Læknablaðið - 15.03.2013, Qupperneq 9
RITSTJÓRNARGREIN
Landspítalinn - tifandi tímasprengja?
Ómar Sigurvin
Gunnarsson
læknir á Landspítala og
formaður Félags
almennra lækna
omarsg@landspitali.is
Langvarandi niðurskurður, aukið álag,
stöðug undirmönnun, léleg starfsaðstaða,
bágur húsa- og tækjakostur: Allt þetta hef-
ur leitt til þess að ástandið á Landspítala,
stærsta vinnustað landsins, er líkt og tif-
andi tímasprengja. Með elju starfsfólks og
dugnaði hefur verið haldið stöðugt áfram;
hlaupið hraðar, unnið lengur, fleirum sinnt
af færri höndum. Lítið hefur þurft til að
raska viðkvæmu jafnvæginu, af litlum
neista verður oft mikið bál. Sú hefur verið
raunin innan stofnunarinnar; neistinn frá
haustmánuðum hefur leitt af sér mikið bál
sem ekki sér fyrir endann á.
Mitt í þessu óvissuástandi hefur lítið
heyrst í læknum. Hverju sætir það? Eru
læknar ánægðari með ástandið en aðrar
stéttir? Er læknum umbunað umfram aðra?
Síður en svo! Almennir læknar hafa
frá árinu 2010 verið ein óánægðasta stétt
Landspítala, ásamt geislafræðingum og
vaktmönnum, samkvæmt mælingum
vinnuveitanda.1 Árið 2012 bættust svo
sérfræðingar í þennan hóp.2 Stofnunin
hefur ekki gripið til neinna úrræða til að
reyna að bæta starfsskilyrði eða starfs-
ánægju þessa hóps. Þetta hefur leitt til þess
að sífellt erfiðara reynist að fá lækna til að
manna stöður sem losna og stöðugt fleiri
læknar halda utan til starfa, að hluta til eða
alveg. Nýleg könnun bendir til þess að stór
hluti íslenskra lækna erlendis ætli sér ekki
að snúa aftur til starfa hérlendis í óbreytt
ástand.3 Stjórnvöld og yfirstjórn spítalans
hafa skellt skollaeyrum við aðvörunarorð-
um lækna og ekki brugðist við þeim vanda
sem landflótti lækna er, og ef ekki verður
gripið inn í blasir ófremdarástand við.
En hvers vegna eru læknarnir óánægðir?
Stöðug undirmönnun hefur leitt til þess
að teymi stækka og hver læknir ber ábyrgð
á alltof mörgum sjúklingum, en einungis
þriðjungur lækna telur sig geta klárað verk-
efni sín svo fullnægjandi sé, samkvæmt
áðurnefndri könnun. Það ógnar öryggi
sjúklinga, auk þess að draga úr starfs-
ánægju og valda líkamlegum og andlegum
álagseinkennum, en allt að 89% lækna lýsa
slíkum einkennum í tengslum við störf sín.
Engar starfslýsingar eru til fyrir lækna til
að styðjast við, sem auðveldað gætu þeim
að afmarka störf sín, enda telja 25-50%
almennra lækna sig ekki vita til hvers er
ætlast af þeim í starfi. Slíkt er ekki líklegt
til að auka skilvirkni né starfsánægju. Eng-
ar álagsmælingar eru gerðar fyrir lækna
og mönnunarþörf ekki reiknuð og getur
spítalinn því stöðugt leyft sér að bæta verk-
efnum og sjúklingum á lækna, og vonað að
ekkert alvarlegt komi upp á.
Við þessi vandamál bætist svo óviðun-
andi starfsaðstaða, en ekki er gert ráð
fyrir læknum við skipulag búnings- eða
vinnuaðstöðu. Tækjakostur stofnunarinnar
er bágur, enda hafa fjármunir til tækja-
kaupa verið af skornum skammti. Læknar
hafa bent á að úr sér gengin tæki og ódýrari
tæki sem keypt hafa verið, geti ógnað ör-
yggi sjúklinga, auk þess sem þau geta tafið
greiningu og meðferð.4 Læknum á íslandi
er ekki launað fyrir störf sín í samræmi við
lengd náms, ábyrgð og álag í starfi. Stjórn-
málamenn, nú síðast hæstvirtur velferðar-
ráðherra í Kastljósi 20. september síðast-
liðinn, hafa dregið upp þá tálsýn að læknar
hérlendis hafi það svo gott; séu sannkölluð
hálaunastétt. Ef staðreyndir málsins eru
skoðaðar sést að læknar hafa dregist aftur
úr í launaþróun síðustu ára. Frá 2007 hafa
meðaldagvinnulaun ýmissa háskólastétta
hækkað um 28-43%, en læknar hafa hækk-
að mun minna.5 Grunnlaun lækna eftir 6
ára háskólanám eru nú 340.734 krónur eftir
hækkunina 1. mars. Það er því ljóst að laun
lækna eru hvorki samkeppnishæf innan-
lands né utan, þar sem þau eru yfirleitt
tvisvar til þrisvar sinnum hærri.
Landspítalinn er staddur á kross-
götum. Einungis þriðjungur lækna mælir
með stofnuninni sem góðum vinnustað.
Síaukin óánægja og flótti lækna ógna
stöðu stofnunarinnar. Stjórnvöld og yfir-
stjórn spítalans verða að leggja allt kapp
á að snúa þessari þróun við, ef við ætlum
áfram að halda hér uppi heilbrigðiskerfi á
heimsmælikvarða. Eru ráðamenn landsins
virkilega tilbúnir að horfa aðgerðalausir á
heilbrigðiskerfið molna og mygla innan frá,
líkt og byggingarnar við Hringbraut? Stefnt
hefur verið að því að byggja þar öflugt há-
skólasjúkrahús, til framtíðar. En er hægt að
reka öflugt háskólasjúkrahús án lækna?
Eg vona svo sannarlega að við þurfum
ekki að láta á það reyna!
Heimildir
1. Starfsumhverfiskönnun LSH 2010. Mannauðssvið Land-
spítala - háskólasjúkrahúss, Reykjavík 2010.
2. Sigurjónsson H. Vaxandi óánægja meðal sérfræðinga
Landspítala. Læknablaðið 2012; 98: 600-2.
3. Fáa lækna langar aftur heim. Fréttablaðið 2013; 5:1/66.
4. Jónsdóttir Þ. Tækjabúnaður Landspítala: umhyggja - fag-
mennska - öryggi - framþróun? Læknablaðið 2012; 98:447.
5. Meðallaun starfsmanna ríkisins. Fjármálaráðuneytið 2012.
fjarmalaraduneyti.is/verkefni/starfsmenn_rikisins/
kjarasamningar/medallaun/- febrúar 2013.
Landspítali - a ticking time bomb?
Ómar Sigurvin Gunnarsson
Resident at Landspítali
Chairman of The lcelandic association of junior doctors
LÆKNAblaðið 2013/99 121