Læknablaðið - 15.01.2013, Page 48
L O G F R Æ Ð I
P I S T I L L 2
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um.
Ný lög um
heilbrigðisstarfsmenn
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Islands
DoggP@lis.is
Árið 1932 voru lögfest fyrstu heildarlög um
lækna, lög nr. 47/1932 um lækningaleyfi, um
réttindi og skyldur lækna og annarra, er lækn-
ingaleyfi hafa og um skottulækningar. Lögin
voru sambærileg norrænni og evrópskri
löggjöf þess tíma, samin af Vilmundi Jóns-
syni landlækni í samráði meðal annars
við Læknafélag íslands. Lögunum var lítið
breytt þau liðlega 55 ár sem þau giltu, en
af hagkvæmnisástæðum var heiti þeirra
breytt árið 1969 í læknalög. Eftir endurskoð-
un á níunda áratugnum voru ný læknalög
lögfest árið 1988 (nr. 53).
Hinn 1. janúar 2013 verða þau tímamót
í löggjafarsögu um lækna að læknalög frá
1988 falla brott. Lög um heilbrigöisstarfsmenn
nr. 34/2012 koma í þeirra stað. Lagasetn-
ingin á sér langan aðdraganda. Frumvarp
til laga um heilbrigðisstarfsmenn var fyrst
lagt fram 2009 en Læknafélagi Islands
barst fyrst til umsagnar frumvarp sama
efnis undir lok síðustu aldar. Lög um heil-
brigðisstarfsmenn byggir að stofni til á
ákvæðum læknalaga frá 1988, enda hefur
tilvísun í læknalög verið í flestum lögum
og reglugerðum um aðrar heilbrigðis-
stéttir. Ymis ákvæði læknalaga hafa því
haft almennt gildi gagnvart öðrum heil-
brigðisstéttum. Segja má að læknalög hafi
að vissu marki verið grundvallarlög um
heilbrigðisstéttir.
Rök heilbrigðisyfirvalda fyrir sam-
ræmdri heildarlöggjöf hafa aðallega verið
þau að laga- og reglugerðarákvæði um
heilbrigðisstéttir væru í ýmsu úrelt, auk
þess sem í þeim væri ósamræmi, til dæmis
varðandi það hvaða heilbrigðisstéttir gátu
starfað sjálfstætt og hverjar störfuðu á
ábyrgð annarrar heilbrigðisstéttar, hvaða
heilbrigðisstéttir máttu hafa aðstoðarmenn
og hverjar ekki, hvaða heilbrigðisstéttir
þurftu að halda skýrslur um störf sín og
hverjar ekki. Megintilgangurinn með
rammalöggjöf um réttindi og skyldur
heilbrigðisstarfsmanna var sagður sá að
samræma og einfalda ákvæði um heil-
brigðisstarfsmenn og tryggja gæði heil-
brigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með
því að skilgreina kröfur til heilbrigðis-
starfsmanna. Ákvæði um heilbrigðisstarfs-
menn skyldi því gera markvissari og hnit-
miðaðri en áður, fella brott ónauðsynlegar
takmarkanir á starfssviði heilbrigðisstétta
og færa þau til nútímahorfs þannig að
heilbrigðisþjónustan og störf og starfssvið
heilbrigðisstétta geti þróast með eðlilegum
hætti innan ramma löggjafar.
I síðasta pistli var athygli lækna vakin
á tveimur mikilvægum breytingum sem
verða 1. janúar 2013 við gildistöku laga um
heilbrigðisstarfsmenn. Annars vegar þeirri
breytingu að eftir gildistöku laganna er
óheimilt með öllu að reka eigin starfsstofu
heilbrigðisstarfsmanna, þar á meðal lækna,
eftir að 76 ára aldri er náð. Hins vegar
þeirri breytingu að reglur um auglýsingar
heilbrigðisstarfsmanna, þar á meðal lækna,
á starfsemi sinni eru rýmkaðar verulega.
Hvort ráðherra muni takmarka heimild
til auglýsinga með reglugerð liggur ekki
fyrir. Ljóst er þó að slík reglugerð mun að
minnsta kosti ekki öðlast gildi um áramót,
hvað sem síðar verður.
Önnur nýmæli sem felast í lögum um
heilbrigðisstarfsmenn eru:
Sett eru ein samræmd rammalög um
heilbrigðisstarfsmenn í stað 14 sérlaga og
laga um starfsheiti og starfsréttindi heil-
brigðisstétta. Af þessu leiðir að ráðherra
setur reglugerðir um skilyrði sem upp-
fylla þarf til að hljóta leyfi til að nota heiti
löggiltrar heilbrigðisstéttar og starfa sem
heilbrigðisstarfsmaður hér á landi.
Starfssvið heilbrigðisstétta er ákveðið
á grundvelli þekkingar og hæfni með til-
liti til hagsmuna sjúklinga og ákvæði um
takmarkanir á starfsréttindum felld brott.
Heilbrigðisstarfsmaður skal virða fag-
legar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi
til annars heilbrigðisstarfsmanns, þegar
við á.
Undirstrikað er að óheimilt er að starfa
undir áhrifum áfengis eða vímuefna og
heilbrigðisstofnunum heimilað að setja
reglur um bann við notkun áfengis og
vímuefna í tiltekinn tíma áður en vinna
hefst.
Heilbrigðisstarfsmenn bera ábyrgð á því
að aðstoðarmenn og nemar sem starfa und-
ir þeirra stjórn hafi næga hæfni og þekk-
ingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar til
að sinna störfum sem þeir fela þeim.
Heilbrigðisstarfsmenn skulu gæta þess
að sjúklingar, sjúkratryggingar eða aðrir
verði ekki fyrir óþarfa útgjöldum eða
óþægindum.
Með reglugerð, settar að fengnum til-
lögum landlæknis og umsögn viðkomandi
fagfélags, getur ráðherra ákveðið að til-
greindri meðferð sé aðeins beitt af heil-
brigðisstarfsmönnum, nánar tilgreindum
heilbrigðisstéttum eða þeim sem fengið
hafa til þess sérstakt leyfi landlæknis. Jafn-
framt er heimilt að banna tiltekna meðferð.
Vegna þessara breytinga á lagaum-
hverfi heilbrigðisstarfsmanna þarf að setja
reglugerð um hverja og eina löggilta heil-
brigðisstétt, en þær eru 33 samtals. Jafn-
margar reglugerðir hafa nú í desember
verið staðfestar af velferðarráðherra. Þar á
meðal er reglugerð um menntun, réttindi
og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta
lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Ákvæði
reglugerðarinnar um veitingu almenns
lækningaleyfis og sérfræðileyfa lækna eru
að mestu óbreytt frá eldri reglugerð nr.
305/1997. Önnur ákvæði reglugerðarinnar
byggja eðlilega á ákvæðum laganna sjálfra,
svo sem IV. kaflinn um réttindi og skyldur
lækna.
Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsmenn
kynni sér vel hina nýju löggjöf. Lækna-
félag íslands hefur ákveðið að efna til
sérstaks kynningarfundar um lög um heil-
brigðisstarfsmenn á Læknadögum 2013 og
verður hann haldinn kl. 12-13 mánudaginn
21. janúar 2013.
48 LÆKNAblaðið 2013/99