Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2013, Page 48

Læknablaðið - 15.10.2013, Page 48
ÖLDUNGADEILD Loggjof a villigotum Sigurður E. Þorvaldsson fyrrv. formaður öldungadeildar Ll Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/20121 tóku gildi 1. janúar 2013. 26. grein laganna hljóðar svo: Aldursmörk. Heilbrigðisstarfsmanni samkvæmt lögum þessum er óheimilt að reka eigin starfstofu eftir að hann nær 70 ára aldri. Landlækni er þó heimilt, að fenginni umsókn við- komandi, aðframlengja leyfi til tveggja ára í senn, þó aldrei oftar en þrisvar. Þessi grein hinna nýju heilbrigðislaga skerðir mjög starfsmöguleika eldri lækna og rýrir margrómaðan mannauð íslensku heilbrigðisþjónustunnar sem á mjög undir högg að sækja um þessar mundir eins og nýleg ummæli nokkurra framámanna í læknastétt bera vott um: „Á undanförnum árum hefur starfandi læknum á íslandi fækkað um 12%."2, „...það er ekki hægt að skera meira niður, það þarfað fara að byggja upp kerfiðað nýju."3, „...hafa 208 læktwr skráð sig úr Læknafélagittu á síðustu þretnur árutn en aðeins 71 skráð sig ífélagið."*, „Hrörnun mannauðs er langtíma fyrirbæri."5 Sá mannauður og reynsla sem tapast við aldursákvæði 26. greinar nýrra heil- brigðislaga verður ekki bætt með 11. grein laganna þar sem fjórða árs nemum í læknisfræði er gefið leyfi til að starfa sem læknar þó undir eftirliti eigi að heita. Slíkt er mikil þversögn. Af hverju 76 ár? Fyrir því eru ekki færð nein rök. Opinberir starfsmenn verða raunar að hætta 70 ára en hér er um að ræða sjálfstætt starfandi menn með eigin starfstöð. Sé landlækni ætlað að meta færni sjötugra lækna í þrígang ætti hann eins að geta það áfram um óákveðinn tíma. Það er ekki þekkt náttúrulögmál að læknar glati að fullu líkamlegri og andlegri færni sinni við 76 ára aldur. Þessi lagagrein er ekki í takti við reglur í löndum sem við gjarnan miðum okkur við: Á netsíðu Sundhedsstyrelsen í Dan- mörku6 segir: Sundhedsstyrelsen kati efter ansogning give tilladelse til, at en autoriseret sundhedsperson kan fortsætte sin selvstændige faglige virksomhed helt eller delvist efter de fyldte 75 ár. Þetta eru í raun þær reglur sem voru í eldri læknalögum á íslandi. Á netsíðu norska læknafélagsins7 segir: Nár autorisasjonen bortfaller ved fylte 75 ár, kan legen soke om lisensfor á utove legevirksomhet. Lisens gis etter en konkret vurdering og normalt for to ár av gatigen. Leger som har fylt 80 ár, kanfá slik lisensfor inntil ett ár av gangen. Soknad om lisens sendes til og behatidles av Statens autor- isasjonskontor for helsepersonell (SAFH). Formaður félags eldri lækna í Noregi (ELF) segir í tölvupósti: Félag eldri lækna í Noregi ásamt norska læknafélaginu vinna að því að fá þessa grein fellda úr norsku heilbrigðislög- unutn því hér sé eingöngu mismunað vegna aldurs.8 Frá Svíþjóð fengust þær upplýsingar hjá lagadeild sænska læknafélagsins að f Sví- þjóð væru engin aldursákvæði varðandi sjálfstætt starfandi lækna.9 I Bretlandi10 og Þýskalandi11 eru engin aldursákvæði varð- andi sjálfstætt starfandi lækna. Það er því ljóst að í fimm löndum sem við oft kjósum að bera okkur saman við, Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð, Bretlandi og Þýskalandi, eru í raun engin aldurstakmörk fyrir sjálfstætt starfandi lækna. Lítt rætt á Alþingi Á vef Alþingis má lesa umræður í vel- ferðarnefnd um setningu heilbrigðislaga1. Umræða í velferðarnefnd um 26. grein, þ.e. aldurstakmörk, virðist hafa verið harla lítil. Þó er þar að finna álit Eyglóar Harðar- dóttur núverandi félagsmálaráðherra og Sivjar Friðleifsdóttur fyrrverandi heil- brigðisráðherra 2006-2007. Ur áliti Eyglóar: Neftidarálit með breytingartillögu umfrumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn: [...] 