Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 12
RANNSÓKN
Tafla I. Samanburður milli ára á rannsóknartímabilinu ásamt samanburði við eldri rannsókn sem gerð vará tímabilinu 1988-1997.
Ár Fjöldi Látnir Dánarhlutfall Aldur APACHE II LIS PaOýFiOj Tilfelli á 100 þús. íbúa/ári
2004 18 5 27,8% 57,9 20,6 3,15 119,9 6,2
2005 23 6 26,1 % 55,5 17,3 3,06 109,3 7,8
2006 26 9 34,6% 47,1 18,2 3,01 102,2 8,7
2007 28 8 28,6% 58,8 18,0 3,00 109,3 9,1
2008 25 8 32,0% 55,6 18,6 3,24 130,1 7,9
2004-2008 120 36 30% 55,0 18,5 3,1 114,1 7,9
1988-1997 155 62 40,0% 52,3 15,0 3, 92,9 5,9
APACHE II = ástandsstigun, LIS = Lung Injury Scale, lungnaáverkakvarði, Pa02 = súrefnisstyrkur í blóði, Fi02 = hlutfall súrefnis í innöndunarlofti.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til gjörgæsludeilda Landspít-
ala í Fossvogi og við Hringbraut tímabilið 2004-2008. Báðar deild-
irnar sinna almennum gjörgæslulækningum en með nokkurri
sérhæfingu þó. Gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut sinnir
einkum sjúklingum frá brjóstholsskurðlækningadeild, almennri
skurðlækningadeild, kvennadeild, hjartadeild, krabbameins-
lækningadeild, barnadeild og meltingar- og nýrnadeild. Gjör-
gæsludeild Landspítala í Fossvogi sinnir aðallega sjúklingum frá
heila- og taugaskurðdeild, æðaskurðdeild, bæklunarskurðdeild,
taugalækningadeild, smitsjúkdómadeild, lungnadeild og sjúk-
lingum með fjöláverka. Að auki er rekin gjörgæsludeild á
Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri en að mati lækna þeirrar deildar
hafði ekki verið um nein tilfelli af bráðu andnauðarheilkenni að
ræða þar á rannsóknartímabilinu og var því ekki farið yfir inn-
lagnir sjúklinga þar.
Að fengnu samþykki vísindasiðanefndar Landspítala, Pers-
ónuverndar og framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala var
farið yfir gjörgæsluskýrslur og sjúkdómsgreiningar allra sjúk-
linga sem lögðust inn á gjörgæsludeildir Landspítala á tímabilinu.
Sjúkraskýrslur sjúklinga sem höfðu átt við alvarlega öndunarbilun
að stríða voru skoðaðar sérstaklega og kannað hvort ástand þeirra
gæti fallið undir alþjóðlega skilgreiningu á bráðu andnauðar-
heilkenni: hefðu bráðan öndunarfærasjúkdóm, dreifðar íferðir í
Mynd 1. Röntgenmynd nflungum sjúklings mcð brátt aiidnauðarhcilkcnni. Út-
brciddar dreifðar ífcrðir sjást í báðum lungum.
báðum lungum á röntgenmynd eða tölvusneiðmynd, hlutfall súr-
efnisstyrks í blóði á móti innönduðu súrefnishlutfalli (Pa02/Fi02)
lægra en 200 og fleygþrýsting í lungnaslagæð (PCWP) lægri en 18
eða engin klínísk merki um hjartabilun. Sjúklingar voru útilokaðir
ef einhverjum þessara skilyrða var ekki fullnægt.
Reiknað var lungnaáverkastig fyrir alla sjúklingana samkvæmt
lungnaáverkakvarða Murray's (Lung Injury Scale, LIS)14 en sam-
kvæmt honum eru gefin stig fyrir Pa02/Fi02 hlutfall, PEEP-still-
ingu á öndunarvél og hversu útbreiddar íferðir í lungum eru á
lungnamynd. Sérfræðingur í mynd- og geislagreiningu fór yfir
lungnamyndir allra sjúklinganna og mat hvort þeir væru með
brátt andnauðarheilkenni og hversu útbreiddar breytingar voru á
lungnamynd samkvæmt lungnaáverkakvarða (LIS), mynd l.14
Safnað var upplýsingum um aldur, kyn, orsök, tíma frá áfalli að
staðfestu heilkenni, legutíma á gjörgæsludeild, legutíma á sjúkra-
húsi og afdrif sjúklinga. Skráð var notkun öndunarvéla, tímalengd
þeirrar meðferðar, stillingar, Pa02/Fi02 hlutfall og hvort notuð var
sérhæfð meðferð, svo sem hátíðniöndunarvél, grúfulega eða hjarta-
og lungnavél (ECMO). Varðandi tíma frá áfalli að staðfestu heil-
kenni var stuðst við þann dag er gildi samræmdust skilgreiningu á
bráðu andnauðarheilkenni (Pa02/FiO, hlutfall, ástand lungna sam-
kvæmt lungnamynd). Ástand allra sjúklinga við innlögn var metið
með APACHE II stigunarkerfi en samkvæmt því eru gefin stig
fyrir ástand sjúklinga fyrsta sólarhring dvalar á gjörgæsludeild,
aldur, niðurstöður blóðmælinga og fyrri sjúkdóma.
Úrvinnsla fór fram með Excel töflureikni (Microsoft Corpora-
tion, Redmond, Washington) og tölfræðiforritinu IBM SPSS Statis-
tics. Reiknuð voru miðgildi eða meðaltöl með staðalfrávikum og
reiknað p-gildi með Wilcoxon rank test eða Students t-test. Upplýs-
ingar um mannfjölda á íslandi voru fengnar frá Hagstofu íslands
og þannig reiknað nýgengi heilkennisins á hverja 100.000 íbúa.
Niðurstöður
Á tímabilinu 2004-2008 voru alls 6413 sjúklingar lagðir inn á gjör-
gæsludeildir Landspítala, 3140 á Hringbraut og 3273 í Fossvogi.
Karlar voru 60%, meðalaldur var 58 ár, dánarhlutfall var 7,5% og
um helmingur innlagðra þurfti meðferð í öndunarvél. Við nánari
athugun reyndust 224 sjúklingar hafa alvarlega öndunarbilun og af
þeim reyndust 120 sjúklingar falla undir alþjóðlega skilgreiningu
á bráðu andnauðarheilkenni, 54 konur og 66 karlar. Alls greindust
83 sjúklingar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en 37 á
Landspítalanum við Hringbraut. Yfir allt tímabilið greindust því
J
444 LÆKNAblaðið 2013/99