Þjóðlíf - 01.03.1986, Page 73

Þjóðlíf - 01.03.1986, Page 73
ekki jafn afgerandi í þessari teg- und fjölmiðlunar, en oft birtist sú kvengerð sem nokkurs konar heimilisengill, eða í hlutverki hinnar prúðu, undirgefnu heitmeyjar ef eiginkonu er ekki til að dreifa. Undantekningarlítið deyja konur kvikmyndanna fá- klæddar, ef ekki klæðalausar með öllu, og það er fátítt að kona hljóti eðlilegan dauðdaga í kvik- mynd. Reglan er sú að deyi hún á annað borð, eru dánarstund- irnar mun grimmilegri og ómann- úðlegri en þegar karlarnir gefa upp öndina - hver svo sem ástæðan er. Það er því fulljóst, að konur geta ekki notast við þá mynd, sem hefðin dregur upp af þeim, því sú mynd er ósönn og af- skræmd. Þær verða að skapa sér nýja sjálfsmynd ef þær ætla að skapa listaverk, til dæmis ritverk. Merking málsins Einn þáttur í þeirri viðleitni er sá að endurskoða þau orð og hugtök sem notuð eru um konur. Svava Jakobsdóttir hefur gert þennan vanda kvenrithöfunda að umræðuefni í grein sinni Reynsla og raunveruleiki - nokkrir þankar kvenrithöfundar, þar sem hún varar konur við því að „láta blekkjast til fylgilags við snjöll tákn og fagrar líkingar sem eiga upptök sín í allt öðru viðhorfi til yrkisefnisins en hún /konan/ hefur, og leiða til skilnings sem kvenrithöfundurinn hefur - þeg- ar allt kemurtil alls - einungis tileinkað sér en ekki reynt." Því næst segir Svava að konur verði að gaumgæfa merkingu máls- ins: „Þær veröa að velta við orðum eins og við veltum við steinum til að skoða hið auðuga og iðandi lífríki sem undir býr. Hvaða hug- mynd, hvaða reynslu dylur orðið og þar af leiðandi: hvað merkir orðið þá í raun og veru?“(Konur skrifa . .., bls. 224) Konan þarf með öðrum orðum að vera sjálfri sér trú í verkum sínum, tala út frá eigin brjósti, lýsa sinni eigin reynslu og hætta sér ekki út á þá refilstigu að fella sjálfa sig inn í mynd hefðarinnar, eða lýsa sjálfri sér og heiminum með augum karlmannsins ( = hefðarinnar). „Hreingerning, þvottur, verk- smiðjuvinna, væri það efni í brag*“ Þannig spyr Jakobína Sigurð- ardóttir í kvæði sínu Náttmálvib upphaf rithöfundarferils síns. Hún hefur vitaö sem var að kvenleg viðfangsefni eiga ekki upp á pallborðið innan bók- menntahefðarinnar. Enda reyndist hún sannspá, því með tilkomu verka hennartóku rit- dómarar upp á því að kalla skáldskap kvenna, meðal ann- ars þeirra Jakobínu og Svövu, „kerlingarbækur". Þessi brand- ari, sem Sigurður A. Magnússon mun hafa sagt fyrstur manna, þótti mjög fyndinn og öpuðu hann margir eftir. Það þarf vart að taka það fram, að þær Jakobína og Svava teljast nú báðar með merkustu rithöfundum þjóðarinnar, þótt þannig hafi þeim verið tekið í upphafi. Viðtökurnar við verkum þeirra Jakobínu og Svövu, sem og ann- arra kvenrithöfunda, sýna hins vegar Ijóslega að konur eiga erf- itt uppdráttar innan bók- menntastofnunarinnar. En bók- menntastofnunin er það fyrir- bæri þjóðfélagsins sem ákvarð- ar hvað skuli teljast góðar bók- menntir og hvað ekki og sam- anstendur af öllum þeim aðilum sem fjalla um bækur eða hafa áhrif á útgáfu þeirra með ein- hverjum hætti (t.d. útgefendur, fjölmiðlar, gagnrýnendur, bók- menntafræðingar og úthlut- unarnefndiro.fi., að ógleymdum rithöfundum, t.d. í Rithöf- undasambandi íslands). Sem dæmi um gildismat þessarar merku stofnunar má nefna, að einn afkastamesti rithöfundur þjóðarinnar, Ingibjörg Sigurð- ardóttir sem gaf út tuttugu og þrjár bækur, er ekki talin með skáldum í einu heimildinni um íslenska rithöfunda, Skáldatali. Þá er jafnljóst að yrkisefni úr reynsluheimi kvenna hafa alla tíð þótt ómerkari karl-legum yrk- isefnum á borð við svaðilfarir og bardagagleði íslendingasagna, svo eitthvað sé nefnt. Kynbundnir ritdómar I Ijósi þess sem hér hefur verið sagt þarf ekki að koma á óvart þótt ritverkum kvenna hafi ævin- lega verið tekið með fyrirvara um kynferði höfundarins. Þannig hafa þau þótt „léttvæg", þau hafa verið „snotur" eða „lítil", svo vitnað sé til ritdóma, eða með öðrum orðum „kvenleg". Þessi tilhneiging gagnrýnenda stafar af því sem May Elmann kallar „kynbundna hugsun" eða „kynferðislega samsvörun" og kemur fram í þeirri tilhneigingu vestrænnar menningar að skilja og skoða öll fyrirbæri með hlið- sjón af kynferði og fella þau þannig inn í ákveðin kynhlutverk. Þetta hefur óhjákvæmilega djúp- tæk áhrif á heimsmynd okkar, og þá ekki síst afstöðuna til menn- ingar og lista. Elmann heldur því fram að umfjöllun karla um bók- menntir eftir konur sé njörvuð við þessa kynferðislegu samsvörun; að fjalla um bækur eftir konur á sama hátt og þeir væru að fjalla um konur, þ.e. með skírskotun til sömu eiginleika og konum eru eignaðir. Þetta má til sanns vegar færa, sé litið til þeirra umsagna sem birst hafa um bækur eftir konur fram á þennan dag. Hulda og bók- menntastofnunin Ég vil, til gamans, vitna í nokkrar athugasemdir ritdómara um Ijóðabækur þeirrar konu sem ÞJÓÐLÍF 73

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.