Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 53
LYFJASPURNINGIN B12-vítamín - hvernig á að gefa það og hversu oft? Elín I. Jacobsen lyfjafræöingur, verkefnastjóri Miðstöðvar lyfjaupplýsinga Landspítala elinjac@landspitali.is Einar S. Björnsson meltingarlæknir og formaður lyfjanefndar Landspítala einarsb@landspitali. is Höfundar taka fúslega við athugasemdum frá lesendum um pistiana og önnur lyfjatengd efni. Heilsugæslulæknir sendi okkur erindi vegna tilmæla sem honum bárust frá Sjúkratryggingum íslands um að velja ódýrasta lyfjaform B12-vítamíns handa sjúklingum sínum. Erindið hljóðar svona: Ég vtir nð velta fyrir tnér af hverju svo nrnrgir á íslandi fá B12-sprautur mánaðarlega eða með tveggja mánaða tnillibili (fymst varla nokkur vera á þriggja mánaða fresti eins og ég vandist þegar ég var að vintta í Svíþjóð fyrir 17 árum! Hvað hefyr eiginlega breyst?) Er "hard scientific proof" á bak við þetta eða er þetta tilfymingaatriði? Eins er sjaldgæft hér á landi að B12-vítamín sé gefið í töfluformi, hvernig stendur á því og hver er munurinn á viðhaldstneðferð með B12 per os og i.m.? B12-vítamín gegnir mikilvægu hlut- verki í myndun DNA og starfsemi tauga. Skortur getur valdið margvíslegum blóð-, tauga- og geðrænum kvillum og skiptir máli að greina þá og meðhöndla snemma í mörgum tilfellum. Skortur á B12 getur orðið vegna sjúkdóma, svo sem skerts frásogs vegna blóðkornafárs (pernicious anemia), magavisnunar (atrophic gastritis), glútenofnæmis og brottnáms maga! Mikilvægt er að rannsaka or- sakir B12-skorts, til að mynda með magaspeglun og sýnatöku frá maga og skeifugörn, og hefja ekki meðferð fyrr en helstu orsakir hafa verið útilokaðar. Frásog B12-vítamíns frá meltingarvegi gerist með tvennum hætti. Annars vegar er um virkan flutning að ræða yfir frumuhimnur. Innri þáttur (intrinsic factor) sem myndast í maga binst B12 í skeifugörn. Efnasambandið sem myndast frásogast með virkum flutningi í neðri hluta smágirnis. Komið hefur í ljós önnur frásogsleið sem er óháð innra þætti og því að smágirni sé starfandi. Þessi leið er óvirkur flutningur yfir frumuhimnur og á sér stað á nokkrum stöðum í meltingarvegi. Talið er að um 1% af frásogi B12 verði með þessum hætti.'-2 Fjöldi rannsókna hefur leitt lfkur að því að B12 um munn sé jafngilt lyfjagjöf í vöðva. í kerfisbundnu yfirliti Cochrane er ályktað að B12-vítamín í töfluformi í háum lífeðlisfræðilegum skömmtum, 1-2 mg á dag, gefi sama árangur og lyfjagjöf í vöðva, jafnvel hjá sjúklingum með blóðkomafár eða sem hafa gengist undir skurðaðgerð á maga og skeifugörn. Tvær slembaðar viðmiðunarrannsóknir báru saman gjöf á B12, 1-2 mg á dag um munn og 1 mg í vöðva einu sinni í mánuði sem viðhaldsmeðferð hjá sjúklingum með greindan B12-skort og kóbalamín í sermi <160 pg/ml (118 pmól/L). Hækkun á kóbalamíni í sermi var talin jafngild í báðum rannsóknum sem og bati, meðal annars á tilfinningaglöpum (paresthesia), óregluhreyfingu (ataxia) og minnisleysi. Höfundar mæla með því að hefja meðferð með töflum og fylgja vel eftir með mælingum og klínísku mati. Þeir sem ekki fá bata ættu að fá lyfjagjöf í vöðva. Annar möguleiki væri að hefja meðferð með lyfjagjöf í vöðva en viðhaldsmeðferð í töfluformi.2 Hvernig sem lyfið er gefið er eftirfylgni meðferðar þó mikilvægust.4 Til að svara spurningu heilsugæslu- læknisins er mjög mismunandi í heimildum hvort mælt er með viðhalds- meðferð í vöðva einu sinni í mánuði eða á þriggja mánaða fresti!'2 Breskar og kanadískar leiðbeiningar mæla með 1 mg þrisvar í viku í tvær vikur og síðan 1 mg á þriggja mánaða fresti ef engin taugaeinkenni eru til staðar. Séu einkenni til staðar skal gefa 1 mg annan hvern dag þar til einkenni ganga yfir og síðan 1 mg á tveggja mánaða fresti.3 Rannsóknir staðfesta árangur lyfjagjafar á þriggja mánaða fresti.5 Betolvex® töflur kosta 13.089 kr. á ári. Athygli vekur að sama sérlyf kostar í dag 4.900 kr. í Svíþjóð. Miðað við þriggja mánaða viðhaldsskammt í vöðva kostar hýdroxókóbalamín (Vibeden®) 12.560 kr. og cýanókóbalamín (Betolvex®) 2.062 kr., samkvæmt lyfjaverðskrá fyrir september 2011. Þá er ótalinn sá kostnaður sem felst í að gefa lyfið á göngudeild eða heilsugæslustöð. Samantekt: Læknar ættu að vita af möguleikanum B12-vítamín um munn sem viðhaldsmeðferð. Margar rannsóknir eru til sem staðfesta árangur meðferðar um munn. Við fundum engar rannsóknar sem sýna að viðhaldsmeðferð í vöðva sé nauðsynleg oftar en á þriggja mánaða fresti. Heimildir 1. Oh R, Brown DL. Vitamin B12 deficiency. Am Fam Physician 2003; 67:979-86. 2. Vidal-Alaball J, Butler CC, Cannings-John R, et al. A. Oral vitamin B12 versus intramuscular vitamin B12 for vitamin B12 deficiency. Cochrane Database Syst Rev 2005; 3: CD004655. 3. Anonymous. Oral or intramuscular vitamin B12. Drugs Ther Bull 2009; 47:19-21. 4. Carmel R. How I treat cobalamin (vitamin B12) deficiency. Blood 2008; 112:2214-21. 5. Bastrup-Madsen P, Helleberg-Rasmussen I, Norregaard S, Halver B, Hansen T. Long term therapy of pemicious anaemia with the depot cobalamin preparation betolvex. Scand J Haematol.1983; 31:57-62. LÆKNAblaðið 2011/97 565
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.