Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR
við hjálpumst að og reddum hlutunum
eins og okkur einum er lagið. Ég tel
þó að alltaf sé hægt að bæta verklag
og að við getum bætt uppbyggingu
og sett skýrari verkferla í kringum
okkar starf. Það er eitt af því sem við
í læknaráði Landspítala komum að og
viljum gjarnan þróa áfram í samráði við
framkvæmdastjórn spítalans. Læknaráð
Landspítala er skipað níu læknum og
hvert svið á sér sinn fulltrúa. Þannig
er leitast við að hinar ýmsu sérgreinar
eigi sér talsmann í ráðinu. Hlutverk
læknaráðsins er fyrst og fremst
ráðgefandi gagnvart framkvæmdastjórn
um skipulag og þjónustu lækninga
á spítalanum. Stöðunefnd starfar á
vegum læknaráðs og skilar áliti um
allar umsóknir um auglýstar stöður
sérfræðinga og yfirlækna. Einnig er
læknaráð ráðgefandi um menntun,
fræðslu og vinnuumhverfi lækna og
er fræðslunefnd starfandi á vegum
læknaráðs."
Anna segist ekki hafa sóst eftir
formennsku í læknaráðinu. „Það var
leitað til mín og ég hugsaði mig vel
um. Eitt af því sem réði ákvörðun
minni var einfaldlega að konum er oft
legið á hálsi fyrir að vilja ekki taka
að sér stjómunar- og yfirmannstöður.
Ég hef eiginlega tekið þá afstöðu að
vera ekki sú kona sem bakkar og
segir nei þegar leitað er til mín með
slíkt. Vonandi skapar það líka jákvætt
fordæmi fyrir aðrar konur. Það var
þó ekki meginástæðan fyrir því að
ég ákvað að taka formennskuna að
mér, heldur vil ég gjaman hafa áhrif
á starfsumhverfi mitt og þjónustu við
sjúklingana. Hér er mikið af mjög
hæfu starfsfólki og íslensk læknisfræði
er spennandi vegna þess hversu
víða íslenskir læknar hafa sótt sér
sérfræðimenntun. A Landspítalanum
starfa sérfræðingar sem hafa sótt sína
menntun og starfsreynslu frá mörgum af
helstu sjúkrahúsum, bæði vestanhafs og
austan. Þetta gerir allt starfsumhverfið
meira lifandi og það er sannarlega
gaman að taka þátt í því."
Lheilsugæslan
SALAHVERFI
Heilsugæslulæknir
Heilsugæslan í Salahverfi auglýsir eftir lækni til starfa. Æskilegt er að um sérfræðing í heimilislækningum sé að ræða, en til
greina kemur að ráða lækni í afleysingarstarf til lengri eða skemmri tíma. Æskilegt er að viðkomandi geti verið í fullu starfi,
en hlutastarf kemur einnig til greina.
Heilsugæslustöðin er rekin af Salus ehf. samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið. Sjö heimilislæknar starfa á stöðinni og
sinna hefðbundnum heimilislækningum, mæðra- og ungbarnavernd, en einnig skólaheilsugæslu. Læknar stöðvarinnar geta
starfað á Læknavaktinni utan dagvinnutíma.
Umsóknarfrestur til 24. október n.k.
Upplýsingar um starfið veita læknarnir Böðvar Örn Sigurjónsson og Haukur Valdimarsson í síma 590-3900 eða á netfangið
salus@salus.is
Umsóknir sendist Böðvari Erni Sigurjónssyni, yfirlækni
Heilsugæslunni Salahverfi,
Salavegi 2, 201 Kópavogi
552 LÆKNAblaðið 2011/97