Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 23
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Starfsumhverfiskönnun - til hvers?
Ólöf Birna
Margrétardóttir
almennur læknir á
lyflækningasviði
olofbm@gmail.com
Umræðan um dapurlega stöðu Landspítala
hefur varla farið framhjá neinum undan-
farnar vikur. Þar hefur verið virkjuð neyð-
aráætlun á lyflækningasviði vegna skorts
á deildarlæknum og enn er ekki fyrirséð
hvernig þetta endar. Lyflækningasvið, sem
hafði um 30 deildarlækna á sínum snær-
um fyrir örfáum árum, hefur nú rúmlega
10 deildarlækna við störf en þar eru stöður
fyrir 25 deildarlækna. Ekki er heldur svo
langt síðan aðsókn í sérnámsprógramm
lyflækna var það mikil að færri komust að
en vildu. Nú er rætt um að mögulega séu
ekki lengur forsendur fyrir því að halda
prógramminu gangandi. Vissulega varð
hér efnahagshrun með margvíslegum af-
leiðingum en það skýrir ekki vandann sem
glímt er við í dag. Ekki urðu starfsmenn
heilbrigðiskerfisins sérlega varir við góð-
ærið títtnefnda en sömu starfsmenn hafa
fundið allhressilega fyrir efnahagshruni
og enn frekari niðurskurði. Hvað varðar
lækna þá hefur verið bent á yfirvofandi
læknaskort í mörg ár án þess að nokkuð
hafi verið brugðist við. Endurnýjun í
stéttinni er of hæg og nú er svo komið að
innan margra sérgreina er stór hluti sem
mun hætta störfum vegna aldurs og ekki
ljóst hverjir eiga að manna þær stöður.
Staðreyndin er sú að íslenskt heilbrigðis-
kerfi er ekki samkeppnishæft við það sem
er í boði í nágrannalöndunum, hvorki hvað
varðar laun né vinnuaðstæður. Þegar þetta
er sett saman fæst jafna sem gengur ekki
upp. Skortur á starfsfólki á vinnustað sem
er ekki samkeppnishæfur.
Nú hafa verið gerðar starfsumhverf-
iskannanir innan spítalans. Þar er spurt
um ýmsa þætti, meðal annars starfshvata,
hollustu og traust, starfsfélaga, starfsþróun
og starfsaðstæður. Undirrituð, sem er
almennur læknir á Landspítala, svaraði
umræddri starfsumhverfiskönnun í mars á
þessu ári og var ómyrk í máli. Síðar kom í
ljós að flestir yngri kollegar höfðu svipaða
skoðun. Niðurstöður könnunarinnar voru
birtar á innri vef spítalans í júlímánuði
þegar flestir voru í sumarfríi. Ég velti
fyrir mér hvort það sé tilviljun eða hvort
þetta sé algjörlega útpælt af stjórnendum
spítalans. Lítið fór fyrir umfjöllun um
niðurstöðurnar þó þær væru grafalvar-
legar og afleiðingar þegar farnar að sjást.
Mig langar til að reifa helstu niðurstöður
fyrir almenna lækna úr könnuninni:
• Fyrir deildarlækna árið 2013 voru 37
þættir af 40 rauðmerktir (rautt = að-
gerðarbil), tveir þættir voru með gulu
skori (gult=starfhæft bil) og aðeins
einn þáttur var á grænu bili (grænt=-
styrkleikabil). Svarhlutfall var 75%.
• Fyrir deildarlækna árið 2012 voru 27
þættir af 40 rauðmerktir, 11 þættir
gulir og tveir grænir.
• Fyrir kandídata árið 2013 voru 38
þættir af 40 rauðmerktir, einn var með
gulu skori og einn með grænu. Svar-
hlutfall var 100%.
• Fyrir kandídata árið 2012 voru 33
þættir af 40 rauðmerktir, sex þættir
gulir og einn grænn.
• Hjá báðum hópum var grænmerkt við
eftirfarandi fullyrðingu: „Ég tel störf
mín vera mikilvæg."
• Allir þættir sem tóku til starfsaðstöðu
og trausts voru rauðmerktir hjá deild-
arlæknum bæði árin.
• Allir þættir sem tóku til framþróunar,
upplýsingagjafar og starfsaðstöðu voru
rauðmerktir hjá kandídötum bæði árin.
• 13% af deildarlæknum eru stoltir af
því að starfa á Landspítala og 1% mæla
með honum sem góðum vinnustað.
Aðeins 3% hugsa sjaldan eða aldrei
um að hætta störfum þar og 14% telja
störf sín metin að verðleikum. 7% eru
ánægð með vinnuaðstæður sínar.
• Enginn af kandídötum mælir með
spítalanum sem góðum vinnustað og
enginn hugsar sjaldan eða aldrei um
að hætta störfum þar. Aðeins 5% telja
störf sín metin að verðleikum. Enginn
kandídat er ánægður með vinnuað-
stæður sínar.
• Spurt var: „Á minni starfseiningu/
deild höfum við unnið með niður-
stöður fyrri starfsumhverfiskannana."
Svörin voru rauðmerkt hjá báðum
hópum, bæði 2012 og 2013.
Þessi upptalning er ekki tæmandi en
ætti þó að gefa ágæta mynd af ástandinu.
Það sem vekur furðu mína eru niður-
stöður starfsumhverfiskannana fyrri ára.
Þó að niðurstöðurnar í ár hafi verið verri
en í fyrra er ekki hægt að segja að árið
2012 hafi komið sérstaklega vel út. Til
hvers í ósköpunum er verið að gera slíkar
kannanir ef ekkert er gert með niðurstöð-
urnar? Stjórnendur hljóta að bera ábyrgð
og stjórnendur Landspítala hafa ekki
axlað ábyrgð á starfsfólki sínu. Starfsum-
hverfiskönnunin er falleinkunn fyrir
stjórnendur stofnunarinnar. Þetta myndi
ekki viðgangast í nágrannalöndum okkar
án aðgerða. Stjórnendur sem myndu ekki
bregðast við hættumerkjum hjá starfsfólki
í langan tíma yrðu leystir frá störfum.
Hvenær verða stjórnendur Landspítala
leystir frá störfum? Þegar allt starfsfólkið
hefur gefist upp og er horfið til annarra
starfa? Líklegt er að ef eitthvað verður
aðhafst verði of lítið gert og alltof seint.
Það má vera að stjórnmálamenn muni
minnast núverandi stjórnenda fyrir elju í
niðurskurði og sparnaði. Ég hygg að starfs-
fólk spítalans muni hins vegar tengja þá
við skort á viðbrögðum við niðurstöðum
starfsumhverfiskannana og hrun ákveð-
inna starfseininga innan spítalans.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Salome Á. Arnardóttir, ritari
Björn Gunnarsson
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir
Ólöf Birna Margrétardóttir
Þórarinn Ingólfsson
I pistlunum Úrpenna stjómarmanna Ll birta þeir sínar eigin
skoðanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2013/99 455