Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 19
RANNSÓKN Tafla I - Framhald að hamla notkun læknisþjónustunnar. Þá er athugað hvort neikvæð viðhorf og neikvæð reynsla af læknisþjónustunni tengist frestun þjónustunnar. Eins er athugað hvort tengsl við lækni og þjónustustað, vegalengd og ferðatími á þjónustustaðinn, afsláttarkort og fyrri útgjöld vegna heilbrigðisþjónustu tengist frestun hennar. Jafnframt er athugað hvort þeir sem eiga við langvinna sjúkdóma og örorku að glíma fresti frekar ferð til læknis en aðrir. Að lokum er lagt mat á hvaða þættir skipta mestu þegar leitað er skýringa á frestun læknisþjónustunnar. Efniviður og aðferðir Rannsóknin byggir á landskönnuninni Heilbrigði og aðstæður íslendinga I sem fram fór haustið 2006.22,23 íslenskir ríkisborgarar á aldrinum 18-75 ára og búsettir á íslandi voru valdir með slembiaðferð úr þjóðskrá. Langstærstur hluti spuminga í listanum var forprófaður og prófaður í fyrri heilbrigðiskönnunum meðal Islendinga.5,24 Framkvæmd póstkönnunarinnar fylgdi svokallaðri heildaraðferð (Total Design Method, TDM) sem náð hefur betri heimtum í póstkönnunum en eldri aðferðir.25 í samræmi við TDM- aðferðina var sendur út spumingalisti allt að þrisvar sinnum á sjö vikna tímabili. Þá var einnig sent út ítrekunar- og þakkarkort viku eftir fyrstu útsendingu spurningalista. f framhaldi af síðustu útsendingu spurningalista samkvæmt TDM-aðferðinni var að auki hringt í alla sem ekki höfðu skilað lista eða neitað að taka þátt. Alls svöruðu 1532 manns könnuninni og svarhlutfall var 60,03%. Lýðfræðileg samsetning svarendahóps og þýðis var mjög áþekk, nema hvað svörun var heldur hærri meðal kvenna en karla og hærri meðal íbúa á landsbyggðinni en íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður voru því vegnar eftir búsetu og kynferði svo þær gæfu réttari mynd af þýðinu.22 Persónuvernd og vísindasiðanefnd veittu leyfi fyrir framkvæmd landskönnunarinnar. Frestun læknisþjónustu var metin með eftirfarandi spurningu: „Þurftir þú að fara til læknis einhvern tíma á síðastliðnum sex mánuðum, en hættir við það eða frestaðir því (já, nei)?" Könnuð voru tengsl frestunar læknisþjónustu við eftirfarandi breytur: Aldur, kynferði, hjúskaparstöðu (gift(ur)/í sambúð, í föstu sambandi/einhleyp(ur), fráskilin(n), ekkja/ekkill), foreldra- stöðu (barn yngra en sex ára, ekki barn yngra en sex ára), atvinnustöðu (ekki í starfi, hlutastarf, fullt starf), atvinnuleysi (atvinnulaus nú, ekki atvinnulaus nú), námsstöðu (í skóla, ekki í skóla), búsetu (höfuðborgarsvæði, landsbyggð), menntun (grunnskóla-, gagnfræða- eða landspróf, sérskóla- eða stúdents- próf, háskólastigspróf), heimilistekjur (árstekjur í krónum), fjárhagserfiðleika (átta atriða kvarði, svo sem að eiga í vandræðum með að borga af reikningum, hafa ekki ráð á matvörum, fatnaði, eða húsbúnaði sem þörf var fyrir; Chronbach’s alpha=0,84), ósveigjanleg hlutverk (fimm þrepa kvarði frá „alls ekki erfitt" til „nánast útilokað" að komast frá daglegum verkefnum ef leita þyrfti læknis), ánægju með síðustu heimsókn til læknis (mjög eða frekar ánægður, hlutlaus, mjög eða frekar óánægður), afstöðu til notkunar fólks á læknisþjónustu (frekar eða mjög mótfallin/n, hlutlaus, frekar eða mjög fylgjandi), hvort viðkomandi hafi heimilislækni, eða fari venjulega á tiltekinn stað þegar leitað er til læknis, vegalengd (í kílómetrum) og ferðatíma (í mínútum) til þess læknis eða heilsugæslustöðvar sem viðkomandi notar oftast, heildarútgjöld fjölskyldunnar til heilbrigðismála á ársgrundvelli Frestun/niðurfelling heimsóknar % (fjöldi) Phi/ Oramér’s V P* Ósveigjanleg hlutverk (Að komast frá daglegum verkefnum) Ekki erfitt 16,7(172/1031) Dálítið erfitt 31,7(71/224) 0,19 0,00 Nokkuð eða mjög erfitt 36,3(78/215) Ánægja með siðustu læknisheimsókn Óánægð(ur) 45,6(52/114) Hlutlaus 31,8(68/214) 0,21 0,00 Ánægð(ur) 17,4 (186/1071) Afstaða til notkunar læknisþjónustu Neikvæð 10,0 (1/10) Hlutlaus 21,3(32/150) 0,02 0,66 Jákvæð 21,9(283/1294) Hefur heimilislækni Já 21,4(231/1081) Nei 23,1 (90/389) -0,02 0,47 Fer á tiltekinn stað þegar leita þarf til læknis Já 21,2(250/1178) Nei 24,7 (71/288) -0,03 0,21 Vegalengd til læknis Stutt (<20 kílómetrar) 21,6(294/1358) Löng (>20 kílómetrar) 20,2 (18/89) -0,01 0,75 Ferðatími til læknis Stuttur (<20 mínútur) 21,8(292/1337) Langur (>20 mínútur) 20,3 (25/123) -0,01 0,70 Heildarútgjöld fjölskyldu til heilbrigðismála (í þúsundum króna á ári) 0-50,0 15,7(50/319) 50,1-93,7 23,7(75/317) 93,8-142,0 19,8(64/323) 0,10 0,01 142,1+ 26,4(83/314) Heildarútgjöld fjölskyldu til heilbrigðismála (% af fjölskyldutekjum) 0-1,04 13,8(39/283) 1,05-1,83 22,7 (64/282) 1,84-3,01 18,6 (52/279) 0,17 0,00 3,02+ 32,5 (92/283) Afsláttarkort vegna komugjalda Já 22,3 (48/215) Nei 21,7(274/1263) 0,01 0,84 Langvinnir sjúkdómar eða kvillar Enginn 16,8 (117/697) Einn 22,4(71/317) Tveir 23,1 (43/186) 0,14 0,00 Þrír eða fleiri 31,7 (92/290) Örorka (75%) Já 33,8 (24/71) Nei 21,2 (279/1318) 0,07 0,01 a p-gildi vísar til sambands milli skýringarbreytu (til dæmis aldurs) og frestunar/ niðurfellingar heimsóknar LÆKNAblaðið 2011/97 531
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.