Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 48
ÖLDUNGADEILD
Loggjof a villigotum
Sigurður E.
Þorvaldsson
fyrrv. formaður
öldungadeildar Ll
Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn nr.
34/20121 tóku gildi 1. janúar 2013.
26. grein laganna hljóðar svo:
Aldursmörk.
Heilbrigðisstarfsmanni samkvæmt lögum þessum er
óheimilt að reka eigin starfstofu eftir að hann nær 70 ára
aldri. Landlækni er þó heimilt, að fenginni umsókn við-
komandi, aðframlengja leyfi til tveggja ára í senn, þó aldrei
oftar en þrisvar.
Þessi grein hinna nýju heilbrigðislaga
skerðir mjög starfsmöguleika eldri lækna
og rýrir margrómaðan mannauð íslensku
heilbrigðisþjónustunnar sem á mjög undir
högg að sækja um þessar mundir eins og
nýleg ummæli nokkurra framámanna í
læknastétt bera vott um: „Á undanförnum
árum hefur starfandi læknum á íslandi fækkað
um 12%."2, „...það er ekki hægt að skera
meira niður, það þarfað fara að byggja upp
kerfiðað nýju."3, „...hafa 208 læktwr skráð
sig úr Læknafélagittu á síðustu þretnur árutn
en aðeins 71 skráð sig ífélagið."*, „Hrörnun
mannauðs er langtíma fyrirbæri."5
Sá mannauður og reynsla sem tapast
við aldursákvæði 26. greinar nýrra heil-
brigðislaga verður ekki bætt með 11. grein
laganna þar sem fjórða árs nemum í
læknisfræði er gefið leyfi til að starfa sem
læknar þó undir eftirliti eigi að heita. Slíkt
er mikil þversögn.
Af hverju 76 ár?
Fyrir því eru ekki færð nein rök. Opinberir
starfsmenn verða raunar að hætta 70 ára
en hér er um að ræða sjálfstætt starfandi
menn með eigin starfstöð.
Sé landlækni ætlað að meta færni
sjötugra lækna í þrígang ætti hann eins að
geta það áfram um óákveðinn tíma. Það er
ekki þekkt náttúrulögmál að læknar glati
að fullu líkamlegri og andlegri færni sinni
við 76 ára aldur.
Þessi lagagrein er ekki í takti við reglur
í löndum sem við gjarnan miðum okkur
við:
Á netsíðu Sundhedsstyrelsen í Dan-
mörku6 segir:
Sundhedsstyrelsen kati efter ansogning give tilladelse til, at
en autoriseret sundhedsperson kan fortsætte sin selvstændige
faglige virksomhed helt eller delvist efter de fyldte 75 ár.
Þetta eru í raun þær reglur sem voru í
eldri læknalögum á íslandi.
Á netsíðu norska læknafélagsins7 segir:
Nár autorisasjonen bortfaller ved fylte 75 ár, kan legen soke
om lisensfor á utove legevirksomhet. Lisens gis etter en
konkret vurdering og normalt for to ár av gatigen. Leger som
har fylt 80 ár, kanfá slik lisensfor inntil ett ár av gangen.
Soknad om lisens sendes til og behatidles av Statens autor-
isasjonskontor for helsepersonell (SAFH).
Formaður félags eldri lækna í Noregi
(ELF) segir í tölvupósti:
Félag eldri lækna í Noregi ásamt norska læknafélaginu
vinna að því að fá þessa grein fellda úr norsku heilbrigðislög-
unutn því hér sé eingöngu mismunað vegna aldurs.8
Frá Svíþjóð fengust þær upplýsingar hjá
lagadeild sænska læknafélagsins að f Sví-
þjóð væru engin aldursákvæði varðandi
sjálfstætt starfandi lækna.9 I Bretlandi10 og
Þýskalandi11 eru engin aldursákvæði varð-
andi sjálfstætt starfandi lækna. Það er því
ljóst að í fimm löndum sem við oft kjósum
að bera okkur saman við, Danmörku, Nor-
egi, Svíþjóð, Bretlandi og Þýskalandi, eru
í raun engin aldurstakmörk fyrir sjálfstætt
starfandi lækna.
Lítt rætt á Alþingi
Á vef Alþingis má lesa umræður í vel-
ferðarnefnd um setningu heilbrigðislaga1.
Umræða í velferðarnefnd um 26. grein,
þ.e. aldurstakmörk, virðist hafa verið harla
lítil.
