Læknablaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR
dægurlögum, mun stíga á stokk að nýju
ásamt hljómsveit og söngkonu og nú með
dagskrá um Njálu í íslenskum dægur-
lögum. Óttar mun svo verða með hádegis-
erindi síðar í vikunni þar sem hann fjallar
um kynlíf í Islendingasögunum.
Læknafélag íslands stendur fyrir mál-
þingi um lögfræðileg álitamál innan lækn-
isfræðinnar og einnig verður hádegis-
fundur um ný lög um heilbrigðisstarfsfólk.
Af öðru efni má nefna málþing á vegum
barnalækna um tilfærslu sjúklinga með
langvinna sjúkdóma frá barnalæknum yfir
til fullorðinslækna. Þessi sjúklingahópur
stækkar og við 18 ára aldur færast þeir á
milli lækna. Talsvert verður fjallað um
verki og verkjameðferð og aukamálþing
á vegum iðnaðarins um tækjabúnað til
að stilla verki. Einnig verður fjallað um
nýjungar í krabbameinsmeðferð, þar
má nefna róbótmeðferð við blöðruháls-
krabbameini. Af allt öðru tagi má nefna
málþing um sjúklinginn og læknislistina
í bókmenntum, en þar leggja læknar og
bókmenntafræðingar saman krafta sína."
Viðbótarmenntun i kynskiptameðferð
„Loks má nefna að þátttaka íslenskra
lækna í Læknadögum hefur verið vaxandi
og í raun má segja að nær allir læknar
sem á annað borð eiga heimangengt mæti.
Frekari vöxtur er því bundinn við aðrar
heilbrigðisstéttir og margt í dagskránni
sem höfða ætti til annarra stétta en lækna.
Þeir sem ekki tilheyra læknastétt geta
keypt sér dagpassa á tiitekin málþing en
geta ekki keypt vikupassa og þeir verða
jafnframt að skrá sig á staðnum, það er
ekki um fyrirframskráningu að ræða fyrir
aðra en lækna. Framtíðarverkefni er einnig
að bjóða upp á styttri dagskrá á ensku og
markaðssetja fyrir erlenda lækna. Þetta er
verkefni Gunnars Bjarna arftaka míns og
ég er viss um að þetta á eftir að vekja áhuga
og draga marga hingað til lands.
Eg á eftir að sjá eftir Læknadögunum
og vil gjarnan koma því að hversu gott
samstarf ég hef átt við Margréti Aðal-
steinsdóttur á skrifstofu Læknafélagsins.
Hún hefur verið mín stoð og stytta í þessu
starfi. Ég mun verða viðloðandi skipulag
næstu Læknadaga og Gunnari Bjarna
innan handar, því reynslan er mikilvæg
en um leið er mikilvægt að hætta áður
en maður verður alveg gróinn í starfinu.
Hvað mín framtíðaráform varðar þá hef
ég fengið mikinn áhuga á meðferð trans-
genderfólks sem ég sinni hér á landi. Ég
stefni á þjálfun og viðbótarmenntun í
kynskiptameðferð í Svíþjóð í vor. Það er
ört stækkandi hópur sem óskar eftir slíkri
meðferð og mikilvægt að sækja sér þekk-
ingu á þessu sviði."
40 LÆKNAblaðið 2013/99