Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR Mikilvægt að hafa nákvæmt greiningartæki - segir Bertrand Lauth geðlæknir ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Greiningarviðtalið K-SADS-PL er hálf-staðlað tæki til að safna saman sem áreiðanlegustum upplýsingum og greina einkenni og raskanir hjá börnum og unglingum," segir Bertrand Lauth geðlæknir sem varði í sumar doktorsritgerð sína við læknadeild Háskóla íslands sem nefndist Greiningarviðtal vegna lyndisraskana og geðklofa hjá grunnskólabömnm - útgáfa fyrir núverandi lotu og yfir ævilangt tímabil (K-SADS-PL): Menningarleg aðlögun og athugun á réttmæti t klíntsku þýði íslenskra tittglinga. „Greiningarviðtalið er alþjóðlegt tæki sem er gríðarlega mikið notað við rannsóknir og því mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa útgáfu sem er löguð að okkar menningarlegu aðstæðum hér á íslandi," segir Bertrand. „Margar rannsóknargreinar sem birtar eru í dag notast við þetta tæki." Bertrand Lauth er fæddur árið 1961 í Frakklandi. Hann fékk læknis- og sérfræðimenntun sína í Lille og í París og útskrifaðist sem sérfræðingur í geðlækningum og barna- og unglingageðlækningum árið 1989. Hann starfaði í París frá 1989- 1998 sem sérfræðingur á Fondation Vallée háskólasjúkrahúsinu og sem fagstjóri barnasviðs hjá AFAR- endurmenntunarstofnuninni. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í barna- og unglingageðlækningum á barna- og unglingageðdeild Landspítalans frá 1998. Hann er einnig stundakennari við HÍ síðan 1998 og aðjúnkt frá 2001. Hann hóf doktorsnám við læknadeild HI árið 2003. Bertrand er kvæntur Hönnu Guðlaugu Guðmundsdóttur listfræðingi og eiga þau þrjár dætur sem heita Jóhanna Clara, Mathilda Evelyne og Magdalena. Vantaði greiningartæki „Markmið ritgerðarinnar var að vinna að þvermenningarlegri aðlögun á íslandi á greiningarviðtalinu og jafnframt að sannreyna áreiðanleika þýðingarinnar, að meta notagildi og áhrif þess að innleiða hálf-staðlað viðtal á legugeðdeild fyrir unglinga, og meta bæði samleitni- og fráleitniréttmæti á algengustu grein- ingum sem komu fram í úrtakinu: alvarlegri geðlægð, athyglisbresti með ofvirkni, mótþróa-þrjóskuröskun, félagsfælni, aðskilnaðarkvíðaröskun og almennri kvíðaröskun. Onnur markmið rannsóknarinnar voru að meta samleitniréttmæti ásamt næmi og sérhæfi viðmiðana sem eru notuð í skimunarhluta viðtalsins, og þá að skoða samræmi og samkvæmni milli klínískra upplýsinga sem koma frá unglingum og foreldrum þeirra." Greiningarviðtalið er mikið að vöxtum, um 190 blaðsíður, og getur tekið allt að fjóra klukkutíma að framkvæma það. „Það er auðvitað misjafnt og fer eftir því hversu mikið er að hjá viðkomandi einstaklingi. Síðan þarf að vinna úr niðurstöðunum áður en greiningin liggur fyrir. Þetta er margþætt greining þar sem skorað er fyrir hverju einkenni fyrir sig til að meta hvort viðkomandi uppfyllir ákveðin greiningarviðmið eða ekki. Ahrif einkenna sem greiningin dregur fram eru síðan metin gagnvart, skóla, heimili og fjölskyldu og jafnöldrum til að fá fram sem skýrasta mynd og átta sig á alvarleika þeirra. Fyrsti hluti viðtalsins er skimunarviðtal þar sem skimað er fyrir ýmsum þáttum og ef ekkert kemur fram þarf ekki að fara lengra inn í það. Hluti rannsóknar minnar var einmitt að meta réttmæti skimunarspurninganna. En skimunin getur sparað okkur mikinn tíma." Bertrand segir að hann hafi ákveðið að fara í þetta verkefni vegna þess hve mikil þörf væri fyrir slíkt greiningartæki. „Ég var svo heppinn að fá styrk frá Rannsóknarsjóði St. Jósepsspítala og það fleytti þessu verkefni af stað á sínum tíma. Síðan kom í ljós að réttmætisrannsókn var nauðsynleg og fleiri aðilar styrktu þetta verkefni. Upphaflega stóð valið á milli fleiri greiningartækja en þetta varð fyrir valinu þar sem það nýtist mjög vel bæði til rannsókna og klínískrar vinnu og er í dag það greiningartæki sem flestir nota um allan heim. Hér á íslandi er þetta notað af mörgum fagaðilum, það er orðið eðlilegur hluti af venjubundnu matsferli sem notað er fyrir sjúklinga á bama- og unglingageðdeild Landspítalans en einnig á mörgum öðrum greiningar- og rannsóknarstöðvum, í skólasálfræðiþjónustu og hjá sjálfstætt starfandi fagaðilum. Við Páll Magnússon sálfræðingur höfum þjálfað marga fagaðila í notkun tækisins, svo notkunin er alltaf að verða útbreiddari. Þá má líka nefna að við höfum nýlega verið beðnir um að þjálfa fagfólk í notkun tækisins á Norðurlöndunum. Þvermenningarleg aðlögun Hin þvermenningarlega aðlögun felst meðal annars í því að viðtalið er þýtt úr ensku yfir á íslensku og svo þýðir annar þýðandi það aftur yfir á 548 LÆKNAblaðið 2011/97 >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.