Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 35
LÖGFRÆÐI 6. PISTILL Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um. Skráningar- og tilkynningaskylda óvæntra atvika Á dögunum var haldin ráðstefna á vegum landlæknisembættisins um heilbrigðiskerfið og öryggi sjúklinga. í umfjöllun RÚV um ráðstefnuna var haft eftir fyrrum landlækni að einn af hverjum tíu sjúklingum sem leggjast inn á vestræn kennslusjúkrahús verði fyrir einhvers konar óhappi vegna meðhöndl- unar, óhöppum sem jafnvel geti leitt til dauða. Miðað við íslenskt umhverfi, skipulag heilbrigðisþjónustu og menntun heilbrigðis- starfsmanna sé ekki við öðru að búast en að hið sama sé að gerast í íslenskri heilbrigðis- þjónustu. Ef niðurstöður þessara erlendu rannsókna eru heimfærðar á íslenskan veruleika þýði það að 2500 sjúklingar verði á ári hverju fyrir einhvers konar óhöppum, af þeim verði 600 fyrir örkumlum vegna þeirra, og um það bil 170 deyi. Hægt væri að koma í veg fyrir um helming óhappanna (ruv.is/ frett/10-verda-fyrir-ohappi-vegna-medhondl- unar). Upplýsingar sem þessar undirstrika mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsmenn, læknar sem aðrir, skrái allt sem fer úrskeiðis við meðferð. f lögum um landlækni og lýð- heilsu nr. 41/2007 eru lagaákvæði sem leggja bæði skráningarskyldu og tilkynningaskyldu á herðar heilbrigðisstarfsmönnum um óvænt atvik. í skráningarskyldunni felst að öll óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu ber að skrá. í tilkynningaskyldunni felst að óvænt atvik sem hafa valdið eða hefðu getað valdið sjúk- lingi alvarlegu tjóni skal tafarlaust tilkynna embætti landlæknis. Um þessar skyldur er fjallað í 9. og 10. gr. laga um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007 með síðari breytingum. í 9. gr. er fjallað um skráningarskyldu óvæntra atvika í heilbrigðisþjónustu og felur ákvæðið í sér skýra lagaskyldu gagnvart heil- brigðisstarfsmönnum, sem hlut eiga að máli, faglegum yfirmönnum þeirra og öðru starfs- fólki heilbrigðisstofnana, eftir því sem við á, til að skrá öll óvænt atvik. Lagaákvæðið skýrir óvænt atvik sem óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem valdið hafa sjúklingi tjóni eða hefðu getað valdið sjúklingi tjóni. Tilgangur þessarar skráningar er að finna skýringar á óvæntum atvikum og leita leiða til að tryggja að þau endurtaki sig ekki. Til viðbótar við skráningarskylduna ber heilbrigðisstofnunum, sjálfstætt starf- andi heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem veita heilbrigðisþjónustu að halda skrá um óvænt atvik og senda landlækni reglulega yfirlit um öll óvænt atvik með þeim hætti sem embættið ákveður. f 10. gr. er fjallað um tilkynningaskyldu heilbrigðisstofnana, sjálfstætt starfandi heil- brigðisstarfsmanna og annarra sem veita heilbrigðisþjónustu til landlæknis varðandi óvænt atvik sem valdið hafa eða hefðu getað valdið sjúklingi alvarlegu tjóni, svo sem dauða eða varanlegum örkumlum. Varðandi þessi atvik skal jafnframt upplýsa sjúkling um það án ástæðulausra tafa og nánustu aðstandendur hans þegar það á við. Embætti landlæknis skal rannsaka þessi mál til að finna á þeim skýringar og tryggja eftir því sem kostur er að slík atvik gerist ekki aftur. Heilbrigðisstofnun og -starfsmenn skulu veita embættinu þær