Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 49
HJÁ SAMBANDINU
Eftir Jón Guöna Kristjánsson
r Samband íslenskra samvinnufélaga ann-
ars vegar og kaupfélögin og samvinnufyrirtækin
á landsbyggöinni hins vegar aö leysast upp í
tvær andstæðar fylkingar? Er Sambandiö rekið á
sama grundvelli og önnur fyrirtæki í landinu meö
harðsvíruð viðskipta- og gróðasjónarmið að
leiðarljósi?
Margir samvinnumenn, einkum utan Reykja-
víkursvæðisins, telja að svo sé. Mannaráðningar
síðustu árin í toppstöður hjá Sambandinu hafa
vakið mikla úlfúð meðal margra kaupfé-
lagsmanna,sem telja að í kjölfarið hafi Samband-
ið tekið upp nýja stefnu í samskiptum sínum við
kaupfélögin. Sú stefna lýsi sér í því að Samband-
ið komi fram gagnvart kaupfélögunum eins og
venjuleg heildsala gagnvart óskyldum viðskipta-
aðilum. Hinir nýju áhrifamenn Sambandsins
koma flestir úr störfum hjá ríkinu eða einkafyrir-
tækjum,ellegar þá að þeir koma til starfa hjá
Sambandinu strax að loknu háskólanámi.
Kaupfélagsstjórar og stjórnendur samvinnufyrir-
tækja út um land kvarta undan því að hjá Sam-
bandinu ríki nú skilningsleysi á aðstæðum lands-
byggðarinnar og að þar sé hinum félagslegu
sjónarmiðum sem hafa verið aðal samvinnu-
hreyfingarinnar nú Iftill gaumur gefinn. Sérfræð-
ingaveldi hafi náð yfirtökunum hjá Sambandinu
og þar ráði nú ríkjum menn sem sumir hverjir hafi
grundvallarskoðanir andstæðar samvinnu-
hreyfingunni. Á hinn bóginn sé horft framhjá
mönnum með mikla reynslu af rekstri samvinnu-
fyrirtækja úti á landsbyggðinni, oft við erfiðar
aðstæður, þegar ráðið er í lykilstöður hjá SÍS.
Sumir taka svo djúpt í árinni að segja að engu sé
líkara en að Sjálfstæðisflokkurinn sé aðyfirtaka
haci uibiason
Þorsteinn Ólafsson
Eggert Á. Sverrisson
p
menn eru oft-
ast nefndir sem valdamestu menn Sambandsins
viö hlið Erlendar Einarssonar forstjóra og nán-
ustu ráðgjafar hans. Það eru þeirAxel Gíslason
fulltrúi forstjórans og áöur forstjóri Skipadeildar-
innar, Þorsteinn Ólafsson framkvæmdastjóri Þró-
unardeildar og fyrrum fulltrúi forstjórans og Egg-
ertÁ. Sverrison framkvæmdastjóri Fjárhags-
deildar.
„Þetta eru mjög vel menntaðir og hæfir menn
ÞJÓÐLÍF 49