3. minni hluti telur mikilvægt að slíkar hömlur séu ekki settar á störf heilbrigðisstarfsmanna og leggur til aðfelld verði brott sú afmörkun að einungis sé heimilt að framlengja leyfið þrisvar. í stað þess verði land- lækni heimilt, að fenginni umsókn viðkomandi heilbrigðis- starfsmanns, aðframlengja leyfi til árs í senn ... Ur áliti Sivjar: Ég ætla að lokum að segja frá eiiini grein sem ég er ekki alveg sátt við. Það er 26. gr. um aldursmörk. [...] Ég lief miklar efasemdir um þetta ákvæði. [...] Með nýja ákvæðinu er algjörlega tekið fyrir að lieilbrigðisstarfsmaður geti rekið starfsstofu lengur en til 76 ára aldurs.l...] Ég ætla því að biðja liv. velferðarnefnd að skoða sérstaklega hvort ekki sé rétt að hafa þetta I liönduni landlæknis áfram en setja ekki þetta snögga skilyrði um að eftir 76 ára aldur eigi fortakslaust að loka fyrir starfsemina þó að viðkomandi geli alveg unnið lengur. A vef Alþingis1 er að finna umsagnir frá Læknafélagi Islands og læknaráði. I þeim er ekki að finna athugasemdir varð- andi umrædda 26. grein. Hins vegar er því mótmælt í báðum umsögnum að lækna- lögin frá 1988 með síðari breytingum verði felld úr gildi. Það er ljóst að 26. grein hinna nýju laga um heilbrigðisstarfsmenn skerðir mjög réttindi þeirra til starfa og þar með í raun mannréttindi. Þetta á ekki aðeins við lækna þótt sérstaklega hafi verið um þá fjallað hér. Lokaorð Það er skoðun mín að leita ætti leiða til að leiðrétta þau mistök sem ég tel að hér hafi verið gerð. Til þess þarf að brey ta lögunum. Ráðlegt kann að vera að fá álit Umboðs- manns Alþingis á málinu áður en því er ýtt frekar áleiðis. Þá mætti íhuga að leita úrlausnar fyrir dómstólum. Allt tæki þetta sinn tíma en þetta er hægt. Heimildir 1. Lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 (althingi.is/ dba-bin/ferill.pl?ltg=140&mnr=147) 2. Jónsson S. Höfum við efni á að setja sjötuga lækna á eftir- laun? Læknablaðið 2013; 99: 363. 3. Bjöm Zoega í viðtali. Morgunblaðið, 3. ágúst 2013:4. 4. Þorbjöm Jónsson í viðtali. Morgunblaðið 3. ágúst 2013:4. 5. Stefánsson E, Guðmundsson S. Heilbrigðiskerfið molnar niður. Morgimblaðið 2. ágúst 2013: 23. 6. sst.dk/Uddannelse20og20autorisation/ Autorisationsregister/75_aars_reglen.aspx 7. legeforeningen.no/Arbeidsliv-og-jus/Legens-ansvar/ Retten-til-a-virke-som-lege/Autorisasjon-og-lisens-/ 8. Tölvupóstur frá formanni Félags eldri lækna í Noregi. 9. Tölvupóstur frá Sveriges Lakarförbund. 10. Svar við fyrirspum til Keith Baggs. Dpt of Health U.K. 11. BMJ 2009; 338: b97. (Jnidungadeild Læknafélags íslands Stjóm Öldungadeildar: Magnús Einarsson formaður, Þórarinn Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri, Guðmundur Oddsson, Guðrún Agnarsdóttir. öldungaráð Umsjón siðu: Páll Ásmundsson Jóhann Gunnar Þorbergsson, Jón Hilmar Alfreðsson, Kristín Guttormsson, Sigurður E. Vefsíða: Þorvaldsson, Tryggvi Ásmundsson, Valgarður http://innri.lis.is/oldungadeild-li Egilsson. 480 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.