Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 48
L O G F R Æ Ð I P I S T I L L 2 Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um. Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Islands DoggP@lis.is Árið 1932 voru lögfest fyrstu heildarlög um lækna, lög nr. 47/1932 um lækningaleyfi, um réttindi og skyldur lækna og annarra, er lækn- ingaleyfi hafa og um skottulækningar. Lögin voru sambærileg norrænni og evrópskri löggjöf þess tíma, samin af Vilmundi Jóns- syni landlækni í samráði meðal annars við Læknafélag íslands. Lögunum var lítið breytt þau liðlega 55 ár sem þau giltu, en af hagkvæmnisástæðum var heiti þeirra breytt árið 1969 í læknalög. Eftir endurskoð- un á níunda áratugnum voru ný læknalög lögfest árið 1988 (nr. 53). Hinn 1. janúar 2013 verða þau tímamót í löggjafarsögu um lækna að læknalög frá 1988 falla brott. Lög um heilbrigöisstarfsmenn nr. 34/2012 koma í þeirra stað. Lagasetn- ingin á sér langan aðdraganda. Frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn var fyrst lagt fram 2009 en Læknafélagi Islands barst fyrst til umsagnar frumvarp sama efnis undir lok síðustu aldar. Lög um heil- brigðisstarfsmenn byggir að stofni til á ákvæðum læknalaga frá 1988, enda hefur tilvísun í læknalög verið í flestum lögum og reglugerðum um aðrar heilbrigðis- stéttir. Ymis ákvæði læknalaga hafa því haft almennt gildi gagnvart öðrum heil- brigðisstéttum. Segja má að læknalög hafi að vissu marki verið grundvallarlög um heilbrigðisstéttir. Rök heilbrigðisyfirvalda fyrir sam- ræmdri heildarlöggjöf hafa aðallega verið þau að laga- og reglugerðarákvæði um heilbrigðisstéttir væru í ýmsu úrelt, auk þess sem í þeim væri ósamræmi, til dæmis varðandi það hvaða heilbrigðisstéttir gátu starfað sjálfstætt og hverjar störfuðu á ábyrgð annarrar heilbrigðisstéttar, hvaða heilbrigðisstéttir máttu hafa aðstoðarmenn og hverjar ekki, hvaða heilbrigðisstéttir þurftu að halda skýrslur um störf sín og hverjar ekki. Megintilgangurinn með rammalöggjöf um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna var sagður sá að samræma og einfalda ákvæði um heil- brigðisstarfsmenn og tryggja gæði heil- brigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur til heilbrigðis- starfsmanna. Ákvæði um heilbrigðisstarfs- menn skyldi því gera markvissari og hnit- miðaðri en áður, fella brott ónauðsynlegar takmarkanir á starfssviði heilbrigðisstétta og færa þau til nútímahorfs þannig að heilbrigðisþjónustan og störf og starfssvið heilbrigðisstétta geti þróast með eðlilegum hætti innan ramma löggjafar. I síðasta pistli var athygli lækna vakin á tveimur mikilvægum breytingum sem verða 1. janúar 2013 við gildistöku laga um heilbrigðisstarfsmenn. Annars vegar þeirri breytingu að eftir gildistöku laganna er óheimilt með öllu að reka eigin starfsstofu heilbrigðisstarfsmanna, þar á meðal lækna, eftir að 76 ára aldri er náð. Hins vegar þeirri breytingu að reglur um auglýsingar heilbrigðisstarfsmanna, þar á meðal lækna, á starfsemi sinni eru rýmkaðar verulega. Hvort ráðherra muni takmarka heimild til auglýsinga með reglugerð liggur ekki fyrir. Ljóst er þó að slík reglugerð mun að minnsta kosti ekki öðlast gildi um áramót, hvað sem síðar verður. Önnur nýmæli sem felast í lögum um heilbrigðisstarfsmenn eru: Sett eru ein samræmd rammalög um heilbrigðisstarfsmenn í stað 14 sérlaga og laga um starfsheiti og starfsréttindi heil- brigðisstétta. Af þessu leiðir að ráðherra setur reglugerðir um skilyrði sem upp- fylla þarf til að hljóta leyfi til að nota heiti löggiltrar heilbrigðisstéttar og starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi. Starfssvið heilbrigðisstétta er ákveðið á grundvelli þekkingar og hæfni með til- liti til hagsmuna sjúklinga og ákvæði um takmarkanir á starfsréttindum felld brott. Heilbrigðisstarfsmaður skal virða fag- legar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns, þegar við á. Undirstrikað er að óheimilt er að starfa undir áhrifum áfengis eða vímuefna og heilbrigðisstofnunum heimilað að setja reglur um bann við notkun áfengis og vímuefna í tiltekinn tíma áður en vinna hefst. Heilbrigðisstarfsmenn bera ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar sem starfa und- ir þeirra stjórn hafi næga hæfni og þekk- ingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar til að sinna störfum sem þeir fela þeim. Heilbrigðisstarfsmenn skulu gæta þess að sjúklingar, sjúkratryggingar eða aðrir verði ekki fyrir óþarfa útgjöldum eða óþægindum. Með reglugerð, settar að fengnum til- lögum landlæknis og umsögn viðkomandi fagfélags, getur ráðherra ákveðið að til- greindri meðferð sé aðeins beitt af heil- brigðisstarfsmönnum, nánar tilgreindum heilbrigðisstéttum eða þeim sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi landlæknis. Jafn- framt er heimilt að banna tiltekna meðferð. Vegna þessara breytinga á lagaum- hverfi heilbrigðisstarfsmanna þarf að setja reglugerð um hverja og eina löggilta heil- brigðisstétt, en þær eru 33 samtals. Jafn- margar reglugerðir hafa nú í desember verið staðfestar af velferðarráðherra. Þar á meðal er reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Ákvæði reglugerðarinnar um veitingu almenns lækningaleyfis og sérfræðileyfa lækna eru að mestu óbreytt frá eldri reglugerð nr. 305/1997. Önnur ákvæði reglugerðarinnar byggja eðlilega á ákvæðum laganna sjálfra, svo sem IV. kaflinn um réttindi og skyldur lækna. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsmenn kynni sér vel hina nýju löggjöf. Lækna- félag íslands hefur ákveðið að efna til sérstaks kynningarfundar um lög um heil- brigðisstarfsmenn á Læknadögum 2013 og verður hann haldinn kl. 12-13 mánudaginn 21. janúar 2013. 48 LÆKNAblaðið 2013/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.