Þó er þar að finna álit Eyglóar Harðar-
dóttur núverandi félagsmálaráðherra og
Sivjar Friðleifsdóttur fyrrverandi heil-
brigðisráðherra 2006-2007.
Ur áliti Eyglóar:
Neftidarálit með breytingartillögu umfrumvarp til laga um
heilbrigðisstarfsmenn: [...] 3. minni hluti telur mikilvægt að
slíkar hömlur séu ekki settar á störf heilbrigðisstarfsmanna
og leggur til aðfelld verði brott sú afmörkun að einungis sé
heimilt að framlengja leyfið þrisvar. í stað þess verði land-
lækni heimilt, að fenginni umsókn viðkomandi heilbrigðis-
starfsmanns, aðframlengja leyfi til árs í senn ...
Ur áliti Sivjar:
Ég ætla að lokum að segja frá eiiini grein sem ég er ekki
alveg sátt við. Það er 26. gr. um aldursmörk. [...] Ég lief
miklar efasemdir um þetta ákvæði. [...] Með nýja ákvæðinu
er algjörlega tekið fyrir að lieilbrigðisstarfsmaður geti rekið
starfsstofu lengur en til 76 ára aldurs.l...]
Ég ætla því að biðja liv. velferðarnefnd að skoða sérstaklega
hvort ekki sé rétt að hafa þetta I liönduni landlæknis áfram en
setja ekki þetta snögga skilyrði um að eftir 76 ára aldur eigi
fortakslaust að loka fyrir starfsemina þó að viðkomandi geli
alveg unnið lengur.
A vef Alþingis1 er að finna umsagnir
frá Læknafélagi Islands og læknaráði. I
þeim er ekki að finna athugasemdir varð-
andi umrædda 26. grein. Hins vegar er því
mótmælt í báðum umsögnum að lækna-
lögin frá 1988 með síðari breytingum verði
felld úr gildi.
Það er ljóst að 26. grein hinna nýju laga
um heilbrigðisstarfsmenn skerðir mjög
réttindi þeirra til starfa og þar með í raun
mannréttindi. Þetta á ekki aðeins við
lækna þótt sérstaklega hafi verið um þá
fjallað hér.
Lokaorð
Það er skoðun mín að leita ætti leiða til að
leiðrétta þau mistök sem ég tel að hér hafi
verið gerð. Til þess þarf að brey ta lögunum.
Ráðlegt kann að vera að fá álit Umboðs-
manns Alþingis á málinu áður en því er
ýtt frekar áleiðis. Þá mætti íhuga að leita
úrlausnar fyrir dómstólum. Allt tæki þetta
sinn tíma en þetta er hægt.
Heimildir
1. Lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 (althingi.is/
dba-bin/ferill.pl?ltg=140&mnr=147)
2. Jónsson S. Höfum við efni á að setja sjötuga lækna á eftir-
laun? Læknablaðið 2013; 99: 363.
3. Bjöm Zoega í viðtali. Morgunblaðið, 3. ágúst 2013:4.
4. Þorbjöm Jónsson í viðtali. Morgunblaðið 3. ágúst 2013:4.
5. Stefánsson E, Guðmundsson S. Heilbrigðiskerfið molnar
niður. Morgimblaðið 2. ágúst 2013: 23.
6. sst.dk/Uddannelse20og20autorisation/
Autorisationsregister/75_aars_reglen.aspx
7. legeforeningen.no/Arbeidsliv-og-jus/Legens-ansvar/
Retten-til-a-virke-som-lege/Autorisasjon-og-lisens-/
8. Tölvupóstur frá formanni Félags eldri lækna í Noregi.
9. Tölvupóstur frá Sveriges Lakarförbund.
10. Svar við fyrirspum til Keith Baggs. Dpt of Health U.K.
11. BMJ 2009; 338: b97.
(Jnidungadeild
Læknafélags íslands
Stjóm Öldungadeildar:
Magnús Einarsson formaður, Þórarinn
Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri,
Guðmundur Oddsson, Guðrún Agnarsdóttir.
öldungaráð Umsjón siðu: Páll Ásmundsson
Jóhann Gunnar Þorbergsson, Jón Hilmar
Alfreðsson, Kristín Guttormsson, Sigurður E. Vefsíða:
Þorvaldsson, Tryggvi Ásmundsson, Valgarður http://innri.lis.is/oldungadeild-li
Egilsson.
480 LÆKNAblaðið 2013/99