Læknablaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 43
UMFJÖLLUN O G GREINAR
kerfi sem því tengjast með rafrænum
skilríkjum. Læknar sem starfa utan stóru
sjúkraskrárkerfanna munu samt hafa meiri
aðgang að rafrænum lausnum í framtíð-
inni en áður, með rafrænum skilríkjum."
Lilja Sigrún kveðst þess fullviss að
læknar muni taka þessu fagnandi. „Þetta
krefst þess að allir taki þátt og hafi nokkra
þolinmæði meðan kerfið er að komast í
gagnið alls staðar þar sem læknar eru að
vinna. Stofnanirnar sem eru margar og
misstórar þurfa að laga sig að þessu, og
einyrkjar í læknastétt þurfa að koma sér
upp rafrænum skilríkjum sem er reyndar
lítil fyrirhöfn. Vinnu- og tímasparnaður-
inn sem þessu fylgir er mesta hvatningin
Á myndmni cr starfsfólk heil-
brigðisupplýsingasviðs Embættis
landlæknis sem vinnur að nýju
rafrænu lausnunum. Frá vinstri,
fremst: Hólmfríður G. Pálsdóttir
tölvunarfræðingur, Sigríður Har-
aldsdóttir sviðsstjóri, Lilja Sigrún
Jónsdóttir. Miðröðfrá vinstri:
Guðrún Auður Harðardóttir og
Kristín Þorbjörnsdóttir hjúkr-
unarfræðingar. Aftast standa:
Lilja Bjarklind Kjartansdóttir
kerfisfræðingur og Ingi Steinar
Ingason verkefnisstjóri rafrænnar
sjúkraskrár.
fyrir læknastéttina að taka þetta upp. Góð
þátttaka og undirtektir lækna eru for-
senda þess að hægt sé að halda áfram upp-
byggingu slíkrar þjónustu. Við verðum
auðvitað boðin og búin til að aðstoða
við þessa breytingu en flestir læknar eru
ágætlega tölvufærir og munu tileinka sér
þessa nýjung án teljandi vandkvæða."
Árshátíð LR - Nú í Hörpu
Laugardag 26. janúar 2013
Ávarp formanns LR - Steinn Jónsson
Veislustjóri - Ebba Margrét Magnúsdóttir
Mál líðandi stundar - Guðni Ágústsson
Tónlist feðganna Hauks Heiðars Ingólfssonar og Hauks Heiðars Haukssonar
Glæsilegur matseðill og fordrykkur
Hljómsveit kvöldsins - Á móti sól með Magna Ásgeirssyni og Jógvan Hansen
Takið kvöldið frá fyrir ógleymanlega skemmtun
é
LÆKNAblaðið 2013/99 43