Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 28
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Vefjagigt er viðurkenndur sjúkdómur
- segir Arnór Víkingsson gigtarlæknir
Þraut ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig
í mati og meðferð vefjagigtar og hefur
starfað frá því í ársbyrjun 2011. Arnór
Víkingsson gigtarlæknir er einn þriggja
stofnenda og eigenda fyrirtækisins en
hin eru Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálf-
ari og Eggert S. Birgisson sálfræðingur.
Arnór segir um aðdraganda þess að Þraut
var stofnuð að það hafi verið draumur
þeirra þremenninganna að geta sett á
laggirnar meðferðarstöð fyrir vefjagigt
sem byggði á teymisvinnu.
„Við fórum af stað árið 2008 með
að selja ráðuneyti heilbrigðismála og
Sjúkratryggingum íslands þessa hug-
mynd og tveimur árum seinna fengum við
bráðabirgðasamning en hann entist bara
til nokkurra mánaða. Formlegan samning
fengum við í apríl 2011.
Sjúkratryggingar kaupa af okkur
ákveðinn fjölda greininga á ári og einnig
endurhæfingu fyrir tilgreindan fjölda
sjúklinga. Ég held ég ýki ekki þegar ég
segi að þetta hafi verið tímamótasamning-
ur. Með þessum samningi féllust Sjúkra-
tryggingar á þau rök okkar að góð heil-
brigðisþjónusta fyrir vefjagigtarsjúklinga
byggðist á samstarfi nokkurra sérfræðinga
í teymi og voru tilbúnar að kaupa slíka
þjónustu. Fram til þessa hafði þjónusta
utan stofnana verið veitt af ótengdum
aðilum sem höfðu ekki innbyrðis samráð
um meðferðina, til dæmis gigtarlæknum,
heimilislæknum, sjúkraþjálfum, geðlækn-
um, sálfræðingum og iðjuþjálfum, þannig
að úr varð brotakennd og áttavillt með-
ferð. í starfi mínu sem gigtarlæknir á stofu
til margra ára, þar sem tæplega helmingur
nýrra sjúklinga fær greininguna vefjagigt,
fann ég glöggt fyrir því að þessir sjúk-
lingar fengu ekki bestu meðferð sem hægt
var að veita. Þess vegna var svona með-
ferðarstöð búin að vera draumur minn til
margra ára."
Vefjagigt, segir Arnór, er ein birtingar-
mynd langvinnra, útbreiddra stoðkerfis-
verkja en samkvæmt erlendum rannsókn-
um eru um 8-11% þýðis með slíka verki.
„Af þeim er um þriðjungur með vefjagigt
og það segir okkur að hér á landi eru
sennilega um 10.000 manns með vefjagigt.
Því mætti ætla að rík þörf væri fyrir grein-
ingar- og meðferðarstöð sem þessa. Enda
stóð ekki á viðbrögðunum: umsóknum
rignir inn og nú eru nokkur hundruð
manns sem bíða eftir greiningarmati.
Vefjagigt var ekki skilgreind sem sjálf-
stæður sjúkdómur af Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni fyrr en 1993. Það hefur
tekið töluverðan tíma fyrir sjúkdóminn að
öðlast viðurkenningu innan læknasam-
félagsins en sem betur fer ber æ minna á
andmælum. Það hefur ríkt ákveðin vantrú
hjá sumum læknum um tilvist vefjagigtar
sem ég vil meina að sé á misskilningi
byggð. Enginn mótmælir því í dag að fjöl-
margir einstaklingar þjást af langvinnum,
útbreiddum verkjum og hvort það heitir
„vefjagigt" eða eitthvað annað er í raun-
inni aukaatriði. Það sem skiptir höfuðmáli
er að veita þessum einstaklingum hjálp.
Deilur um eðli og orsök vefjagigtar eru
að hluta til komnar af þeirri staðreynd að
vefjagigt sést ekki í blóðprufum eða mynd-
greiningu. Engu að síður er vefjagigt mjög
áþreifanleg við klíníska læknisskoðun og
samkvæmt bókhaldi lífeyrissjóða er vefj-
agigt ein af þremur algengustu ástæðum
örorku á íslandi í dag. Vandamálið er því
raunverulegt og aðkallandi að lækna."
Arnór lýsir dæmigerðri sjúkrasögu ein-
staklings með vefjagigt á þá leið að hann
hafi ítrekað leitað til læknis vegna verkja,
þreytu og svefntruflana. Samhliða því sem
læknirinn reynir að veita einhverja úr-
lausn hafa skilaboðin verið þau að þetta sé
ekki alvarlegt, bara vefjagigt, og að engin
líffæri séu í hættu. „Þessi viðhorf lækna
gagnvart vefjagigt seinka greiningar- og
meðferðarferlinu og geta leitt til þess að
fólk er komið út á ystu nöf þegar það
loksins fær viðhlítandi meðferð.
Vefjagigt er krónískur sjúkdómur sem
á sér margvíslegar birtingarmyndir. Hjá
sumum einstaklingum geta einkennin
komið fram seint á ævinni og verið tiltölu-
lega væg. Hjá öðrum geta einkennin verið
mjög hastarleg og komið fram strax á ung-
lingsárum. Þarna á milli eru fjölmörg til-
brigði við það meginstef að sjúkdómurinn
er ólæknandi og rétt meðferð er nauðsyn-
leg til að gera einstaklingnum kleift að lifa
með honum án þess að lífsgæði skerðist
verulega. í dag hafa verið þróuð mælitæki
til að meta ástand vefjagigtar hjá sjúk-
lingum. Slíkt mat gefur praktískar upp-
lýsingar um alvarleikastig sjúkdómsins og
hversu brýnt sé að grípa inn í sjúkdóms-
ferlið. Þessi mælitæki eru ekki tugmilljóna
króna tæki heldur einfaldir spurninga-
listar sem kosta sama og ekkert. Við erum
að vona að læknar í frumþjónustu fari að
nota þessa spurningalista sjálfum sér og
sjúklingunum til gagns."
ítarleg greining og mat
Starf Þrautar byggist á því að sjúklingarnir
koma þangað samkvæmt tilvísun frá
heimilislækni í það sem kallast greining og
mat, að sögn Arnórs.
„Einstaklingurinn svarar um 15 spurn-
ingalistum sem taka á flestum þáttum
heilsufars; líkamlegs, andlegs og félags-
legs, því einkenni og orsakir vefjagigtar
geta verið æði misjöfn. Sumir einstakling-
ar eru með áberandi líkamleg vandamál,
á meðan aðrir glíma við geðræn, og það
skiptir miklu máli að meta alla þætti
rétt og nákvæmlega. Viku síðar kemur
sjúklingurinn aftur og fer í ítarlegt viðtal,
skoðun og mat hjá gigtarlækni, sjúkra-
þjálfara og sálfræðingi. í framhaldi berum
við saman bækur á teymisfundi þar sem
læknirinn veitir sjúkdómsmat, meðal
annars hvort um sé að ræða vefjagigt og/
eða aðra sjúkdóma, sjúkraþjálfarinn veitir
upplýsingar um líkamlegt ástand og færni
einstaklingsins, um stöðuskekkjur, þol og
fleira og sálfræðingurinn kynnir mat sitt
á andlegu ástandi einstaklingsins, streitu,
kvíða, þunglyndi og fleiri þáttum. Þegar
þetta er allt lagt saman fáum við heillega
mynd af ástandi sjúklingsins og getum
betur greint þau atriði sem skera sig úr og
hafa mest áhrif á gang sjúkdómsins. Sjúk-
460 LÆKNAblaðið 2013/99