Læknablaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 42
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Veitir aðgang að lyfjasögu sjúklinga
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
„Þær rafrænu lausnir sem Embætti
landlæknis er að leggja lokahönd á
núna felast í því að læknar geta skoðað
lyfjasögu einstakra sjúklinga í raun-
tíma, afgreitt vottorð og gengið frá
ýmsum skráningum í gegnum tölvu með
rafrænum skilríkjum," segir Lilja Sigrún
Jónsdóttir verkefnisstjóri á heilbrigðis-
upplýsingasviði.
í desember og janúar hafa nokkrir
tugir lækna tekið þátt í prufukeyrslu hins
rafræna umhverfis en að sögn Lilju Sig-
rúnar er stefnt að því að um mánaðamótin
janúar/febrúar verði kerfið tekið í notkun
með þátttöku allra lækna sem þess óska.
Þetta verður tekið í notkun í ákveðnum
þrepum en til að byrja með munu læknar
geta skoðað lyfjasögu sjúklinga sinna raf-
rænt síðustu þrjú ár. „Ein meginbreytingin
er fólgin í því að þetta er aðgengilegt með
rauntímaupplýsingum, læknirinn getur
séð hvaða lyfseðlar eru í lyfjagáttinni
skráðir á viðkomandi sjúkling og hvort
þeir hafa verið afgreiddir, þar með taldir
fjölnota lyfseðlar. Þá getur læknirinn
afturkallað eigin lyfseðla rafrænt í stað
þess að hringja í apótekið eins og þurft
hefur hingað til og ógilt lyfseðla frá öðrum
læknum sem ekki falla að núverandi lyfja-
gjöf sjúklings. Þetta er eitt af mikilvæg-
ustu atriðunum sem auðveldar læknum
mjög að sinna lyfjaávísunum markvisst.
Önnur meginbreyting sem þetta hefur í
för með sér er að þeir læknar sem ekki
hafa aðgang að Sögukerfinu og hafa
hingað til ekki haft aðgang að rafrænni
lyfseðlagjöf, munu hafa fullan aðgang að
nýja kerfinu með rafrænum skilríkjum."
Rafræn skilríki eru forsendan
Rafrænu skilríkin eru forsenda alls að-
gangs að hinu rafræna umhverfi. Það var
niðurstaða áhættumats sem framkvæmt
var að gera þyrfti þessar ítrustu kröfur um
öryggi. Því fylgir sá kostur að þá verður í
framtíðinni hægt að fullnusta þjónustuna
rafrænt, með rafrænni undirskrift skjala.
Lilja Sigrún segir að eftir áramótin verði
farið í átak til að koma rafrænum skil-
ríkjum í hendur sem flestra lækna. „Það
verður hægt að sækja um þau rafrænt og
nálgast þau í bönkum, þau verða afhent á
Læknadögum 2013 nú í janúar og í kjölfar-
ið heimsækjum við stærstu vinnustaðina.
Þeir sem þegar hafa fengið rafræn skilríki
í debetkort sitt geta að notað þau, en við
munum gefa út sérstakt kort fyrir lækna,
þar sem þeir vilja kannski síður vera með
sitt persónulega debetkort á lofti í þessum
tilgangi."
Til að byrja með verður hægt að gefa
út dánarvottorð og ökuleyfisvottorð með
rafrænum hætti. „Um áramótin ganga í
gildi nýjar reglur um endurnýjun ökuleyfa
en gildistími þeirra styttist svo að álag á
lækna mun aukast vegna útgáfu ökuleyfis-
vottorða. Rafræn vottorðagjöf mun gera
læknum kleift að sjá hvort aðrir læknar
hafa þegar gefið út samskonar vottorð
en það hefur borið við að einstaklingar
hafa gengið á milli lækna og ekki hætt
fyrr en þeir hafa fengið það vottorð sem
þeir sóttust eftir. Nú mun læknirinn strax
geta séð hvort annar læknir hefur hafnað
slíkri umsókn. Þá geta komið upp tilfelli
þar sem fleiri en einn læknir þarf að koma
að einu og sama vottorðinu og rafræn
samtenging mun einfalda vinnuumhverfi
læknisins og er einnig mjög tímasparandi.
Fleiri vottorð munu bætast við jafnt og
þétt eftir að kerfið er komið í gagnið."
Miklar öryggiskröfur um aðgang
Lilja Sigrún segir að eðli málsins sam-
kvæmt færist sífellt í vöxt að stofnanir og
einstaklingar innan heilbrigðisgeirans
skrái alls kyns upplýsingar rafrænt sem
síðan berast Embætti landlæknis til úr-
vinnslu og varðveislu. „Rafræn skráning
slíkra gagna gerir okkur kleift að vinna
mun meira í rauntíma með allar upplýs-
ingar, sem er gríðarleg framför, og einnig
að veita viðkomandi stofnunum endurgjöf
um gæði upplýsinga. Samanburður á milli
stofnana varðandi alls kyns gæðaeftirlit
verður einnig mun auðveldari og hrað-
virkari og mun koma öllum til góða. Þetta
er í rauninni sjálfvirknivæðing á ýmsum
hlutum sem hafa verið hér í vinnslu en
tekið sinn tíma í úrvinnslu. Sumt af þess-
um upplýsingum verður eðli málsins sam-
kvæmt á aðgangsstýrðum vef og aðeins
aðgengilegt okkur og viðkomandi stofnun.
Við sjáum einnig fyrir okkur endurgjöf
til lækna með svipuðum hætti, til dæmis
vegna lyfjaávísana."
Lilja Sigrún segir að mikil vinna hafi
verið lögð í tryggja allan aðgang að hinum
rafræna vef. „Aðgangsstýringarnar sem
við höfum talið nauðsynlegar eru svo
öruggar að þær eru talsvert strangari en til
dæmis aðgangur einstaklinga að heima-
banka sínum. Það segir kannski eitthvað.
En þetta er nauðsynlegt til að tryggja að
enginn geti farið þarna inn á fölskum
forsendum og hin rafrænu skilríki eru
þannig útbúin að enginn getur notað þau
nema hann sé sá sem hann segist að vera.
Þá er einnig mjög skilvirkt kerfi sem skráir
allar uppflettingar svo strax er hægt að
sjá hver hefur skoðað hvað. Þegar opnað
verður fyrir aðgang einstaklinga að sinni
lyfjasögu verður listi yfir þá sem hafa flett
honum upp birtur með lyfjasögunni. Við
munum líka fara í vinnu við að leiðbeina
stofnunum um hvernig þær eigi að inn-
leiða sínar eigin öryggiskröfur. Þarna
verður að gera ítrustu kröfur enda málið
þess eðlis."
Vinnu- og timasparnaður er mesta hvatningin
Markmiðið er að aðeins þurfi einn aðgang
til að komast í allar upplýsingar sem lækn-
irinn þarf á að halda. „Við stefnum auð-
vitað að því að einfalda kerfið og að ekki
þurfi að logga sig inn í tvö til þrjú kerfi til
að sækja allar upplýsingar um einstakan
sjúkling. Það verður þó ekki þannig strax
í byrjun, en með því að tengja sig inn á
vef Embættis landlæknis kemst læknirinn
í samband við fleiri upplýsingaveitur, til
dæmis Sjúkratryggingar íslands. Þá er
líka markmiðið að læknir sem fer inn í
Sögukerfið komist þaðan inn í öll önnur
42 LÆKNAblaðiS 2013/99