætti vinnutíma og launauppbyggingu lækna almennt. Tilboðið um fasta yfirvinnu til sérfræðilækna var engu að síður mjög óljóst og átti með einhverjum hætti að tengjast þeim breytingum sem fyrirhuguð nefnd ætti að skila fyrir næsta vor. Okkur leist ekki betur en svo á þetta að við óskuðum eftir að viðræðum yrði vísað til sáttasemjara ríkisins." Að sögn Sveins eru fulltrúar almennra lækna ósáttir við tillögugerð samninganefndar LI og eflaust yrði það olía á eld óánægjunnar ef samið yrði um fasta yfirvinnu til sérfræðinga en almennir læknar fengju aðeins hina almennu hækkun. „Almennu læknarnir myndu aldrei samþykkja það og því er staðan mjög erfið. Það er ekkert launungarmál. Á hinn bóginn er það stefna núverandi samninganefndar að hækka laun ungra sérfræðinga og auka launabilið milli sérfræðinga og almennra lækna. Það er heldur ekkert launungarmál og stærsti vandinn snýr að heimflutningi nýrra sérfræðinga. Það verður að bæta kjör þeirra svo þeir fáist til að koma heim að loknu sémámi." Óttast um læknisfræðina í landinu Sveinn segir að hann, ásamt Birnu Jóns- dóttur formanni LÍ, hafi átt fund með velferðarráðherra og fjármálaráðherra í júlí og þar hafi ráðherrarnir „gefið í skyn að þeir vildu koma til móts við okkur. Ég geri ráð fyrir að tilboð SNR um fasta yfirvinnu til sérfræðinga sé þaðan runnið, jafn óljóst og það reyndist svo vera." Sveinn segir að sér lítist mjög þunglega á komandi samningaviðræður og telur að þungur róður sé framundan. „Ég held að áhyggjur ráðamanna séu ekki minni þó þeir láti ekki mikið uppi og virðist vera kokhraustir opinberlega. Ég hef skilning á þeirra vanda en ég óttast um læknisþjónustuna og læknisfræðina í landinu." 488 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.