Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 43
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Viljum að sem flestir læknar njóti réttindanna
- um fjölskyldu- og styrktarsjóð
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Það er mikilvægt fyrir lækna að greiða í sjóðinn
til að öðlast réttindi, segir Dóra Lúðvíksdóttir
formaður FOSL, Fjölskyldu og styrktarsjóðs lækna,
og höfðar hún þar sérstaklega til sjálfstætt starfandi
lækna sem þurfa sjálfir að standa skil á greiðslum
til að öðlast full réttindi.
Fjölskyldu og styrktarsjóðurirm varð til við
kjarasamning sjúkrahús- og heilsugæslulækna
árið 2001. Hugmyndin að stofnun sjóðsins kom
upphaflega frá samninganefnd ríkisins og var
hlutverk hans að jafna réttindi í fæðingarorlofi miðað
við fyrri lög, segir Dóra.
Til nánar skýringar segir hún að greiðslum i
sjóðinn sé þannig háttað að vinnuveitandi greiði
0,41% af heildarlaunum hvers læknis en greiðslur
eru ekki dregnar af launum. Séu læknar hins
vegar sjálfstætt starfandi þurfa þeir sjálfir að
greiða í sjóðinn og miðast iðgjöldin þá við reiknað
endurgjald. Þetta á einnig við um þá lækna sem eru
í hlutastarfi á sjúkrahúsi og starfa að hluta sjálfstætt.
Þeir þurfa einnig að greiða í sjóðinn af sjálfstæða
rekstrinum til að öðlast full réttindi. Það er að gefnu
tilefni sem við viljum hvetja sjálfstætt starfandi lækna
til að standa skil á greiðslum í sjóðinn.
Frá 2005 hefur sjóðurinn greitt fæðingarstyrki sem
eru umtalsvert hærri en styrkir annarra stéttarfélaga.
Styrkurinn hefur verið greiddur til barns en ekki
læknis en til athugunar er hvort greiða megi 11/2
styrk ef báðir foreldrar eru læknar. Fullur styrkur
til beggja foreldra þýddi hins vegar að lækka þyrfti
styrkupphæð hjá öllum. Fæðingarstyrkirnir eru
stærstu útgjöld sjóðsins sem við erum stolt af að
standa fyrir, segir Dóra.
Frá árinu 2002 hafa einnig verið veittir styrkir
til félagsmanna vegna óvænts tekjutaps. Þetta
getur verið vegna veikinda læknis, veikinda maka
eða barna. Þessi styrkur hefur reynst mörgum vel
þegar alvarleg veikindi koma upp. Um er að ræða
eingreiðslustyrk eða hlutfall af launum í þrjá mánuði.
Einnig hefur sjóðurinn greitt útfararstyrki frá árinu
2007 til þeirra félagsmanna sem greitt hafa í sjóðinn.
Það hefur sennilega aldrei verið mikilvægara en
einmitt nú að njóta góðra réttinda vegna óvæntra
útgjalda, fæðingar, veikinda eða andláts. Við viljum
auðvitað að sem flestir læknar njóti þeirra réttinda
sem Fjölskyldu-og styrktarsjóðurinn veitir, segir Dóra
Lúðvíksdóttir að lokum.
Astellas mun í haust bjóða heimilislæknum upp á fræðslu
um ýmis vandamál sem snúa að starfsemi þvagvega
Meðal efnis er:
Þvagleki - skilgreining, lifeðlisfræði og lífeðlismeinafræði
Ofvirk þvagblaðra, áreynslu- og bráðaþvagleki hjá konum
- sjúkdómsgreining og meðferð
Aldraðir og þvagleki
Flæðishindrum, ofvirk þvagblaðra og einkenni frá neðri
hluta þvagvega hjá karlmönnum
Efnið hefúr verið þýtt og staðfært í samvinnu við
Guðmund Geirsson, þvagfæraskurðlækni og
Kristínu Jónsdóttur, kvensjúkdómalækni
Nánari upplýsingar veitir Ómar Grétarsson, markaðsfulltrúi Astellas,
simi 824 7023, netfang omar@vistor.is
FRÆÐSLA OG
FYRIRLESTRAR UM
ÞVAGFÆRALÆKNINGAR
Astellas
UROLOGY ACADEMY
LÆKNAblaðið 2011/97 555