Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 37
NORSK VERÐLAUN
Mynd af Moser-hjónunum
á góðri stund í vinnunni.
Mynd: Geir Mogen/NTNU
Info.
Anders Jahre-verðlaunin
Sigurður Ingvarsson
siguring@hi.is
Ákveðið hefur verið að norsku
prófessorarnir Edvard I. Moser og
May-Britt Moser hljóti Anders Jahre-
verðlaunin í líf- og læknisfræði
árið 2011. Þau starfa við Tækni- og
náttúruvísindaháskólann í Þránd-
heimi og við Kavli-stofnunina í
taugakerfisvísindum. Edvard og May-
Britt fá verðlaunin fyrir brautryðjandi
rannsóknir á byggingu og starfsemi
taugakerfisins í tilraunadýrum,
sérstaklega fyrir uppgötvanir á áður
óþekktum heilafrumum (grid cells) sem
eru mikilvægar fyrir þrívíddarskyn og
minni.
Rannsóknaparið og samstarfsfólk
þeirra hafa uppgötvað og lýst áður
óþekktum frumum sem vinna úr
upplýsingum og miðla þeim áfram, en
það gerir lífverum kleift að staðsetja
sig, að skynja og muna í þrívídd.
Þessar frumur eru hluti af dreifikerfi
sem tengir upplýsingar og miðlar
þeim milli mikilvægra hluta heilans.
Uppgötvanimar hafa vakið heimsathygli
á fræðasviðinu og auka skilning á
heilastarfsemi, einkum á því hvernig
heilafrumur vinna úr upplýsingum og
miðla þeim áfram.
Vísindamennirnir hafa meðal annars
fengið fjárhagslegan stuðning frá Kavli-
samtökunum og Norska rannsóknaráðinu
til að byggja upp öflugt rannsóknasetur
í Þrándheimi þar sem vísindamenn
víðsvegar að úr heiminum starfa. Nánari
upplýsingar um rannsóknirnar má finna
á vefsíðunni www.ntnu.no/cbm/
Anders Jahre-verðlaunin til yngri
vísindamanna árið 2011 hljóta
prófessoramir Johanna Ivaska,
Háskólanum í Turku, og Soren
Paludan, Árósaháskóla. Johanna fær
verðlaunin fyrir rannsóknir á dreifingu
krabbameinsfruma innan líkamans og
Soren fyrir rannsóknir á varnarkerfi
líkamans gegn veirusýkingum.
Hver var Anders Jahre?
Norðmaðurinn Anders Jahre stofnaði
sjóð árið 1960 sem ætlað er að efla
rannsóknir í líf- og læknisfræði innan
Norðurlandanna og eru verðlaunin þau
stærstu í rannsóknum á þessu sviði
á Norðurlöndunum. Háskólinn í Osló
veitir verðlaunin og er upphæðin ein
milljón norskra króna. Einnig eru veitt
aukaverðlaun úr sjóðnum til yngri
vísindamanna. Fimm manna valnefnd
með fulltrúum læknadeilda háskóla
frá hverju Norðurlandanna vinnur úr
tilnefningum og velur verðlaunahafa.
Öllum virkum prófessorum við lækna-
deildir háskóla á Norðurlöndunum er
boðið að senda tilnefningar til formanns
valnefndar, sem er prófessor Ole M.
Sejersted á Institute for Experimental
Medical Research, Ullevál University
Hospital, Osló.
Anders August Jahre (1891-1982)
var lögfræðimenntaður norskur auðkýf-
ingur sem fékkst við skipaútgerð og
samgöngumál, en er ef til vill best
þekktur fyrir hvalveiðiútgerð frá
Sandefjörð og vinnslu á hvalaafurðum.
Hann fékk margvíslega viðurkenningu
og var heiðraður í Noregi og víðar.
Hann var meðal annars útnefndur
heiðursdoktor fyrir stuðning sinn
við vísindastörf og uppbyggingu við
Oslóarháskóla. Anders Jahre studdi
einnig ýmis málefni á sviði menningar
og velferðar.
LÆKNAblaðið 2011/97 489