Læknablaðið - 15.09.2011, Blaðsíða 12
RANNSÓKN
Tafla I. Samanburður á algengi einkenna milli 1990 og 2007.
1990 2007
iá (n) nei (n) já % já (n) nei (n) já % p-giidi
1. Píp/surg 523 2380 18,0 144 855 14,4 0,011
1.1 Mæöi, píp/surg* 271 252 51,8 101 43 70,4 <0,0001
1.2 Pip/surg án kvefs‘ 334 189 63,9 103 41 71,5 0,015
2. Vaknað meö þyngsli 340 2563 11,7 161 838 16,1 <0,0001
3. Vaknað vegna mæðikasts 44 3859 1,5 39 960 3,9 <0,0001
4. Vaknað vegna hóstakasts 601 2302 20,7 252 747 25,2 0,0015
5. Astmakast 64 2839 2,2 67 932 6,7 <0,0001
6. Nota astmalyf 70 2833 2,4 72 927 7,2 <0,0001
7. Ofnæmi í nefi 517 2386 17,8 293 706 29,3 <0,0001
"Einungis svarað af þeim sem svöruðu já við spurningu 1.
spurningalista um einkenni frá öndunarfærum og notkun astma-
lyfja á síðustu 12 mánuðum fyrir rannsóknina. Þetta var hluti
af Evrópurannsókninni Lungu og heilsa I (www.ecrhs.org). Að-
ferðafræði þeirrar rannsóknar og niðurstöður frá íslandi hafa
áður verið birtar.10
B. Seinni hluti rannsóknarinnar var hliðarrannsókn við alþjóð-
lega fæðuofnæmisrannsókn, EuroPrevall (www.europrevall.org),
og eingöngu framkvæmd hér á landi. Rannsóknarhópurinn var
valinn af handahófi úr þjóðskrá af höfuðborgarsvæðinu. Auk
spuminga um fæðuofnæmi var þátttakendum í Europrevall sendur
sami spurningalisti og í Evrópurannsókninni 1990 um einkenni
frá öndunarfærum og notkun astmalyfja. Spurningarnar voru
sendar út sumarið 2007. í úrvinnslu gagna við þessa rannsókn
er einungis notast við svör þeirra sem voru á aldrinum 20-44
ára þegar þeir svöruðu spurningalistanum. Rannsókninni hefur
áður verið lýst."
Spurningalisti: Spurningalistinn var þýddur af aðstandendum
Evrópurannsóknarinnar og þýddur aftur yfir á ensku og síðan
borinn saman við frumútgáfuna. I spurningalistanum voru sjö
spurningar um einkenni frá öndunarfærum og notkun astmalyfja
á síðustu 12 mánuðum fyrir rannsóknina (fylgiskjal 1).
Fylgiskjal 1.
Vinsamlogast svaraöu spurnlngunum með því aö krossa I viöelgandi reitl. Ef þú ert i vafa merktu þá viö „Nel“. Nei 11. Hefur þú einhvern tlma slöustu 12 mánuöi tekiö eftir plpi (ýli) eöa surgi fyrir brjósti? | Já □
Ef svarið er “Nel" er spurningum 11.1 og 11.2 sleppt. 11.1 Hefur þú fundiö fyrir einhverri mæöi samfara plpi eöa surgi? Nei □ Já □
11.2 Hefur þú tekiö eftir svona plpi eöa surgi án þess aö þú værir meö kvef? Nei □ Já □
12. Hefur þú einhvern tima slöustu 12 mánuöi vaknaö meö bvnasli fvrir briósti? Nei □ Já □
13. Hefur þú einhvern tlma slöustu 12 mánuöi vaknaö veana mæöikasta? Nei □ Já □
14. Hefur bú einhvern tlma slöustu 12 mánuöi vaknaö veana hóstakasta? Nei □ Já □
15. Hefur bú fenaiö astmakast á slöustu 12 mánuöum? Nei □ Já □
16. Notar þú einhver astmalyf núna (þar á meöal úöalyf)? Nei □ Já □
17. Ert þú meö ofnæmi I nefi af einhverju tagi, þar meö taliö frjókvef (gróöurofnæmi)? Nei □ Já □
Tölfræði: Tölfræðipróf fyrir venslatöflur voru framkvæmd í
Graphpad Instat 3 og p-gildi reiknuð með Fisher's exact tvíhliða
prófi og vikmörk voru 95%. Einkenni eftir aldurshópum voru
reiknuð með Chi-square prófi fyrir tilhneigingu. Krosstengsl
og líkindahlutföll (Odds Ratio; OR) voru reiknuð með Mantel-
Haenzel prófi og p-gildi þeirra með Pearson Chi-square prófi,
bæði framkvæmd með SPSS 16.0. (SPSS Inc, Chicago, USA).
Samþykki fyrir rannsóknunum var fengið hjá Vísindasiðanefnd
og Persónuvernd.
Niðurstöður
Þátttaka og svarhlutfall: I Evrópurannsókninni Lungu og heilsa
bárust svör frá 2903 manns og var svarhlutfallið 80,6%. Þar af voru
51,2% konur. í EuroPrevall rannsókninni voru 2313 á aldrinum
20-44 ára og bárust svör frá 999 (43,2%). Þar af voru 56,5% konur.
Vegna lægra svarhlutfalls árið 2007 var kannað hvort hlutfall
jákvæðra svara væri annað hjá þeim sem svöruðu strax en hjá þeim
sem svöruðu eftir áminningu. Marktækt fleiri konur svöruðu strax
en eftir fyrstu og aðra áminningu, og marktækt fleiri svarenda
sem svöruðu strax höfðu píp og surg. Einnig lýstu marktækt
fleiri ofnæmi í nefi meðal þeirra sem svöruðu eftir áminningu.
Enginn munur var á svörum við öðrum spurningum né algengi
astma eða lyfjanotkunar eftir því hvort spurningalistanum var
svarað strax eða eftir áminningu. í ljósi lakari þátttöku árið 2007
er þó ljóst að taka þarf meginniðurstöðum rannsóknarinnar með
vissum fyrirvara.
Algengi einkenna. I rannsókninni árið 1990 kváðust 18,0%
hafa tekið eftir pípi (ýli) eða surgi fyrir brjósti, en marktækt færri
svöruðu þeirri spurningu játandi 2007, eða 14,4% (p=0,01) (tafla I).
Með þremur spurningum var kannað hvort öndunarfæraeinkenni
hefðu truflað svefn síðustu 12 mánuði. Alls kváðust 11,7%
hafa vaknað með þyngsli fyrir brjósti 1990 en 16,1% árið 2007
(p<0,0001). Þeir sem kváðust hafa vaknað vegna mæðikasta voru
1,5% árið 1990 en 3,9% árið 2007 (p<0,0001). Þeir sem sögðust
hafa vaknað vegna hóstakasts voru 20,7% árið 1990 en 25,2%
árið 2007 (p=0,0015).
Árið 1990 sögðust 2,2% hafa fengið astmakast, 2,4% notað
astmalyf og 17,8% haft ofnæmi í nefi á síðustu 12 mánuðum.
Samsvarandi tölur fyrir árið 2007 voru 6,7%, 7,2% og 29,3%.
464 LÆKNAblaðið 2011/97