Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 47
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Ingibjörg Kristjánsdóltir.
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
„Læknar geta haft áhrifefþeir beita sér," segir Þorbjörn
Jónsson formaöur Læknafélags íslands.
stjórnendur spítalans hafa lítt eða ekki
sinnt þeim tillögum til þessa.
Varla þarf að tíunda hér í Læknablaðiitu
hversu umfangsmiklar nútímalyflækning-
ar eru og að undirsérgreinar lyflækninga
eru fjölmargar. Ekki er þó víst að allur al-
menningur geri sér grein fyrir umfanginu
eða átti sig á því hversu margar sérgreinar
læknisfræði heyra undir lyflækningar og
að innan lyflækningasviðs eru margar sér-
stakar deildir. Var vakin athygli á þessu
á fundinum og ákveðið að birta þessu
til glöggvunar upptalningu sérgreina
lyflækninga í greinargerð með ályktun
fundarins.
Heilbrigðisráðherra ávarpaði fundinn
að loknum framsöguerindum og kvaðst
hafa saknað þess að heyra ekki tillögur til
lausnar vandanum, heldur aðeins lýsingar
á ástandi. Kom það mörgum fundarmanna
í opna skjöldu sem töldu sig einmitt hafa
hlýtt á hið gagnstæða í framsöguerind-
unum.
Verður að geta þess að í kjölfar
fundarins sendu framsögumenn ráðherra
greinargerð með ályktun fundarins þar
sem fram koma ýmsar tillögur til úrbóta
auk þess sem lausnir er nefndar voru í
framsöguerindum þeirra voru tíundaðar
frekar.
I umræðum kom fram að fundar-
mönnum þætti undarlegt að launamál
lækna væru ekki rædd á fundinum en þau
væru þó ein meginástæða atgervisflótta
almennra lækna og sérfræðinga af spítal-
anum, ásamt tregðu íslenskra sérfræðinga
við störf erlendis til að flytja heim aftur.
„Það gladdi mig sérstaklega að Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra gat setið
fundinn ásamt sínu fólki úr ráðuneytinu.
Góður hópur frummælenda ræddi málið
ítarlega og vonandi hafa vandamál, ekki
bara lyflækningasviðsins heldur Land-
spítalans alls, skýrst í huga ráðherrans.
Læknar Landspítalans búa yfir mikilli
þekkingu á starfseminni og þeir hafa
margvísilegar lausnir á takteinum, stórar
og smáar, og það er vert fyrir stjórnendur
að gefa þeim góðan gaum. Það má ekki
heldur gleyma því að sérfræðilæknar hér
á landi hafa flestir hlotið menntun sína
og starfað erlendis á góðum sjúkrahúsum,
oft viðurkenndum háskólasjúkrahúsum,
og þekkja því vel hvernig reka má starf-
semina á skilvirkan hátt. Ef hlustað er á
starfsmenn er líklegra að hægt sé að fá þá
í lið með sér við breytingar sem vinna á
vandamálunum, þetta er hópvinna," sagði
Þorbjörn Jónsson formaður LÍ.
Fundurinn skilaði verulegum árangri
Óhætt er að segja að sú umfjöllun sem
Læknafélag íslands beitti sér fyrir um
vandamál lyflækningasviðs Landspítalans
hafi skilað árangri. Nákvæmlega einni
viku eftir umræðufundinn í Læknafé-
laginu lagði heilbrigðisráðherra fram
tillögur til lausnar á vanda lyflækninga-
sviðsins og voru þær að mörgu leyti sam-
hljóða tillögum þeirra lækna sem verið
höfðu frummælendur á umræðufundinum
í Læknafélaginu.
„Þetta sýnir að læknar geta haft áhrif
ef þeir beita sér. Tillögur ráðherra leysa
kannski ekki allan vandann, en einhvers
staðar þarf að byrja. Eg fagna því að komin
er almennileg hreyfing á þetta mál," sagði
Þorbjörn ennfremur.
„Eins og ég sé þetta eftir þrengingar
undanfarinna ára er fjárskortur ein megin-
rót vandans, því má ekki gleyma. Fjárveit-
ingavaldið, Alþingi fslendinga, ákvað að
skera framlög til heilbrigðismála verulega
niður mörg ár í röð og það hefur leitt til
þess að stjórnendur heilbrigðisstofnana
hafa þurft að taka óæskilegar ákvarðanir.
Landspítalinn og margar aðrar heilbrigðis-
stofnanir eru illa aðkrepptar eftir niður-
skurð undanfarinna ára. Vonandi stuðlar
fundurinn og fjölmiðlaumræðan í kjölfarið
að því að stjórnvöld sjái sér fært að auka
nú þegar fjárframlög til spítalans, það þarf
að verða strax með nýjum fjárlögum,"
segir Þorbjörn Jónsson.
LÆKNAblaöiö 2013/99 479
L