Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2013, Side 44

Læknablaðið - 15.10.2013, Side 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR Hjálpum Landspítalanum Tryggvi Ásmundsson lungnalæknir sestur í helgan stein tryggvi.asmundsson@gmail.com Það er ekkert nýtt að upp komi erfiðleikar á íslenskum spítölum. Fyrir rúmlega 50 árum var svo komið fyrir sjúkrahúsinu á Akureyri að þar fengust engar nýjar hjúkrunarkonur til starfa. Þær fáu sem voru í starfi voru útbrunnar eftir glóru- lausan þrældóm og hjúkrunin á staðnum í samræmi við það. Til að leysa vandann voru hjúkrunarnemar skikkaðir til að vinna þarna og sjá um megnið af hjúkrun- inni. Má nærri geta hvernig kennslan hefur verið, enda töldu þær dagana þar til þær losnuðu úr prísundinni og hétu því að stíga aldrei inn fyrir dyr þeirrar stofn- unar aftur! Á röntgendeild spítalans vann þá Ingibjörg Ragnheiður Magnúsdóttir, menntaður íþróttakennari og þekkt fyrir dugnað og stjórnsemi. Hún hafði ákveðið að fara suður til að læra hjúkrun þótt hún væri komin á miðjan fertugsaldur. For- stjóri spítalans var þá Brynjólfur Sveins- son menntaskólakennari og bætti þessu starfi við fulla kennslu. Hann var afi Þor- björns Jónssonar formanns LÍ. Brynjólfur hafði oft samband við Ingibjörgu þegar fór að líða á námstíma hennar og hvatti hana til að koma norður og taka við stjórn hjúkrunar á spítalanum. Hann vissi sem var að hún hefði taugar til staðarins og lofaði henni öflugum stuðningLstjórnar- innar. Við það var staðið. Hún ákvað að ráða sem flestar úr útskriftarárgangi sínum norður. Markmiðið var að ráða í allar lausar stöður hjúkrunarkvenna og það tókst. Þetta var mikið einvalalið og nánast í einu vetfangi varð hjúkr- unin á FSA með því besta sem þekktist á landinu og „mórallinn" fór úr núlli í hæstu hæðir. Ekki spillti að þetta voru flestar fjallmyndarlegar stúlkur, greindar og skemmtilegar. Ingibjörg leigði handa þeim stórt og glæsilegt einbýlishús rauð- málað og í göngufæri við spítalann. Fékk það strax nafnið „Rauða myllan". Eg var þarna miðhlutastúdent á lyfjadeild og ekki í neinum vandræðum með hvernig frí- tímanum skyldi eytt. „Those were the days my friend ... " og þeir gleymast seint! Ég held að vandinn þarna hafi verið síst minni en sá sem núna er uppi á lyfjadeildinni. Helst vildi ég senda þá Björn forstjóra og Ólaf lækningaforstjóra í endurmenntun á 6. árið í læknadeild. Þá myndu þeir koma með árganginn eins og hann leggur sig inn á spítalann í vor. En það er þó líklega ekki raunhæft! Það er vissulega gleðilegt að nýskipaður heil- brigðisráðherra virðist skilja hvað hér sé í húfi, vanda sem þurfi að taka á en ekki að breiða yfir. Maður verður að treysta því að unglæknar og læknanemar á loka- ári hafi verið með í ráðum um úrbætur og séu tilbúnir að ráða sig á spítalann og hugleiða framhaldsnám í lyflækningum gangi þær eftir. Háskólaspítali þar sem unglæknar vilja helst ekki starfa á ekki til- verurétt. Hins vegar er það áhyggjuefni að nokkur trúnaðarbrestur virðist hafa orðið milli lækna spítalans og stjórnenda hans. Það er reyndar ekki í fyrsta sinn því það varð einnig fyrir nokkrum árum þegar aðrir stjórnuðu. Það hlýtur öllum að vera ljóst að stjórnendur spítala verða að hafa læknana í liði með sér, annars er voðinn vís. Nú held ég að flestir séu mér sam- mála um að allir þessir stjórnendur hafi bæði gáfur og mannkosti í ríkum mæli. Hvernig má það þá vera að þessi staða kemur upp, ekki bara einu sinni heldur tvisvar? Fyrir því eru sjálfsagt margar ástæður, en mér dettur í hug ein sem hægt væri að bæta úr. Stjórn og skrifstofulið spítalans hefur aldrei verið undir sama þaki og annað starfsfólk. Ég man svo langt að skrifstofan var niðri á Klapparstíg, nokkuð langt frá spítalanum. Síðan fluttist hún nær, á Rauðarárstíginn, og loks enn nær, á Eiríksgötuna, aðeins nokkra metra frá aðalbyggingunni. En því miður geta þessir fáu metrar reynst gjá sem erfitt er að brúa. Meðan ég vann á Landspítalanum voru tvö stór hringborð í matsalnum, sem læknarnir lögðu venjulega undir sig. Kannske var það ekki alltof heppilegt. Margir hafa kvartað undan því að læknar hafi tilhneig- ingu til að einangra sig frá öðru starfs- fólki. Við þessi borð voru oftast fjörugar umræður og ekki þagað yfir vandamálum. Fyrir kom að forstjóri eða lækningafor- stjóri sætu við þessi borð, en það var ekki oft. Ég minnist þess heldur ekki að starfs- fólk skrifstofunnar sæist oft í matsalnum. Seinna vann ég hjá heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins. Þar starfaði yfirstjórnin og skrifstofufólkið undir sama þaki og við hin. Læknarnir „áttu" ekkert borð í matsalnum og maður kynntist skrifstofu- liðinu og hitti forstjórann og lækningafor- stjórann nánast daglega. Ég held að það hafi skipt verulegu máli fyrir „móralinn". I nýjum spítala verður þetta að breytast. Skrifstofufólkið verður að verða hluti af heildinni. En meðan beðið er eftir nýjum spítala legg ég til að forstjórinn og lækningaforstjórinn borði með fólkinu á „dekkinu" ekki sjaldnar en þrisvar í viku! Þá verður þeim ekki skotaskuld úr því að endurvinna það traust sem kann að hafa glatast. Og nú er komið að því að minnast á starfsanda - „móral". Meðan ég starfaði á Landspítalanum sveiflaðist mórallinn dálítið. Stundum ágætur, stundum svolítið dapur. Mér er það minnisstætt að eitt sinn hitti Magnús bróðir minn Davíð Davíðs- son prófessor á gangi spítalans og spurði: „Hvernig gengur það á „kærleiksheim- ilinu"? Davíð svaraði að bragði: „Þar sést aldrei glaður maður!" Vonandi er það ekki svo í dag, en ég kem stundum í hádegis- mat í Læknasetrið þar sem vinna læknar sem starfa á Landspítalanum og mér finnst þeir mættu vera glaðari. Á vinnu- stað er sennilega fátt sem er nauðsynlegra til að laða að gott fólk en góður mórall. En hvað er mórall eiginlega? Mig langar að vitna í gamla sögu.1 Spekingur nokkur fór um farinn veg. Við veginn sat maður og var að höggva 476 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.