Læknablaðið - 15.03.2013, Síða 34
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Framtíð fortíðarminja og lifandi saga
■ ■ ■ Anna Björnsson
Lækningaminjasafnið hefur oft verið til umfjöllunar hér í Læknablaðinu og
yfirleitt til að fagna áföngum í sögu þess. Þann 12. desember síðastliðinn
urðu nokkuð óvænt kaflaskipti í uppbyggingu safnsins er meirihluti bæjar-
stjórnar Seltjarnarnesbæjar ákvað að endurnýja ekki samning um eign og
rekstur safnsins en hann rann út þann 31. desember 2012.11. tölublaði
Læknablaðsins á þessu ári varfrétt um málið undirfyrirsögninni: „Framtíð
Lækningaminjasafnsins í uppnámi.” Þar kemur fram að meirihluti stjórnar
Lækningaminjasafnsins hafi fundað ásamt formönnum Læknafélags
Islands og Læknafélags Reykjavíkur, þjóðminjaverði, framkvæmdastjóra LÍ
og lögfræðingi þann 17. desember. Síðan hefur atburðarásin orðið hröð og í
þessu blaði verður staðan tekin með viðtölum við nokkra málsaðila og reynt
að ráða i framhaldið og velta upp hugmyndum um safnið.
Ljóst er hugmyndir fólks um framtíð Lækningaminjasafnsins eru mis-
jafnar og margar. Umfjöllun Læknablaðsins um safnið gegnum tíðina sýnir
að mörgum er annt um að þessum menningararfi verði sómi sýndur, en
með hvaða hætti það getur orðið er engan veginn Ijóst á þessari stundu.
Fundiir í Hlíðasmára á aðventunni 2012 um örlög safnsins við borðið sitja Steinn Jónsson formaður LR, Þorbjörn
Jónsson formaður LR, Óttar Guðmundsson í stjórn safnsins, Dögg Pálsdóttir lögfræðingur LÍ, Birna Jónsdóttir
fyrrum formaður LÍ, Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri LÍ, Anna Lísa Rúnarsdðttir og Sunneva Hafsteins-
dóttir í stjórn safnsins, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður ogAnna Þorbjörg Þorgrímsdóttir safnstjóri.
Kveikjan að safninu er margra ára söfnun
Jóns Steffensen (1905-1991) prófessors og
vísindamanns á lækningaminjum og arfur
hans, sem hann fól Læknafélagi Islands
að fara með. Félag áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar var stofnað árið 1964 að
frumkvæði hans og hefur ásamt Lækna-
félögunum verið stefnumótandi um fram-
gang lækningaminjasafns. Vilji Jóns var að
safnið yrði byggt upp í Nesi við Seltjörn,
sem er helsti sögustaður lækningasögu á
íslandi og aðsetur fyrsta landlæknisins,
ljósmóður og lyfsölu. Þá tengist Nes einnig
fjölskyldu konu Jóns, Kristínar Steffensen.
Hreyfing komst á málið eftir aldamótin
2000 og á nýrri öld virtist sem safnið væri
að verða að veruleika með enn veglegri
hætti en Jón hafði séð fyrir sér, þar sem
umhverfi Nesstofu var miðpunktur menn-
ingar- og safnasvæðis á Seltjarnarnesi.
Þann 16. ágúst árið 2000 fór fram
formleg afhending á arfi Jóns Steffensen til
ríkisins er Sigurbjörn Sveinsson, þáverandi
formaður Læknafélags íslands afhenti
Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra og
Geir H. Haarde fjármálaráðherra gjöfina.
Stærsti hluti arfsins var hús safnsins við
Bygggarða 7, sem keypt hafði verið fyrir
erfðaféð. Við þetta tækifæri var Margréti
Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði afhentur
146 LÆKNAblaðið 2013/99