Læknablaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 43
UMFJÖLLUN O G GREINAR
aftur. Við erum með myndavél sem við
vöktum alla sjúklinga með, auk þess sem
þeir eru með neyðarhnapp og við höfum
einnig möguleika á að tala við þá meðan
þeir liggja í tækinu og þeir við okkur, ef
þeir eru ekki svæfðir. Það er mjög vökult
auga sem fylgist með."
Er upplýsingar um ígræðslur og að-
skotahluti ekki að finna í sjúkraskrám
einstaklinga? „Nei, því miður er almenn
þekking ekki nægileg hjá læknum um það
hvað má fara í segulómun og hvað ekki.
Til dæmis mega flestir gerviliðir, plötur
og skrúfur fara í segulómun en það er enn
útbreiddur misskilningur að það megi
ekki. Auðvitað geta slíkir hlutir hitnað en
þeir hreyfast ekki úr stað og valda yfirleitt
ekki óþægindum. Það eina sem getur skeð
er að þeir valda myndgöllum, þannig að
stundum verður myndin alveg svört en
það sér maður ekki fyrr en eftir á.
Við erum auðvitað boðin og búin að
svara spurningum um íhluti og ígræði
og þurfum oft að fletta upp í skrám hvort
hlutir þoli segulómun eða ekki."
Segulóm-samhæfðir gangráðar nýjung
Maríanna upplýsir að til sögunnar séu
komnir svokallaðir segulómsamhæfðir
gangráðar sem þýði að þeir þoli segulsvið.
Hjartalæknar hér á íslandi hafi byrjað í
fyrra að setja þá í einstaklinga sem fyrir-
séð var að þyrftu segulómun síðar, vegna
einhvers sjúkdóms, og einnig í ungt fólk
sem eigi framtíðina fyrir sér. Nokkrir hafi
fengið slíka gangráða og nýlega hafi sá
fyrsti komið í segulómun. „Þetta er kona
Við dyrþess allra lielgasta. „Við liöfum verið það
heppin hér á segulómun hjá okkur að við höfum ekki
lent í neinum óhöppum," segir Maríanna.
Mynd/Gunnþóra
og hún kom fyrst í gangráðseftirlit og fékk
gangráðinn stilltan fyrir segulómun, svo
fór hún í rannsóknina og við skráðum
allt mjög nákvæmlega," lýsir Maríanna.
„Síðan var hún vöktuð, bæði með púls-
mæli á fingri og hjartalínuriti meðan hún
var í tækinu, því gallinn við segulsviðið
er að það truflar mikið hjartalínuritið og
við eigum erfitt með að lesa úr línuritinu
meðan fólk er inni í tækinu. Við notum
því tvær aðferðir til að fylgjast með hjart-
slættinum. Konan fór svo frá okkur aftur
gegnum eftirlitið þar sem gangráðurinn
var skoðaður og stilltur á ný og allt gekk
eins og í sögu."
Vissulega fagnar Maríanna hinum nýju
gangráðum og segir gott að eiga mögu-
leika á notkun þeirra. Gallinn sé sá að þeir
séu dýrir. „Þannig er það með alla nýja
tækni að hún er dýr í byrjun," tekur hún
fram. „Þetta er lfka aðeins önnur tækni
en í eldra gangráðnum, leiðslurnar eru
öðruvísi og það er erfiðara að leggja hann,
þannig að það verður tilhneiging til að
nota þennan venjulega enn um sinn."
Þröskuldurinn hár fyrir bjargráða
Bjargráður er tæki sem er notað til að gefa
fólki rafstuð ef það fær lífshættulegar
hjartsláttartruflanir. Er möguleiki fyrir
þá sem bera hann að fara í segulómun ef
með þarf? „Nei, bjargráður má alls ekki
fara í segulómun," svarar Maríanna en
bætir við: „Ég held þó að verið sé að þróa
slík tæki en mér vitanlega eru þau ekki
komin á markað. Bjargráðarnir sem nú
eru í notkun eru enn segulmagnaðri en
gangráðar og með viðkvæmar leiðslur svo
það er mjög hár þröskuldur inn til okkar
fyrir fólk með þá."
LÆKNAblaðið 2013/99 155