upplýsingar og gögn sem það telur nauðsynleg við rannsókn þessara mála og embættið skal eiga greiðan aðgang að heilbrigðisstofnunum og starfs- stofum heilbrigðisstarfsmanna í þágu rann- sóknar. Við meðferð málsins ber embættinu meðal annars að meta hvort atvikið kalli á að heilbrigðisstarfsmanni/mönnum verði veitt áminning vegna þess. Verði óvænt dauðsfall á heilbrigðisstofnun eða annars staðar þar sem heilbrigðis- þjónusta er veitt, sem ætla má að rekja megi til mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks við meðferð eða forvarnir vegna sjúkdóms, skal auk tilkynningar til embættis landlæknis til- kynna það til lögreglu í samræmi við ákvæði laga um dánarvottorð, krufningar og fleira nr. 61/1998. Embætti landlæknis gaf út á sínum tíma dreifibréf nr. 2/2008 um atvikaskráningu og tilkynningaskyldu (landlaeknir.is/gaedi- og-eftirlit/heilbrigdisstarfsfolk/dreifibref/ nanar/iteml4915/Dreifibref-nr—2/2008- -Atvikaskraning-og-tilkynningaskylda). Þá hefur embættið útbúið tvenns konar eyðublöð vegna þessa. Annað eyðublaðið er vegna skráningar einstakra óvæntra atvika. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags íslands DoggP@lis.is Þar koma fram þau atriði sem embættið hefur ákveðið að skráð séu að lágmarki vegna óvæntra atvika. Þetta eyðublað ber heilbrigðisstarfsmanni að fylla út í hvert sinn sem sjúklingur verður fyrir óvæntu atviki í heilbrigðisþjónustu. Til viðbótar ber að senda það embætti landlæknis þegar atvikið hefur valdið eða hefði getað valdið sjúkingi alvarlegu tjóni. Hitt eyðublaðið er fyrir yfir- litin sem senda ber embættinu og hefur embættið ákveðið að þau skuli senda tvisvar á ári. Eyðublaðið ber með sér að atvikin sem embættið safnar upplýsingum um eru fall (bylta), atvik tengd læknismeðferð, hjúkr- unarmeðferð, lyfjameðferð, svæfingu, rann- sókn, umönnun, endurhæfingu, tækjabúnaði, eignatjóni, ofbeldi og sóttvörnum, þar með talin stunguóhöpp. Ef atvik er ekki unnt að fella undir neitt af þessum flokkum fer það í flokkinn „Annað". Eyðublöðin eru aðgengi- leg á heimasíðu embættisins (landlaeknir. is/um-embaettid/greinar/grein/iteml5324/ Vidbrogd-vid-atvikum). Þau er hægt að fylla út rafrænt, en gert er ráð fyrir að þau séu prentuð út og undirrituð. Á heimasíðu embættis landlæknis er fjallað um orsakir atvika og óvænts skaða á heilbrigðisstofnunum (landlaeknir.is/ um-embaettid/greinar/grein/iteml5290/ Orsakir-ovaentra-atvika-og-ovaents-skada). Þar kemur meðal annars fram að rannsóknir á orsökum atvika sýni að óvæntan skaða megi rekja til þreytu heilbrigðisstarfsmanna, misskilnings í samskiptum, ófullnægjandi upplýsinga, ófullnægjandi sjúklingafræðslu, ófullnægjandi mönnunar, ófullnægjandi aðlögunar nýrra starfsmanna, ófullnægjandi tækjabúnaðar og skorts á verklagsreglum og vinnuleiðbeiningum. Fréttir um sívaxandi álag á heilbrigðis- starfsmenn vekja áhyggjur um að tíma- skortur þeirra verði til þess að skráningu óvæntra atvika sé ekki sinnt og að tilkynning um alvarleg óvænt atvik farist jafnvel fyrir. Vert er því að undirstrika og leggja áherslu á hversu mikilvægt það er fyrir öryggi sjúklinga og bætt öryggi heilbrigðiskerfisins að heilbrigðisstarfsmenn sinni þessari skýru lagaskyldu sinni. LÆKNAblaðið 2013/99 467
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.