Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 28
UMFJÖLLUN O G GREINAR Vefjagigt er viðurkenndur sjúkdómur - segir Arnór Víkingsson gigtarlæknir Þraut ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í mati og meðferð vefjagigtar og hefur starfað frá því í ársbyrjun 2011. Arnór Víkingsson gigtarlæknir er einn þriggja stofnenda og eigenda fyrirtækisins en hin eru Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálf- ari og Eggert S. Birgisson sálfræðingur. Arnór segir um aðdraganda þess að Þraut var stofnuð að það hafi verið draumur þeirra þremenninganna að geta sett á laggirnar meðferðarstöð fyrir vefjagigt sem byggði á teymisvinnu. „Við fórum af stað árið 2008 með að selja ráðuneyti heilbrigðismála og Sjúkratryggingum íslands þessa hug- mynd og tveimur árum seinna fengum við bráðabirgðasamning en hann entist bara til nokkurra mánaða. Formlegan samning fengum við í apríl 2011. Sjúkratryggingar kaupa af okkur ákveðinn fjölda greininga á ári og einnig endurhæfingu fyrir tilgreindan fjölda sjúklinga. Ég held ég ýki ekki þegar ég segi að þetta hafi verið tímamótasamning- ur. Með þessum samningi féllust Sjúkra- tryggingar á þau rök okkar að góð heil- brigðisþjónusta fyrir vefjagigtarsjúklinga byggðist á samstarfi nokkurra sérfræðinga í teymi og voru tilbúnar að kaupa slíka þjónustu. Fram til þessa hafði þjónusta utan stofnana verið veitt af ótengdum aðilum sem höfðu ekki innbyrðis samráð um meðferðina, til dæmis gigtarlæknum, heimilislæknum, sjúkraþjálfum, geðlækn- um, sálfræðingum og iðjuþjálfum, þannig að úr varð brotakennd og áttavillt með- ferð. í starfi mínu sem gigtarlæknir á stofu til margra ára, þar sem tæplega helmingur nýrra sjúklinga fær greininguna vefjagigt, fann ég glöggt fyrir því að þessir sjúk- lingar fengu ekki bestu meðferð sem hægt var að veita. Þess vegna var svona með- ferðarstöð búin að vera draumur minn til margra ára." Vefjagigt, segir Arnór, er ein birtingar- mynd langvinnra, útbreiddra stoðkerfis- verkja en samkvæmt erlendum rannsókn- um eru um 8-11% þýðis með slíka verki. „Af þeim er um þriðjungur með vefjagigt og það segir okkur að hér á landi eru sennilega um 10.000 manns með vefjagigt. Því mætti ætla að rík þörf væri fyrir grein- ingar- og meðferðarstöð sem þessa. Enda stóð ekki á viðbrögðunum: umsóknum rignir inn og nú eru nokkur hundruð manns sem bíða eftir greiningarmati. Vefjagigt var ekki skilgreind sem sjálf- stæður sjúkdómur af Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni fyrr en 1993. Það hefur tekið töluverðan tíma fyrir sjúkdóminn að öðlast viðurkenningu innan læknasam- félagsins en sem betur fer ber æ minna á andmælum. Það hefur ríkt ákveðin vantrú hjá sumum læknum um tilvist vefjagigtar sem ég vil meina að sé á misskilningi byggð. Enginn mótmælir því í dag að fjöl- margir einstaklingar þjást af langvinnum, útbreiddum verkjum og hvort það heitir „vefjagigt" eða eitthvað annað er í raun- inni aukaatriði. Það sem skiptir höfuðmáli er að veita þessum einstaklingum hjálp. Deilur um eðli og orsök vefjagigtar eru að hluta til komnar af þeirri staðreynd að vefjagigt sést ekki í blóðprufum eða mynd- greiningu. Engu að síður er vefjagigt mjög áþreifanleg við klíníska læknisskoðun og samkvæmt bókhaldi lífeyrissjóða er vefj- agigt ein af þremur algengustu ástæðum örorku á íslandi í dag. Vandamálið er því raunverulegt og aðkallandi að lækna." Arnór lýsir dæmigerðri sjúkrasögu ein- staklings með vefjagigt á þá leið að hann hafi ítrekað leitað til læknis vegna verkja, þreytu og svefntruflana. Samhliða því sem læknirinn reynir að veita einhverja úr- lausn hafa skilaboðin verið þau að þetta sé ekki alvarlegt, bara vefjagigt, og að engin líffæri séu í hættu. „Þessi viðhorf lækna gagnvart vefjagigt seinka greiningar- og meðferðarferlinu og geta leitt til þess að fólk er komið út á ystu nöf þegar það loksins fær viðhlítandi meðferð. Vefjagigt er krónískur sjúkdómur sem á sér margvíslegar birtingarmyndir. Hjá sumum einstaklingum geta einkennin komið fram seint á ævinni og verið tiltölu- lega væg. Hjá öðrum geta einkennin verið mjög hastarleg og komið fram strax á ung- lingsárum. Þarna á milli eru fjölmörg til- brigði við það meginstef að sjúkdómurinn er ólæknandi og rétt meðferð er nauðsyn- leg til að gera einstaklingnum kleift að lifa með honum án þess að lífsgæði skerðist verulega. í dag hafa verið þróuð mælitæki til að meta ástand vefjagigtar hjá sjúk- lingum. Slíkt mat gefur praktískar upp- lýsingar um alvarleikastig sjúkdómsins og hversu brýnt sé að grípa inn í sjúkdóms- ferlið. Þessi mælitæki eru ekki tugmilljóna króna tæki heldur einfaldir spurninga- listar sem kosta sama og ekkert. Við erum að vona að læknar í frumþjónustu fari að nota þessa spurningalista sjálfum sér og sjúklingunum til gagns." ítarleg greining og mat Starf Þrautar byggist á því að sjúklingarnir koma þangað samkvæmt tilvísun frá heimilislækni í það sem kallast greining og mat, að sögn Arnórs. „Einstaklingurinn svarar um 15 spurn- ingalistum sem taka á flestum þáttum heilsufars; líkamlegs, andlegs og félags- legs, því einkenni og orsakir vefjagigtar geta verið æði misjöfn. Sumir einstakling- ar eru með áberandi líkamleg vandamál, á meðan aðrir glíma við geðræn, og það skiptir miklu máli að meta alla þætti rétt og nákvæmlega. Viku síðar kemur sjúklingurinn aftur og fer í ítarlegt viðtal, skoðun og mat hjá gigtarlækni, sjúkra- þjálfara og sálfræðingi. í framhaldi berum við saman bækur á teymisfundi þar sem læknirinn veitir sjúkdómsmat, meðal annars hvort um sé að ræða vefjagigt og/ eða aðra sjúkdóma, sjúkraþjálfarinn veitir upplýsingar um líkamlegt ástand og færni einstaklingsins, um stöðuskekkjur, þol og fleira og sálfræðingurinn kynnir mat sitt á andlegu ástandi einstaklingsins, streitu, kvíða, þunglyndi og fleiri þáttum. Þegar þetta er allt lagt saman fáum við heillega mynd af ástandi sjúklingsins og getum betur greint þau atriði sem skera sig úr og hafa mest áhrif á gang sjúkdómsins. Sjúk- 460 LÆKNAblaðið 2013/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.