Læknablaðið - 15.01.2013, Qupperneq 3
Framtíð Lækninga-
minjasafns í uppnámi
Safnbyggiiigin er 1266 fcrmetrar og á einum fallegasta stað höfuðborgarsvæðisins í Nesi á Seltjarnanesi.
Stofnandi og eigandi Lækningaminjasafns ís-
lands, Seltjarnarnesbær, tilkynnti mennta- og
menningarmálaráðherra þá ákvörðun bæjar-
stjórnar að endurnýja ekki samning um rekstur
safnsins, en hann rann út þann 31. desember
2012. Læknafélag Islands, menntamálaráðuneytið,
Þjóðminjasafn og Seltjarnarnesbær undirrituðu
samning árið 2007 um byggingu safnsins og var
fyrsta skóflustunga tekin við hátíðlega athöfn í
september 2008. í stofnskrá safnsins frá maí 2009
er Seltjarnarnesbær skilgreindur eigandi þess en
reksturinn skuli skiptast á milli bæjarfélags og
ríkis.
Við efnahagshrunið gerbreyttust kostnaðar-
forsendur við bygginguna og er hún enn ókláruð.
Kostnaður við frágang hennar er áætlaður um
400 milljónir króna samkvæmt útreikningum Sel-
tjarnarnesbæjar.
I bréfi bæjarstjórans Ásgerðar Halldórsdóttur
til menntamálaráðuneytisins er óskað eftir að
ráðuneytið taki yfir rekstur Lækningaminjasafns-
ins frá 1. janúar 2013 og einnig að „ráðuneytið
og Seltjarnarnesbær hefji viðræður um að finna
þeirri byggingu sem hefur verið ætluð undir
Lækningaminjasafn íslands nýtt og verðugt hlut-
verk; hönnun hennar yrði löguð að hinu nýja
hlutverki eftir því sem þörf yrði á, áður en fram-
kvæmdum yrði haldið áfram og lokið."
Læknafélag íslands og Læknafélag Reykja-
víkur lögðu 50 milljónir króna til byggingarinnar
og er sérstaklega tiltekið í samningnum frá 2007
að komi til þess að Seltjarnarnesbær óski eftir
að nýta safnbygginguna undir aðra starfsemi
en Lækningaminjasafn íslands skuli Seltjarnar-
nesbær endurgreiða stofnframlagið uppreiknað
miðað við byggingavísitölu.
Meirihluti stjórnar Lækningaminjasafnsins
ásamt formönnum Læknafélags íslands og
Læknafélags Reykjavíkur, Þjóðminjaverði,
framkvæmdastjóra LÍ og lögfræðingi fundaði
um málið þann 17. desember og sagði Þorbjörn
Jónsson formaður LÍ að fundi loknum að það ylli
vissulega vonbrigðum ef niðurstaða þessa máls
yrði sú að Seltjarnarnesbær treysti sér hvorki til
að standa við samstarfssamninginn frá 2007 né
stofnsamninginn frá maí 2009.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Helgi Már Kristinsson (f. 1973) lagði stund á listmálun
við Listaháskóla íslands og brautskráðist þaðan árið
2002. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar, meðal
annars í Listasafni Reykjavíkur. Jafn-
framt hefur hann stýrt sýningum
og valdi meðal annars saman op-
listamenn, eða þá sem hafa leikið
sér að virkni sjónskynsins í verkum
sínum, á sýningunni Blik á Kjarvals-
stöðum árið 2009. Málverk Helga
Más sýna iðulega einhvers konar
abstrakt samsteypu reglu og óreglu,
þar sem skýrir litir og geómetrísk
form blandast við línuteikningu sem
liðast í allar áttir. Myndheimurinn
virðast ekki eiga sér nokkur takmörk
því hann vísar áfram út fyrir myndflöt
málverkanna. Verkin eru einkum tví-
víð en bera þó með sér lagskiptingu
þar sem valin þemu eru í forgrunni og
önnur í bakgrunni. Þessi leikur með víddir ruglar mann í
ríminu og minnir á stundum á einhvers konar huliðsheim
náttúrunnar, uppstækkaðan eða smækkaðan. Þá vísa
verkin ekki siður í manngert umhverfi, byggingarlist eða
myndmál hönnunar og myndlistar. Linuteikning er ráðandi
og hún minnir á veggjakrot eða kallígrafíu - og hin lekandi
lína listmálarans Jacksons Pollock kemurtil hugar. Linan
skiptir fletinum upp í form og þannig byggj-
ast verkin upp í lögum. Á sýningu sinni,
Keðjuverkun, i D-sal Hafnarhúss árið 2011
kallaðist Helgi Márjöfnum höndum ávið
listasöguna og hversdagslega sjónmenn-
ingu götulistarinnar. Á sýningunni voru
abstraktmálverk á veggjum en fyrir miðjum
sal var eins og litríkt BMX-reiðhjól svifi um
gólf í helíumblöðrum. Fjölbreytt verk voru
á sýningunni, þeirra á meðal #9 2011 (frá
árinu 2011) sem er á forsíðu Læknablaðs-
ins að þessu sinni. Hér eru dæmigerðir
eiginleikar málverka Helga Más sýnilegir,
hinir hreinu og flötu litir, línuteikningin og
geómetrían. Verkið vegur salt á milli popp-
og op-listar í litum og uppbyggingu auk
þess sem það dregur dám af strangflatarlist
og síðast en ekki síst expressjónisma með hinni óstýrilátu
og sjálfstæðu línu sem dansar um yfirborðið.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2013/99 3